Bæjarráð

3352. fundur 21. febrúar 2013 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Ragnar Sverrisson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Inda Björk Gunnarsdóttir L-lista mætti í forföllum Odds Helga Halldórssonar.
Ragnar Sverrisson S-lista mætti í forföllum Loga Más Einarssonar.

1.Langtímaáætlun - búsetudeild

Málsnúmer 2013010300Vakta málsnúmer

Unnið að langtímaáætlun fyrir búsetudeild.
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar mætti á fundinn undir þessum lið.

2.Norðurorka - kynning á fyrirhugaðri vinnslu á metangasi

Málsnúmer 2013020063Vakta málsnúmer

Kynning á fyrirhugaðri vinnslu á metangasi til eldsneytisnotkunar á sorpurðunarstað á Glerárdal.
Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku og Stefán H. Steindórsson sviðsstjóri framkvæmdasviðs Norðurorku mættu á fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar Helga og Stefáni fyrir kynninguna.

3.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2012-2013

Málsnúmer 2012010167Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 14. febrúar 2013. Fundargerðin er í 11 liðum.

Bæjarráð vísar 1., 3., 6. og 9. lið til skipulagsdeildar, 4., 5. og 7. lið til framkvæmdadeildar, 8. lið a) og 10. lið til skóladeildar, 2. lið og 8. lið b) til búsetudeildar og 11. lið a) til framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar.

11. liður b) er lagður fram til kynningar.

4.Brálundur - stefna vegna breytingar á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018

Málsnúmer 2011100126Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, bæjarráð fól á fundi sínum þann 13. desember sl. bæjarstjóra og bæjarlögmanni að vinna áfram að málinu og leggja tillögur fyrir bæjarráð. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 31. janúar sl.
https://www.heradsdomstolar.is/default.aspx?pageid=347c3bb1-8926-11e5-80c6-005056bc6a40&id=c0d233a5-8fc6-4abb-968c-8f8f1f23c197
Bæjarráð samþykkir að áfrýja ekki dómi héraðsdóms Reykjavíkur E-4189/2011 og felur framkvæmdadeild að fjarlægja tengingu Brálundar við Miðhúsabraut.
Inda Björk Gunnarsdóttir L-lista vék af fundi kl. 11:45.

Fundi slitið - kl. 11:00.