Bæjarráð

3308. fundur 09. febrúar 2012 kl. 09:00 - 09:59 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Edward Hákon Huijbens áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Almannaheillanefnd

Málsnúmer 2008100088Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar dags. 3. febrúar 2012.

2.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2012

Málsnúmer 2012010167Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 2. febrúar 2012. Fundargerðin er í 3 liðum.

Bæjarráð vísar 1. og 3. lið til framkvæmdadeildar og 2. lið til skipulagsdeildar.

Þegar hér var komið mætti Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista á fundinn kl. 09:07.

3.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2012

Málsnúmer 2012020029Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 793. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 27. janúar 2012.

4.Kattahald - gjaldskrá og skráningartímabil

Málsnúmer 2011120087Vakta málsnúmer

7. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dags. 3. febrúar 2012:
Forstöðumaður umhverfismála, Jón Birgir Gunnlaugsson, lagði til breytingu á skráningargjaldi.
Framkvæmdaráð samþykkir að skráningargjald fyrir ketti og hunda verði lækkað um kr. 2.500 og verði skráningargjaldið kr. 7.500 þar sem náðst hefur hagræðing í vinnuferli við skráningu. Ekki er fallist á framlengingu á fresti til að skrá ketti gjaldfrjálst.

Bæjarráð samþykkir að skráningargjaldið verði lækkað í kr. 7.500 frá 1. janúar 2012.

5.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - þriggja ára áætlun 2013-2015

Málsnúmer 2012010262Vakta málsnúmer

Unnið að gerð þriggja ára áætlunar 2013-2015.

6.Önnur mál

Málsnúmer 2012010085Vakta málsnúmer

Samgöngur við flugvöllinn
Edward H. Huijbens V-lista lagði til að Strætisvögnum Akureyrar verði gert að setja Akureyrarflugvöll inn í sitt leiðakerfi, koma þar upp stoppistöð og koma þar fyrir viðeigandi upplýsingum um þær ferðir sem í boði verða.

Bæjarráð vísar tillögunni til framkvæmdaráðs.

Fundi slitið - kl. 09:59.