Bæjarráð

3315. fundur 12. apríl 2012 kl. 09:00 - 10:59 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ólafur Jónsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Hermann Jón Tómasson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Í fjarveru formanns og varaformanns stýrði aldursforseti Ólafur Jónsson D-lista fundinum.

1.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2012

Málsnúmer 2012010167Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 29. mars 2012. Fundargerðin er í 3 liðum.

Bæjarráð vísar 2. og 3. lið til framkvæmdadeildar.

1. lið var svarað í viðtalstímanum.

2.Stapi lífeyrissjóður - ársfundur 2012

Málsnúmer 2012030230Vakta málsnúmer

Erindi dags. 26. mars 2012 frá Kára Arnóri Kárasyni f.h. stjórnar Stapa lífeyrissjóðs þar sem boðað er til ársfundar sjóðsins þriðjudaginn 8. maí nk. á Hótel Héraði, Egilsstöðum og hefst fundurinn kl. 14:00.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á ársfundinum.

3.Tækifæri hf - aðalfundur 2012

Málsnúmer 2012040004Vakta málsnúmer

Erindi dags. 30. mars 2012 frá Jóni Ingva Árnasyni f.h. Tækifæris hf þar sem boðað er til aðalfundar mánudaginn 16. apríl nk. á 3ju hæð að Strandgötu 3, Akureyri og hefst hann kl. 11:00.

Bæjarráð felur fjármálastjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.

4.Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (heildarlög), 657. mál

Málsnúmer 2012030265Vakta málsnúmer

Umræða um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (heildarlög) 657. mál.

Bæjarráð vísar málinu til frekari umræðu í bæjarstjórn.

5.Frumvarp til laga um veiðigjöld (heildarlög), 658. mál

Málsnúmer 2012040001Vakta málsnúmer

Umræða um frumvarp til laga um veiðigjöld (heildarlög), 658. mál.

Bæjarráð vísar málinu til frekari umræðu í bæjarstjórn.

6.Önnur mál

Málsnúmer 2012010085Vakta málsnúmer

Sigurður Guðmundsson A-lista greindi frá mikilvægi þess að bæjarstjórn geri fyrirvara við fyrirliggjandi línuleið Blöndulínu 3 varðandi útlit.
Málið verður á dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar.

Fundi slitið - kl. 10:59.