Félagsmiðstöðvar fólksins - 18 ára og eldri

Mynd af Víðilundi 22Akureyrarbær rekur líflegt og skemmtilegt starf í félagsmiðstöðvunum Sölku í Víðilundi 22 og Birtu í Bugðusíðu 1.

Opnunartími:        Alla virka daga kl. 09:00 – 15:45.
Sími:                         Víðilundur 462-7998 / Víðilundur eldhús 595-8021 /Bugðusíða 462-6055.
Forstöðumaður:   Halla Birgisdóttir, netfang: hallabirgis@akureyri.is

Starfsemi félagsmiðstöðvanna er í stöðugri þróun með það að leiðarljósi að skapa fjölbreytni og mæta þörfum þeirra sem þangað sækja.

Í boði er fjölbreytt starfsemi, ýmiskonar námskeið, handverk, afþreying af ýmsu tagi og hreyfing auk fjölbreyttra viðburða. Bæklingur um starfsemi félagsmiðstöðvanna liggur frammi á báðum stöðum og í þjónustuveri bæjarins í Ráðhúsinu Geislagötu 9.

Verðskrá fyrir Birtu og Sölku vorið 2023

Smellið á myndina hér fyrir neðan til að sjá dagskrá vorsins.

Hnappur með hlekk í haustdagskrá 2022

Mynd af Bugðusíðu 1Félag eldri borgara á Akureyri (EBAK) hefur aðsetur í Bugðusíðu 1 og vinnur í nánu samstarfi við forstöðumann og starfsfólk að uppbyggingu og starfsemi félagsmiðstöðvanna beggja á Akureyri.

Einnig er boðið upp á félagsstarf í Hlíð fyrir þá sem þar dvelja.

 

 

 

Síðast uppfært 05. apríl 2023