Bæjarráð

3358. fundur 21. mars 2013 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista mætti í forföllum Guðmundar Baldvins Guðmundssonar.

1.Vinnuskóli 2013 - laun

Málsnúmer 2013030134Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um laun í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2013.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista að laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2013 hækki um 3,25% frá fyrra ári og verði sem hér segir:

8. bekkur    (14 ára) kr. 368

9. bekkur    (15 ára) kr. 420

10. bekkur   (16 ára) kr. 553

10,17% orlof er greitt til viðbótar við tímakaup.


Sigurður Guðmundsson A-lista óskar bókað: Ég tel að laun unglinga séu of lág og þessi hækkun sé ekki nægileg.

2.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2012-2013

Málsnúmer 2012010167Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 14. mars 2013. Fundargerðin er í 7 liðum.
Bæjarráð vísar 1. og 7. lið til framkvæmdadeildar, 2. og 6. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar, 3. lið til skipulagsdeildar, 4. lið til skólanefndar og 5. lið til samfélags- og mannréttindadeildar.

3.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2013

Málsnúmer 2013020001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 804. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 1. mars 2013.

4.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð aukafundar Eyþings dags. 12. febrúar 2013 ásamt sóknaráætlun fyrir Norðurland eystra 2013.

5.Norðurorka hf - aðalfundur 2013

Málsnúmer 2013030116Vakta málsnúmer

Tölvupóstur dags. 13. mars 2013 frá Helga Jóhannessyni forstjóra Norðurorku hf þar sem hann f.h. stjórnar boðar til aðalfundar Norðurorku hf föstudaginn 22. mars 2013 kl. 14:00 í Hofi, Akureyri.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

6.Alþingiskosningar 2013

Málsnúmer 2013030028Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dags. 12. mars 2013 frá formanni kjörstjórnar Akureyrar vegna komandi alþingiskosninga þann 27. apríl nk. Þar kemur fram tillaga kjörstjórnar um að Akureyrarkaupstað verði skipt í tólf kjördeildir þannig að tíu verði á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Á Akureyri verði kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verði kjörstaður í Hríseyjarskóla og í Grímsey í félagsheimilinu Múla. Þá hefur kjörstjórnin á Akureyri ennfremur ákveðið að leggja til við bæjarráð að kjörfundur standi frá kl. 09:00 til kl. 22:00 á Akureyri, en frá kl. 10:00 til kl. 18:00 í Hrísey og Grímsey. Óskar kjörstjórn eftir því við bæjarráð að ofangreindar tillögur verði samþykktar.
Bæjarráð samþykkir tillögur kjörstjórnar.

Fundi slitið - kl. 11:00.