Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2012

Málsnúmer 2012010167

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3304. fundur - 19.01.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 12. janúar 2012. Fundargerðin er í 7 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið a) til framkvæmdadeildar, b) og c) til skipulagsdeildar, d) var svarað í viðtalstímanum, 2. lið a) vísað til framkvæmdadeildar og b) til Fasteigna Akureyrarbæjar. 3. lið er vísað til skólanefndar, 4. lið til skipulagsdeildar, 5. lið til framkvæmdadeildar, 6. lið til skipulagsdeildar og 7. lið til framkvæmdaráðs.

Þegar hér var komið vék Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista af fundi kl. 10:10.

Bæjarráð - 3307. fundur - 02.02.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 26. janúar 2012. Fundargerðin er í 7 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið og 2. lið b) til framkvæmdadeildar, 3. lið b) til búsetudeildar.

2. liður a) og 3. liður a) og c) eru lagðir fram til kynningar og 4. lið er vísað til skipulagsdeildar.

5. liður: Bæjarráð tekur ekki afstöðu til heildarmagns byggðakvóta.

6. lið er vísað til skipulagsnefndar og 7. lið til skóladeildar.

Bæjarráð - 3308. fundur - 09.02.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 2. febrúar 2012. Fundargerðin er í 3 liðum.

Bæjarráð vísar 1. og 3. lið til framkvæmdadeildar og 2. lið til skipulagsdeildar.

Þegar hér var komið mætti Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista á fundinn kl. 09:07.

Bæjarráð - 3310. fundur - 01.03.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 16. febrúar 2012. Fundargerðin er í 3 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið til skipulagsnefndar og 2. lið til framkvæmdadeildar.

3. lið var svarað í viðtalstímanum.

Bæjarráð - 3313. fundur - 22.03.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 15. mars 2012. Fundargerðin er 3 liðum.

Bæjarráð vísar fundargerðinni til framkvæmdadeildar.

Bæjarráð - 3315. fundur - 12.04.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 29. mars 2012. Fundargerðin er í 3 liðum.

Bæjarráð vísar 2. og 3. lið til framkvæmdadeildar.

1. lið var svarað í viðtalstímanum.

Bæjarráð - 3316. fundur - 18.04.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 12. apríl 2012. Fundargerðin er í einum lið.
Bæjarráð vísar fundargerðinni til skipulagsdeildar.

Bæjarráð - 3318. fundur - 03.05.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 26. apríl 2012. Fundargerðin er í 6 liðum.

Bæjarráð vísar 1. og 2. lið b) til skipulagsdeildar og 2. lið a), 3., 4. og 5. lið til framkvæmdadeildar.

Bæjarráð - 3320. fundur - 24.05.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 10. maí 2012. Fundargerðin er í 5 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið a), c) og d), 2., 4. og 5. lið a), b), c) og d) til framkvæmdadeildar.

1. lið b) og e), 3. og 5. lið e) til skipulagsdeildar.

5. lið f) er vísað til bæjarstjóra.

Bæjarráð - 3336. fundur - 18.10.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 11. október 2012. Fundargerðin er í 18 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið til Hafnasamlags Norðurlands, 2., 4., 9. og 14.  lið til skipulagsnefndar, 3. lið til skóladeildar, 5., 6., 8., 10., 11. lið a), c) og d), 15., 16., 17. og 18. lið til framkvæmdadeildar.

7. og 12. liður eru trúnaðarmál og færð í trúnaðarmálabók viðtalstíma bæjarfulltrúa. 

11. lið b) og 13. lið er vísað til Akureyrarstofu.

Bæjarráð - 3339. fundur - 01.11.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 25. október 2012. Fundargerðin er í 6 liðum.

1. lið hefur verið svarað af skólanefnd, 2. liður a) lagður fram til kynningar í bæjarráði, bæjarráð vísar 2. lið c), 3. lið b) og d) og 4., 5. og 6. lið til skipulagsdeildar og 2. lið b) og d) og 3. lið a) og c) til framkvæmdadeildar.

Bæjarráð - 3342. fundur - 22.11.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 15. nóvember 2012. Fundargerðin er í 6 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið a), 4. lið a) og 5. lið til framkvæmdadeildar, 1. lið b)  til íþróttaráðs, 2. lið til Akureyrarstofu, 3. lið og 4. lið b) til skipulagsdeildar og 6. lið til samfélags- og mannréttindaráðs.

Bæjarráð - 3344. fundur - 13.12.2012

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 29. nóvember 2012. Fundargerðin er í 4 liðum.
Einnig lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 6. desember 2012. Fundargerðin er í 3 liðum.

Fundargerðin frá 29. nóvember 2012 var afgreidd á eftirfarandi hátt:

Bæjarráð vísar 1. lið til Hafnasamlags Norðurlands, 2. lið til skóladeildar, 3. lið til samfélags- og mannréttindadeildar og 4. og 5. lið til skipulagsdeildar.

Fundargerðin frá 6. desember 2012 var afgreidd á eftirfarandi hátt:

Bæjarráð vísar 1. og 3. lið a) til framkvæmdadeildar, 2. liður a) er lagður fram til kynningar í bæjarráði, 2. lið b) og c) er vísað til skipulagsdeildar og 3. lið b) til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.

Bæjarráð - 3347. fundur - 17.01.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 10. janúar 2013. Fundargerðin er í 9 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið a) og b) og 2., 4., 5., 6., 7., 8. og 9. lið c), g) og h) til framkvæmdadeildar, 1. lið c) og d) til skipulagsdeildar og 3. lið til fjármálastjóra og húsnæðisdeildar.

9. liður a), d) og e) lagður fram til kynningar.

9. lið b) vísað til skipulagsdeildar og 9. lið f) til Akureyrarstofu.

Bæjarráð - 3349. fundur - 31.01.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 24. janúar 2013. Fundargerðin er í 5 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið a) og 4. lið til skipulagsdeildar, 1. lið b), 3. lið a), b), c), d) og e) og 5. lið til framkvæmdadeildar og 2. lið til framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar.

Bæjarráð - 3352. fundur - 21.02.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 14. febrúar 2013. Fundargerðin er í 11 liðum.

Bæjarráð vísar 1., 3., 6. og 9. lið til skipulagsdeildar, 4., 5. og 7. lið til framkvæmdadeildar, 8. lið a) og 10. lið til skóladeildar, 2. lið og 8. lið b) til búsetudeildar og 11. lið a) til framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar.

11. liður b) er lagður fram til kynningar.

Bæjarráð - 3355. fundur - 07.03.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 28. febrúar 2013. Fundargerðin er í 13 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið a) og b), 3. og 11. lið a) til skipulagsnefndar, 2. liður a) er lagður fram til kynningar, 2. lið b) vísað til fjármálastjóra, 4., 8., 9., 12. og 13. lið til framkvæmdadeildar, 5. og  6. liður færðir í trúnaðarbók bæjarráðs, 7. liður er lagður fram til kynningar, 10. lið vísað til framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar og 11. lið b) til skóladeildar.

Bæjarráð - 3358. fundur - 21.03.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 14. mars 2013. Fundargerðin er í 7 liðum.
Bæjarráð vísar 1. og 7. lið til framkvæmdadeildar, 2. og 6. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar, 3. lið til skipulagsdeildar, 4. lið til skólanefndar og 5. lið til samfélags- og mannréttindadeildar.

Bæjarráð - 3360. fundur - 04.04.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 21. mars 2013. Fundargerðin er í 3 liðum.

1. liður a), b) og c) eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

Bæjarráð vísar 2. lið til skipulagsdeildar og 3. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar.

Bæjarráð - 3363. fundur - 18.04.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 11. apríl 2013. Fundargerðin er í 6 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið til framkvæmdadeildar, 2. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar, 3., 4., 5. og 6. lið til skipulagsdeildar.

Bæjarráð - 3366. fundur - 02.05.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 18. apríl 2013. Fundargerðin er í 11 liðum.

Bæjarráð vísar 1. og 7. lið til fjármálastjóra, 2. og 9. lið til Akureyrarstofu, 3. lið til skóladeildar, 4. og 8. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði, 5. lið til íþróttaráðs, 6., 10. og 11. lið til framkvæmdadeildar,

Bæjarráð - 3368. fundur - 16.05.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 2. maí 2013. Fundargerðin er í 8 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið til bæjarlögmanns, 3. og 5.  lið til framkvæmdadeildar, 4. lið til skipulagsdeildar, 2., 6. og 7. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði og 8. lið vísað til starfshóps um fólkvang á Glerárdal.

Íþróttaráð - 132. fundur - 16.05.2013

Erindi frá Stefáni Stefánssyni í viðtalstíma bæjarfulltrúa 18. apríl 2013, sem bæjarráð vísaði á fundi sínum 2. maí 2013 til íþróttaráðs vegna ábendingar varðandi öryggismál og þrif í Sundlaug Akureyrar.

Forstöðumanni íþróttamála falið að ræða við forstöðumann Sundlaugar Akureyrar.

Bæjarráð - 3369. fundur - 30.05.2013

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 16. maí 2013. Fundargerðin er í 4 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið til framkvæmdadeildar, 2. og 3. lið til skipulagsdeildar og 4. lið til bæjarlögmanns.