Íþróttaráð

132. fundur 16. maí 2013 kl. 14:00 - 16:00 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þóroddur Hjaltalín
  • Árni Óðinsson
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Ellert Örn Erlingsson Forstöðumaður íþróttamála
Dagskrá
Þóroddur Hjaltalín L-lista mætti í forföllum Þorvaldar Sigurðssonar.

1.Bílaklúbbur Akureyrar - umsókn um notkun á fjölnotahúsinu Boganum

Málsnúmer 2013040200Vakta málsnúmer

Verklýsing frá Einari Gunnlaugssyni, Jóni Rúnari Rafnssyni og Sigurði Ágústssyni f.h. B.A. vegna Bílasýningar í Boganum lögð fram.

Íþróttaráð samþykkir umsókn Bílaklúbbs Akureyrar um afnot af Boganum í tilefni Bílasýningar 17. júní nk.  Bílaklúbbur Akureyrar skal fylgja eftir verklýsingu og hafa fullt samráð við umsjónarmann Bogans.  Bílaklúbbur Akureyrar annast þvott á gervigrasi eftir sýninguna.

Árni Óðinsson S-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.

2.Sundlaug Akureyrar - ábending varðandi öryggismál og þrif

Málsnúmer 2012010167Vakta málsnúmer

Erindi frá Stefáni Stefánssyni í viðtalstíma bæjarfulltrúa 18. apríl 2013, sem bæjarráð vísaði á fundi sínum 2. maí 2013 til íþróttaráðs vegna ábendingar varðandi öryggismál og þrif í Sundlaug Akureyrar.

Forstöðumanni íþróttamála falið að ræða við forstöðumann Sundlaugar Akureyrar.

3.Íþróttadeild - langtímaáætlun

Málsnúmer 2013030343Vakta málsnúmer

Unnið að langtímaáætlun málefna sem heyra undir íþróttaráð.

Fundi slitið - kl. 16:00.