Bæjarráð

3347. fundur 17. janúar 2013 kl. 09:00 - 10:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Ragnar Sverrisson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Ragnar Sverrisson S-lista mætti í forföllum Loga Más Einarssonar.

1.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2012-2013

Málsnúmer 2012010167Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 10. janúar 2013. Fundargerðin er í 9 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið a) og b) og 2., 4., 5., 6., 7., 8. og 9. lið c), g) og h) til framkvæmdadeildar, 1. lið c) og d) til skipulagsdeildar og 3. lið til fjármálastjóra og húsnæðisdeildar.

9. liður a), d) og e) lagður fram til kynningar.

9. lið b) vísað til skipulagsdeildar og 9. lið f) til Akureyrarstofu.

2.Hverfisnefndir og hverfisráð - fundargerðir

Málsnúmer 2007020100Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar eftirtaldar fundargerðir hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dags. 8. nóvember og 5. desember 2012 og 8. janúar 2013.
Fundargerðirnar má finna á slóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdir-2012-2013

3.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 237. fundar stjórnar Eyþings dags. 11. desember 2012.

4.Safn landabréfa um Ísland

Málsnúmer 2003040061Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dags. 10. janúar 2013:
Farið yfir stöðu málsins sem snýst um að þýsku hjónin Karl-Werner og Gisela Shculte vilja færa Akureyrarbæ að gjöf merkt safn landabréfa af Íslandi þar sem yngsta landakortið er frá því um lok 18. aldar. Rætt um næstu skref og tillögu til bæjarráðs um lok þess.
Stjórn Akureyrarstofu leggur til við bæjarráð að Akureyrarbær þiggi gjöfina og að safnið verði sýnt yfir sumartímann í Minjasafninu á Akureyri fyrstu 2-3 árin. Gert er ráð fyrir því af hálfu gefenda að safnið verði sýnt með reglubundnum hætti í heild eða að hluta. Sýningin gæti svo síðar verið sett upp í Menningarhúsinu Hofi sem sumarsýning en það er kostnaðarsamara en að nýta Minjasafnið sem vettvang. Jafnframt leggur stjórnin áherslu á að gætt verði fyllsta aðhalds í öllum kostnaði sem til verður.

Bæjarráð samþykkir tillögu stjórnar Akureyrarstofu.

5.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2012

Málsnúmer 2012040165Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til nóvember 2012.

6.Afskriftir krafna 2012

Málsnúmer 2013010108Vakta málsnúmer

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri lagði fram tillögu dags. 11. janúar 2013 um afskriftir krafna vegna áranna 2007, 2008, 2009 og eldri ára að fjárhæð kr. 19.765.266.

Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra.

Fundi slitið - kl. 10:50.