Matsviðmið um sértækt húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk

Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum flokki - hámark stiga úr þessu mati eru 15 stig.

Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista þarf umsækjandi að vera metinn til að lágmarki
5 stiga. 

1. Húsnæðisstaða

Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum dálki - hámark stiga úr þessum kafla eru stig.

Húsnæðisstaða  Stig
Umsækjandi er með öruggt húsnæði, s.s. i eigin fasteign eða í leiguhúsnæði með meira en 6 mánaða samning og húsnæðið mætir þörfum umsækjanda 0
Umsækjandi býr hjá aðstandendum og ekki er brýn þörf á sértæku húsnæði 1
Umsækjandi býr í öruggu húsnæði, s.s. i eigin fasteign eða í leiguhúsnæði með meira en 6 mánaða samning en húsnæðið mætir ekki þörfum umsækjanda 2
Umsækjandi býr hjá aðstandendum og brýn þörf er á að hann fái sértækt húsnæði  2
Flutningur á milli þjónustuúrræða, s.s. á milli búsetuendurhæfingar, áfangaheimilis eða heimilis fyrir börn  2
Umsækjandi hefur dvalið á stofnun lengur en sex mánuði samfellt og er útskriftarfær 3

 

2. Félagslegar aðstæður

Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum dálki - hámark stiga úr þessum kafla eru 4 stig.

Félagslegar aðstæður Stig
Á ekki við 0
Umsækjandi fær ekki þann stuðning sem hann þarf í núverandi aðstæðum 2
Veruleg umönnunarbyrði sem skapar óviðunandi álag fyrir umsækjanda og
umönnunaraðila
4

 

3. þjónustuþörf

Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum dálki- hámark stiga úr þessum kafla eru 4 stig

þjónustuþörf Stig
Umsækjandi hefur verið með hámarksþjónustu skammtímavistunar í meira en 12 mánuði 2
Umsækjandi hefur verið vistaður tímabundið utan heimilis, eða að lágmarki í 3 mánuði á ári, vegna álags á umönnunaraðila 3
Umsækjandi er vistaður varanlega í neyðarvistun  4

 

4. Staða umsækjanda samkvæmt stuðningsþjónustumati

Aðeins er hægt að fá stig fyrir einn lið í hverjum dálki - hámark stiga úr þessum kafla eru 4 stig.

Staða umsækjanda samkvæmt stuðningsþjónustumati Stig
SIS 0-5 (ekki metinn í þörf fyrir sértækt húsnæðisúrræði)  0
SIS 6-8 (þarf 15-20 tíma á viku í stuðning)  2
SIS 9-10 (þarf verulegan stuðning 3
SIS 11-12A/B (þarf sólarhringsþjónustu) 4

 

Síðast uppfært 18. mars 2024