Laun og vinnutímabil

Vinnuskóli 14 og 15 ára sumarið 2024

Starfstímabil og vinnutími

Starfstímabilið fyrir 14 ára (2010) er frá 11. júní – 16. ágúst.

Vinnutíminn er frá 12:15 – 15:45 frá mánudegi til föstudags. 

Hver 14 ára unglingur getur unnið allt að 105  klst. 

Unglingar fæddir 2009 eru fyrir hádegi en þeir sem fæddir eru 2010 eru eftir hádegi.

Starfstímabil 15 ára (2009) er frá 11. júní - 16. ágúst.

Vinnutíminn er frá 8:00 – 11:30 frá mánudegi til föstudags. 

Hver 15 ára unglingur getur unnið allt að 120 klst. 

Tímakaup 2024

Laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2024 miðist við hlutfall af launaflokki 117 í kjarasamningi Einingar-Iðju og Sambands íslenskra sveitarfélaga

   
Tímakaup 14 ára unglinga 30% af launaflokki 117  798 kr.
Orlof 13,04% reiknast til viðbótar            104 kr.
Samtals      902 kr.
   
Tímakaup 15 ára unglinga     40%   af launaflokki 117                1064 kr.
Orlof 13,04% reiknast til viðbótar   139 kr. 
  Samtals   1203 kr.

   

Launagreiðslur

Laun verða greidd inn á launareikning í banka.

Mjög mikilvægt er að upplýsingar um banka, höfuðbók og númer reiknings séu réttar (ath. kortanúmer eru ekki bankareikningsnúmer).

Komi réttar upplýsingar um bankareikning ekki í tæka tíð fyrir útborgun, bíður launagreiðsla til næstu útborgunar.

Skattur

Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 2009 eða síðar, er 6% (4% tekjuskattur, 2% útsvar) af tekjum umfram frítekjumark barna sem er 180.000 kr.

Veikindi

14 og 15 ára unglingar eiga ekki veikindarétt á launum. 

Launaseðlar

Launaseðlar verða birtir á island.is 

Útborgun launa er fyrsti virki dagur mánaðar

Laun fyrir tímabilið 11.maí - 10. júní. verða greidd 30. júní

Laun fyrir tímabilið 11. júní - 10. júlí verða greidd 31. júlí.

Laun fyrir tímabilið 11. júlí - 10. ágúst verða greidd 1. september.

Vinnuskóli 16 og 17 ára sumarið 2023

Starfstímabil og vinnutími

Starfstímabilið hjá 16 ára er frá 11. júní til 16. ágúst. Vinnutíminn hjá 16 ára er 6 klst. á dag frá mánudegi til föstudags og getur hver unglingur unnið allt að 140 klst. Ekki er leyfilegt að fara fram yfir heildar tímann. Athugið að matartími telst ekki sem vinnutími. 

Starfstímabilið hjá 17 ára er frá 01. júní til 20. ágúst. Vinnutími 17 ára er 7 klst. á dag frá mánudegi til föstudags og getur hver unglingur unnið allt að 175 klst. Ekki er leyfilegt að fara fram yfir heildar tímann. Athugið að matartími telst ekki sem vinnutími.

Tímakaup 2024

16 ára fá greitt tímakaup skv. kjarasamningi SNS og Einingar-Iðju, 50% af launaflokk 117

17 ára fá greitt tímakaup skv. kjarasamningi SNS og Einingar-Iðju, 86% af launaflokk 118.

   
Tímakaup 16 ára unglinga  50% af launaflokki 117  1330 kr. 
Orlof 13,04% reiknast til viðbótar             173 kr. 
Samtals  1503 kr. 
Tímakaup 17 ára unglingar eru 86% af launaflokki 118  2.307 kr.
Orlof 13,04% reiknast til viðbótar   301  kr.
samtals   2.608 kr.

 

Launagreiðslur

Laun verða greidd inn á launareikning í banka.

Mjög mikilvægt er að upplýsingar um banka, höfuðbók og númer reiknings séu réttar (ath. kortanúmer eru ekki bankareikningsnúmer).

Komi upplýsingar um bankareikning ekki í tæka tíð fyrir útborgun, bíður launagreiðsla til næstu útborgunar. 

Persónuafsláttur

Unglingar sem verða 16 ára á árinu þurfa að skila upplýsingum um nýtingu persónuafslátts til Launadeildar svo ekki verði dregin staðgreiðsla af launum. Upplýsingarnar er að finna á skattur.is

Farið er inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar til þess að skrá upplýsingarnar: thjonustugatt2.akureyri.is

Rétt er að benda á mikilvægi þessa að upplýsingunum sé skilað tímanlega þ.e. í síðasta lagi viku fyrir útborgun svo ekki komi til frádráttar vegna staðgreiðslu.

Lífeyrissjóður

Lífeyrissjóður 4% er dreginn af launum um næstu mánaðamót eftir að 16 ára aldri er náð. Greitt er í Stapa lífeyrissjóð, mótframlag 11,5%. 

Veikindaréttur

Veikindaréttur er skv. kjarasamningum SNS grein 12.2.2 um tímavinnufólk.  Veikindadaga á launum og tímana fyrir þá þarf að skrá.

Veikindadagar eru taldir í heilum dögum. Hluti úr degi telst sem einn dagur. 

Launaseðlar

Launaseðlar verða birtir á island.is

Útborgun launa er fyrsti virki dagur mánaðar

Laun fyrir tímabilið 11. maí - 10. júní verður greidd 30. júní

Laun fyrir tímabilið 11. júní – 10. júlí verða greidd 31. júlí.

Laun fyrir tímabilið 11. júlí – 10. ágúst verða greidd 1. september.

Laun fyrir tímabilið 11. ágúst – 20. ágúst verða greidd 29. September

 

Síðast uppfært 17. apríl 2024