Bæjarráð

3307. fundur 02. febrúar 2012 kl. 09:00 - 11:40 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Ný sveitarstjórnarlög nr. 138/2011

Málsnúmer 2012010368Vakta málsnúmer

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti helstu breytingar með nýjum sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011.
Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar bæjarlögmanni yfirferðina.

2.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2012

Málsnúmer 2012010167Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 26. janúar 2012. Fundargerðin er í 7 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið og 2. lið b) til framkvæmdadeildar, 3. lið b) til búsetudeildar.

2. liður a) og 3. liður a) og c) eru lagðir fram til kynningar og 4. lið er vísað til skipulagsdeildar.

5. liður: Bæjarráð tekur ekki afstöðu til heildarmagns byggðakvóta.

6. lið er vísað til skipulagsnefndar og 7. lið til skóladeildar.

3.Skammtímavistun - aukin þjónusta

Málsnúmer 2011090046Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 25. janúar 2012:
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, S. Anna Einarsdóttir forstöðumaður skammtímavistunar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynntu þörf fyrir aukna þjónustu vegna neyðarvistunar eins einstaklings sex daga vikunnar í skammtímavistuninni. Lagt var fram trúnaðarskjal dags. 24. janúar 2012.
Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti aukna þjónustu í skammtímavistun. Málinu vísað til bæjarráðs.

Lagt fram til kynningar.

4.Fráveita - upplýsingar um stöðu mála 2011

Málsnúmer 2011120044Vakta málsnúmer

Erindi dags. 26. janúar 2012 frá Alfreð Schiöth framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra þar sem heilbrigðisnefnd skorar á bæjarstjórn Akureyrar að láta úrbætur á fráveitu Akureyrarbæjar fá algjöran forgang í framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs. Meðfylgjandi er bókun heilbrigðisnefndar frá 25. janúar sl.

Bæjarráð vísar erindinu til framkvæmdaráðs.

5.Sinfóníuhljómsveit Norðurlands - samningur um starfsemi 2012-2014

Málsnúmer 2011120063Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dags. 25. janúar 2012:
Farið aftur yfir drög að samningi milli SN og Akureyrarbæjar. Markmið samningsins er að styðja við uppbyggingu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem meginstoðar sígildrar tónlistar utan höfuðborgarsvæðisins og að stuðla að því að Akureyri verði þungamiðja öflugs menningarstarfs á landsbyggðinni með möguleikum til aukinnar atvinnumennsku á listasviði. Áfram verður lögð áhersla á skapandi starf með börnum á starfssvæði hljómsveitarinnar með það að markmiði að þeim fjölgi sífellt sem líta á tilvist hljómsveitarinnar og tónlistarinnar sem hún flytur sem sjálfsagðan hluta af daglegu lífi.
Stjórn Akureyrastofu samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur framkvæmdastjóra að ganga frá honum í samræmi við umræður á fundinum og vísar honum til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.

6.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - þriggja ára áætlun 2013-2015

Málsnúmer 2012010262Vakta málsnúmer

Unnið að gerð þriggja ára áætlunar 2013-2015.

Bæjarráð vísar áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Fundi slitið - kl. 11:40.