Bæjarráð

3318. fundur 03. maí 2012 kl. 09:00 - 12:06 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hlín Bolladóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Löggæslumál á Akureyri

Málsnúmer 2012040168Vakta málsnúmer

Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður og Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir stöðu löggæslumála á Akureyri.

Bæjarráð þakkar Birni Jósef og Daníel komuna á fundinn.

2.Breytt fyrirkomulag á skapandi sumarstörfum 2012

Málsnúmer 2012040080Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð samfélags- og mannréttindaráðs dags. 18. apríl 2012:
Tekin fyrir beiðni frá Kristjáni Bergmann umsjónarmanni Ungmenna-Húss um að Ungmenna-Húsið fái til ráðstöfunar þá fjármuni sem lagðir hafa verið í skapandi sumarstörf í gegnum sumarvinnu 17-25 ára. Ungmenna-Húsið geti þá hagað skapandi sumarstörfum þannig að þau nýtist þátttakendum betur. Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála sat fundinn undir þessum lið.
Samfélags- og mannréttindaráð tekur vel í erindið og vísar því til bæjarráðs.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.

3.Atvinnuátaksverkefni fyrir námsmenn og atvinnuleitendur í samvinnu við Vinnumálastofnun sumarið 2012

Málsnúmer 2012040163Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri kynnti þátttöku Akureyrarbæjar í verkefninu.

4.Atvinnuátak í samvinnu við Skógræktarfélag Íslands og Skógræktarfélag Eyfirðinga 2012

Málsnúmer 2012040162Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri kynnti þátttöku Akureyrarbæjar í verkefninu.

5.Atvinnuátak Akureyrarbæjar fyrir 17-25 ára sumarið 2012

Málsnúmer 2012050001Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri kynnti málið.

6.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2012

Málsnúmer 2012010167Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 26. apríl 2012. Fundargerðin er í 6 liðum.

Bæjarráð vísar 1. og 2. lið b) til skipulagsdeildar og 2. lið a), 3., 4. og 5. lið til framkvæmdadeildar.

7.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 228. og 229. fundar stjórnar Eyþings dags. 15. og 16. mars 2012 auk fundargerðar fundar stjórnar Eyþings og þingmanna Norðausturkjördæmis dags. 3. febrúar 2012.

8.Miðbraut 11 Hrísey - sala eignar

Málsnúmer 2012040123Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar dags. 27. apríl 2012:
Lagt fram kauptilboð dags. 23. apríl 2012 sem barst í eignina.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir söluna.
Sigfús Karlsson B-lista sat hjá við afgreiðslu þessa máls.

Bæjarráð samþykkir kauptilboðið.

9.Miðbraut 7 Hrísey - sala eignar

Málsnúmer 2012040144Vakta málsnúmer

5. liður í fundargerð stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar dags. 27. apríl 2012:
Tekið fyrir tilboð dags. 25. apríl 2012 í eignina.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir söluna.
Sigfús Karlsson B-lista sat hjá við afgreiðslu þessa máls.

Bæjarráð samþykkir kauptilboðið.

10.SS Byggir ehf - gatnagerðargjöld vegna Hálanda

Málsnúmer 2012040094Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi dags. 18. apríl 2012 frá Sigurði Sigurðssyni f.h. SS Byggis ehf þar sem óskað er eftir afstöðu Akureyrarbæjar um hvort skylt sé að greiða gatnagerðargjöld vegna fyrirhugaðra bygginga á landi félagsins sem skipt hefur verið út úr landi Hlíðarenda og ber nú heitið Hálönd.
Bæjarráð fól bæjarlögmanni, fjármálastjóra og skipulagsstjóra að leggja fram minnisblað um málið á fundi sínum þann 26. apríl sl.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð telur að skylt sé að greiða gatnagerðargjöld vegna fyrirhugaðra bygginga og felur bæjarlögmanni að svara bréfritara.

11.Leikfélag Akureyrar - samningur

Málsnúmer 2011080046Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dags. 26. apríl 2012:
Farið yfir drög að nýjum samningi við LA.
Meirihluti stjórnar Akureyrarstofu samþykkir samninginn fyrir sitt leyti með þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum.

Helena Þ. Karlsdóttir S-lista óskar bókað:
Mikilvægt er að á Akureyri sé starfandi atvinnuleikhús. Leikfélag Akureyrar hefur verið lyftistöng menningarlífs í bænum og laðað til sín mikinn fjölda áhorfenda, bæði bæjarbúa sem og gesti. Því tel ég að taka verði hinn mikla fjárhagsvanda LA föstum tökum, rétta eigi af fjárhag félagsins á sem stystum tíma og fara í árangursríkar aðgerðir. Það er mín skoðun að semja hefði átt við LA á grundvelli tillagna sem gerðu ráð fyrir að leikfélagið yrði skuldlaust eftir eitt ár. Samkvæmt fyrirliggjandi samningi er gert ráð fyrir lengri björgunartíma, meiri óvissu og meiri hætta er á að markmiðin náist ekki. Ég tel að bærinn sé í raun að taka á sig skuldir LA án þess að tryggt hafi verið að rekið verði metnaðarfullt atvinnuleikhús í bænum til framtíðar og greiði því ekki atkvæði með samningnum.

Meirihluti bæjarráðs samþykkir samninginn.

Hermann Jón Tómasson S-lista sat hjá við afgreiðslu.

Hermann Jón Tómasson S-lista óskar bókað:

Ég tek undir bókun fulltrúa S-lista í stjórn Akureyrarstofu og greiði því ekki atkvæði með samningnum.

12.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2012

Málsnúmer 2012040165Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til mars 2012.

13.Denver, Colorado - samskipti

Málsnúmer 2012040169Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að yfirlýsingu vegna samstarfs við Denverborg.
Von er á 18 manna sendinefnd frá Denver til Akureyrar miðvikudaginn 9. maí nk. vegna væntanlegs samstarfs.
Bæjarstjóri, forseti bæjarstjórnar og verkefnastjóri samskipta verða fulltrúar Akureyrarbæjar í samstarfinu.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög.

Fundi slitið - kl. 12:06.