Bæjarráð

3360. fundur 04. apríl 2013 kl. 09:00 - 11:35 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista mætti í forföllum Geirs Kristins Aðalsteinssonar.

1.Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2012

Málsnúmer 2012110180Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2012.
Hólmgrímur Bjarnason og Aðalsteinn Sigurðsson endurskoðendur frá Deloitte ehf mættu á fundinn undir þessum lið og skýrðu ársreikninginn.
Einnig sat Karl Guðmundsson verkefnastjóri hjá hagþjónustu fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð vísar ársreikningi Akureyrarbæjar fyrir árið 2012 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

2.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2012-2013

Málsnúmer 2012010167Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 21. mars 2013. Fundargerðin er í 3 liðum.

1. liður a), b) og c) eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

Bæjarráð vísar 2. lið til skipulagsdeildar og 3. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar.

3.Framkvæmdamiðstöð - tækjakaup 2013 - veghefill

Málsnúmer 2013010325Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dags. 22. mars 2013:
Lagðar voru fram niðurstöður útboðs í veghefil fyrir Framkvæmdamiðstöð, en útboðið var opnað 18. mars sl.
Framkvæmdaráð samþykkir að taka tilboði Malbikunar K-M ehf. Í samræmi við bókun framkvæmdráðs frá 15. febrúar sl. vísar framkvæmdaráð málinu til bæjarráðs með ósk um að færa kr. 12.250.000 úr eignasjóði fráveitu þannig að heildarfjármagnið til tækjakaupa verði kr. 57.350.000.

Bæjarráð samþykkir að færa kr. 12.250.000 af framkvæmdafé fráveitu í eignasjóð þannig að heildarfjármagn til tækjakaupa í eignasjóði verði kr. 57.350.000.  Þetta hefur ekki áhrif á heildarniðurstöðu áætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2013.

Bæjarráð samþykkir að gerður verði sérstakur viðauki vegna þessa.

4.Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - ársfundur 2013

Málsnúmer 2013030325Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dags. 13. mars 2013 frá Erlu Björgu Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra f.h. stjórnar SÍMEY þar sem boðað er til ársfundar miðvikudaginn 10. apríl nk. kl. 14:00 í húsnæði miðstöðvarinnar að Þórsstíg 4 á Akureyri.
Á fundinum fer fram stjórnarkjör og eru stofnaðilar beðnir um að tilnefna tvo aðila fyrir hvert stjórnarsæti, karl og konu.

Bæjarráð felur Ingunni Helgu Bjarnadóttur að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

Bæjarráð tilnefnir þau Ingunni Helgu Bjarnadóttur og Gunnar Frímannsson í stjórn SÍMEY.

5.Söngkeppni framhaldsskólanna 2013 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2013030162Vakta málsnúmer

8. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 21. mars 2013:
Erindi ódags. frá Öldu Karen Hjaltalín f.h. Sambands íslenskra framhaldsskóla þar sem óskað er eftir niðurfellingu á leigu í Íþróttahöllinni vegna Söngkeppni framhaldsskólanna sem haldin verður 19.- 21. apríl nk.
Íþróttaráð lýsir yfir ánægju með að Samband íslenskra framhaldsskóla komi að undirbúningi söngkeppninnar og að hún verði aftur haldin á Akureyri, nú með forvarnir og vímuefnalausa skemmtun að leiðarljósi. Ráðið vísar erindinu til afgreiðslu hjá bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir að styrkja viðburðinn sem nemur kr. 450.000 sem gengur upp í leigu í Íþróttahöllinni.

Sigurður Guðmundsson A-lista vék af fundi kl. 10:58.

Fundi slitið - kl. 11:35.