Vinabæir

Norræn vinabæjakeðja: Akureyri, Álasund, Lahti, Randers og Västerås. Samstarf þessarar vinabæjakeðju má rekja til ársins 1940 en aðild Akureyrar að henni var samþykkt árið 1953. Samstarfið hefur verið stöðugt og mikið og grundvallast bæði á föstum árlegum fundum og mótum sem gerð er áætlun um en einnig á óformlegri og tímabundnum samskiptum félaga og hópa innan bæjanna.

Vinabæjasamskipti við Gimli hófust árið 1975 og samkomulag undirritað í Gimli á hátíð í tilefni af hundrað ára afmæli landnáms Íslendinga í Manitoba. Samskipti hafa alltaf haldist en verið mismikil eftir tímabilum.

Vinabæjasamskipti milli Narsaq og Akureyrar voru samþykkt árið 1975. Nokkuð hefur verið um heimsóknir og samskipti, mismikil eftir tímabilum. 

Hafnarfjarðarbær hefur verið vinabær Akureyrarbæjar frá árinu 1999.

Skrifað var undir viljayfirlýsingu í ferð fulltrúa Akureyrarbæjar til Vágs árið 2002. Sú heimsókn og leit að vinabæ í Færeyjum var að frumkvæði Akureyrar. Fulltrúar Vágs komu í heimsókn til Akureyrar árið eftir. Ákveðið var að reyna að stuðla að  samskiptum t.d. á sviði menningar, íþrótta og skólamála.

Hinn 9. maí 2012 var undirrituð á Akureyri viljayfirlýsing um að komið verði á formlegu vinabæjasambandi á milli Denver og Akureyrar í náinni framtíð með áherslu á samvinnu á sviði menningarmála, menntunar og viðskipta.

Akureyrarbær og Murmansk í Rússlandi skrifuðu undir vinabæjasamkomulag árið 1994 en samstarfinu var hinsvegar formlega slitið 15. nóvember 2022 vegna innrásar rússneskra stjórnvalda í Úkraínu.

Hinn 10. nóvember 2023 var undirritað í Martin í Slóvakíu samkomulag um vináttusamband sem felur í sér samvinnu á sviði menningarmála, menntunar, íþróttamála og viðskipta.

Síðast uppfært 23. nóvember 2023