Sundlaugar

Sundlaugarnar eru griðastaður þar sem allir geta slakað á, stundað heilsurækt og leikið sér langt frá dagsins amstri. 
Akureyrarbær rekur fjórar sundlaugar, þar af eru tvær á Akureyri, ein í Grímsey og ein í Hrísey.

Sjá nánari upplýsingar um laugarnar hér fyrir neðan.

Verið hjartanlega velkomin í sundlaugar Akureyrar.

Hvað kostar í sund?

Hefur þú kynnt þér lýðheilsukortið?

Sundlaug Akureyrar

Sundlaug Akureyrar

Mynd af útilaugum Sundlaugar AkureyrarÞingvallastræti 21, 600 Akureyri
Sími: 461 4455
Netfang: sund@akureyri.is

Verð 2024:  
Fullorðnir 1.300 kr.
Fullorðnir (67 ára og eldri) 330 kr.
Börn (6-17 ára) 300 kr.
Sjá meira í gjaldskrá  

 

Sjá hvaða brautir eru fráteknar í Sundlaug Akureyrar (brautanýting).

Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís fyrir alla fjölskylduna. Á svæðinu er að finna tvær 25 metra útilaugar og 12,5 metra innilaug. Þrjár rennibrautir eru á svæðinu sem njóta mikilla vinsælda. Á útisvæði eru fjórir heitir pottar, tvær vaðlaugar og kaldur pottur. Í yfirbyggðum sal er volgur innipottur. Auk þess er á sumrin sólbaðsaðstaða og leiksvæði með gervigrasi
Vetraropnun 24. ágúst til 31. maí  
Mánudaga – föstudaga:  06:45 – 21:00
Laugardaga:  09:00 – 19:00
Sunnudaga:  09:00 – 19:00
Sumaropnun 1. júní til 23. ágúst  
Mánudaga – föstudaga: 06:45 – 21:00
Laugardaga:  08:00 – 21:00
Sunnudaga:  08:00 – 19:30
Afgreiðslutími páska / Easter opening hours
Skírdagur: 28. March: 09:00 – 20:00
Föstudagurinn langi: 29. March: 09:00 – 20:00
Laugardagur: 30. March: 09:00 – 20:00
Páskadagur: 31. March: 09:00 – 20:00
Annar í Páskum: 1. April: 09:00 – 19:00

 

Aðgengi fyrir alla:

Aðgengi hjólastóla að búningsklefum er gott. Búningsklefar eru með sérstök rými fyrir fatlað fólk sem þarf á aðstoð að halda við sundferðir. Þessir rými eru með góðu hjólastólaaðgengi.

Í Sundlaug Akureyrar er í boði einstaklingsklefi á 2. hæð byggingarinnar. Einstaklingsklefinn er aðgengilegur fyrir fatlaða og lyfta er á milli hæða. Í klefanum eru læstir skápar, hreyfanlegur bekkur og handsturta með stuðningshandfangi. Stuðningshandföng eru einnig við klósett.

Einstaklingsklefinn er opinn öllum sem um hann biðja.

Segllyfta er í boði í Sundlaug Akureyrar og einnig stólalyfta að innilaug, báðum útilaugunum og stórum heitum potti sem er 38°C.

Glerárlaug

Glerárlaug
Mynd af GlerárlaugHöfðahlíð
Sími: 462 1539
Netfang: glerarlaug@akureyri.is
Verð 2024:  
Fullorðnir 1.300 kr.
Fullorðnir (67 ára og eldri) 330 kr.
Börn (6-17 ára) 300 kr.
Sjá meira í gjaldskrá  

 

Vetraropnun 24. ágúst til 31. maí
Mánudaga – föstudaga:  6:45 – 8:00 og 18:00 – 21:00
Laugardaga:  9:00 - 14:30
Sunnudaga:  9:00 - 12:00
Sumaropnun 1. júní til 23. ágúst
Mánudaga – föstudaga: 6:45 – 21:00
Laugardaga:  9:00 – 14:30
Sunnudaga:  Lokað
Afgreiðslutími páska / Easter opening hours
Mán-Mið 25.-27. March: 06:45 – 21:00
Skírdagur: 28. March: 09:00 – 14:30
Föstudagurinn langi: 29. March: LOKAÐ (Closed)
Laugardagur: 30. March: 09:00 – 14:30
Páskadagur: 31. March: LOKAÐ (Closed)
Annar í Páskum: 1. April: LOKAÐ (Closed)

 

Glerárlaug er frábær innilaug sem hentar vel til sundkennslu barna og unglinga, auk allra annarra kosta sem innilaugar hafa upp á að bjóða. Á svæðinu eru einnig tveir heitir nuddpottar og vaðlaug auk útiklefa.

Aðgengi hjólastóla að búningsklefum er gott. Ofan í sundlaug er til staðar lyfta fyrir þá sem það þurfa. Færanleg lyfta er væntanleg til að hafa úti á pottasvæðinu til að aðstoða fatlað fólk við að fara ofan í og upp úr pottunum.

 

Íþróttamiðstöðin í Hrísey

Mynd af sundlaug og pottum í HríseyÍþróttamiðstöðin í Hrísey

Austurvegi 5
Sími: 461 2255

Verð 2024:  
Fullorðnir 1.300 kr.
Fullorðnir (67 ára og eldri) 330 kr.
Börn (6-17 ára) 300 kr.
Sjá meira í gjaldskrá  

 

Vetraropnun 24. ágúst til 1. júní  
Mánudagar: Lokað
Þriðjudaga-fimmtudaga 15:00 - 19:00
Föstudaga:  15:00 - 18:00
Laugardaga og sunnudaga:  13:00 - 16:00

 

Sumaropnun 1. júní til 23. ágúst  
Mánudaga – föstudaga: 10:30 – 19:00
Laugardaga og sunnudaga:  10:30 – 17:00
Afgreiðslutími páska / Easter opening hours
Skírdagur: 28. March: 13:00 – 16:00
Föstudagurinn langi: 29. March: 13:00 – 16:00
Laugardagur: 30. March: 13:00 – 16:00
Páskadagur: 31. March: 13:00 – 16:00
Annar í Páskum: 1. April: 13:00 – 16:00

 

 

Íþróttamiðstöðin í Hrísey er fjölnota íþróttamiðstöð sem býður upp á tækjasal til líkamsræktar og íþróttasal 12x20m þar sem hópar geta leigt tíma. Þar er fundarsalur fyrir minni fundi auk þess sem íþróttasalurinn er leigður út fyrir fundi og samkomur.

Í Hrísey er sérstakur búnings- og sturtuklefi fyrir fatlað fólk með góðu aðgengi út á sundlaugarsvæði fyrir hjólastóla. Engin lyfta er í laug eða pottum.

 

Sundlaugin í Grímsey

Mynd frá sundlauginni í GrímseySundlaugin í Grímsey

Sími: 467 3155

Verð 2024:  
Fullorðnir 1.300 kr.
Fullorðnir (67 ára og eldri) 330 kr.
Börn (6-17 ára) 300 kr.
Sjá meira í gjaldskrá  

 

Opnunartími  
Alla virka daga 17.00-18.15
Lokað um helgar  
Afgreiðslutími páska / Easter opening hours
Skírdagur: 28. March: 13:30 – 15:00
Föstudagurinn langi: 29. March: LOKAÐ (Closed)
Laugardagur: 30. March: 13:30 – 15:00
Páskadagur: 31. March: LOKAÐ (Closed)
Annar í Páskum: 1. April: LOKAÐ (Closed)

 


Sjá einnig auglýsingu í búðinni í Grímsey.

 

Í Grímsey er innanhúss sundlaug (12.5 x 6 m), með heitum potti.

Sundlaugin í Grímsey er ekki með séraðstöðu fyrir fatlað fólk. Innanhúss kemst hjólastóll um húsið en þar er innilaug og innipottur.

 

Síðast uppfært 28. febrúar 2024