Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi sem staðsett er á þjónustu- og skipulagssviði annast menningarmál fyrir hönd Akureyrarbæjar. Teymið heldur meðal annars utan um Menningarsjóð, starfslaun listamanna, samninga við félög einstaklinga og stofnanir, stærri viðburði og fylgir eftir stefnumótun bæjarstjórnar á sviði menningarmála.
Forstöðumaður atvinnu- og menningarmála er Þórgnýr Dýrfjörð og verkefnastjóri menningarmála er Elísabet Ögn Jóhannsdóttir.
Menningarsjóður Akureyrarbæjar 2024
Auglýst er eftir umsóknum um verkefnastyrki, samstarfssamninga og starfslauna listamanna úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar í nóvember og er umsóknarfresturinn að lágmarki þrjár vikur. Sótt er um í gegnum þjónustugáttina. Allar frekari upplýsingar eru að finna í reglum sjóðsins og samþykkt um starfslaun listamanna. Fyrirspurnir vegna Menningarsjóðs skal senda á verkefnastjóra menningarmála hjá atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar í netfangið elisabet.ogn.johannsdottir@akureyri.is
Lokað er fyrir umsóknir fyrir árið 2024.
Tilfallandi styrkur Menningarsjóðs Akureyrarbæjar
Samkvæmt 3. gr. úthlutunar- og vinnureglna Menningarsjóðs Akureyrarbæjar er hægt að sækja um tilfallandi styrk. Um er að ræða verkefnastyrk í sveitarfélaginu Akureyrarbæ 75.000 kr., ferðastyrk utanlands 50.000 kr. eða ferðastyrk innanlands 25.000 kr. Hver listamaður getur einungis fengið einn tilfallandi styrk á ári. Fyrirspurnir vegna umsóknareyðublaðs og nánari upplýsinga skal senda á verkefnastjóra menningarmála hjá atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar í netfangið elisabet.ogn.johannsdottir@akureyri.is
Opið er fyrir umsóknir frá 1. janúar til 15. desember ár hvert eða á meðan fjármagn leyfir. Sótt er um í gegnum þjónustugáttina
ATH. Lokað er fyrir umsóknir um tilfallandi styrk úr Menningarsjóði. Opnað verður að nýju 1. janúar 2025.
Barnamenningarsjóður Akureyrarbæjar
Í síðasta lagi 1. október er opnað fyrir umsóknir í barnamenningarsjóðinn og er umsóknarfresturinn 10 vikur. Sótt er um í gegnum þjónustugáttina. Allar frekari upplýsingar eru að finna í verklagsreglum sjóðsins og á barnamenning.is. Fyrirspurnir vegna Barnamenningarsjóðs skal senda á verkefnastjóra menningarmála hjá atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar í netfangið elisabet.ogn.johannsdottir@akureyri.is
Verklagsreglur
Úthlutunar- og vinnureglur Menningarsjóðs Akureyrarbæjar
Verklagsreglur fyrir faghópa um viðurkenningu Húsverndarsjóðs Akureyrarbæjar og Byggingalistaverðlauna Akureyrarbæjar
Verklagsreglur um sumarstyrk ungra listamanna
Verklagsreglur um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri
Viðmiðunarreglur vegna afnota af Laxdalshúsi, Friðbjarnarhúsi og Gudmands Minde
Viðurkenningar
Bæjarlistamaður Akureyrarbæjar - viðurkenningar frá árinu 1990
Heiðursviðurkenning Menningarsjóðs Akureyrarbæjar - viðurkenningar frá árinu 1991
Byggingalistaverðlaun Akureyrarbæjar - viðurkenningar frá árinu 2000
Húsverndarsjóður Akureyrarbæjar - viðurkenningar frá árinu 1989
Stefnur og samþykktir
Menningarstefna Akureyrarbæjar 2013-2018
Safnastefna Akureyrarbæjar 2022-2026 - aðgerðaráætlun með safnastefnu 2022-2026
Samþykkt um listskreytingar og listaverkakaup á vegum Akureyrarbæjar
Samþykkt um Menningarsjóð Akureyrararbæjar
Samþykkt um starfslaun listamanna
Samþykkt fyrir Listasafnið á Akureyri
Samþykkt fyrir Héraðsskjalasafnið á Akureyri
Samþykkt fyrir Húsverndarsjóð Akureyrarbæjar