Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2011

Málsnúmer 2010070048

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3231. fundur - 15.07.2010

Hagsýslustjóri, Jón Bragi Gunnarsson leggur fram tillögu að fjárhagsáætlunarferli 2010 fyrir árið 2011.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að fjárhagsáætlunarferlinu.

Skólanefnd - 14. fundur - 16.08.2010

Lagt fram til kynningar minnisblað um fjárhagsáætlunarferli 2010 sem samþykkt hefur verið í bæjarráði.

Bæjarráð - 3236. fundur - 26.08.2010

Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri fór yfir tekjuþróun og forsendur fjárhagsáætlunar 2011.
Lagt fram til kynningar.

 

Bæjarráð - 3237. fundur - 02.09.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Bæjarráð samþykkir framlagðan fjárhagsramma fyrir aðalsjóð.

Bæjarráð - 3238. fundur - 09.09.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Skólanefnd - 18. fundur - 13.09.2010

Á fundinum var rætt um ýmis atriði sem snúa að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.

Bæjarráð - 3239. fundur - 16.09.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Skólanefnd - 19. fundur - 20.09.2010

Bæjarráð hefur samþykkt nýjan fjárhagsramma fyrir árið 2011. Nýr rammi fræðslu- og uppeldismála er kr. 4.194.799.000 sem felur í sér hagræðingu að upphæð kr. 122.000.000.
Lagt fram til kynningar.

Bæjarráð - 3240. fundur - 23.09.2010

Þegar hér var komið vék Halla Björk Reynisdóttir af fundi kl. 10.00.
Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Bæjarráð - 3241. fundur - 07.10.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Bæjarráð - 3243. fundur - 28.10.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Bæjarráð - 3244. fundur - 04.11.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Bæjarráð - 3245. fundur - 11.11.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.

Bæjarráð - 3246. fundur - 16.11.2010

Teknir fyrir málaflokkar 105, 113, 104 og 121. Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu og Gunnar Gíslason fræðslustjóri mættu á fundinn og skýrðu sína málaflokka.

Bæjarráð - 3247. fundur - 18.11.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar. Teknir fyrir málflokkar 108, 110, 111, 102 og 106.
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur, Kristín Sóley Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar mættu á fundinn undir þessum lið og skýrðu sína málaflokka.

Bæjarráð - 3248. fundur - 23.11.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2011.
Teknir fyrir málaflokkar 109,106,177,133,135,141 og 145.
Á fundinn mættu undir þessum lið Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri, Kristinn H. Svanbergsson íþróttafulltrúi, Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar og Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur og skýrðu sína málaflokka.

Bæjarráð - 3249. fundur - 25.11.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2011.
Teknir fyrir málaflokkar 131,143,147,163 og 173.
Á fundinn mættu undir þessum lið Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar og skýrðu sína málaflokka.
Einnig skýrði Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sinn málaflokk og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri fór yfir samstæðuyfirlit A og B hluta.

Bæjarráð - 3250. fundur - 27.11.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2011.

Bæjarráð - 3251. fundur - 02.12.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2011.

Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2011 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 3294. fundur - 07.12.2010

10. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 2. desember 2010:
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2011 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2011 til frekari yfirferðar í bæjarráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarráð - 3252. fundur - 09.12.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2011.
Hörður Blöndal hafnarstjóri og Pétur Ólafsson skrifstofustjóri Hafnasamlags Norðurlands mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið og fóru yfir fjárhagsáætlun Hafnasamlags Norðurlands 2011.
Einnig mætti Sigurður J. Sigurðsson deildarstjóri fjármáladeildar Norðurorku hf á fundinn undir þessum lið og fór yfir fjárhagsáætlanir Norðurorku hf og Fallorku ehf vegna ársins 2011.

Bæjarráð þakkar þeim Herði Blöndal, Pétri Ólafssyni og Sigurði J. Sigurðssyni fyrir kynningarnar.

Bæjarráð felur embættismönnum að vinna frekar úr tillögum bæjarráðs og að samræma launaáætlun í SAP að launaliðum í fjárhagsáætluninni.

Bæjarráð - 3253. fundur - 14.12.2010

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Bæjarráð - 3253. fundur - 14.12.2010

Rætt um tillögu að gjaldskrám Akureyrarbæjar 2011.

Bæjarráð - 3254. fundur - 16.12.2010

Lögð fram tillaga að gjaldskrám Akureyrarbæjar 2011.

Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrám 2011 og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð - 3254. fundur - 16.12.2010

13. liður í fundargerð bæjarstjórnar dags. 7. desember 2010:
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2011 til frekari yfirferðar í bæjarráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.

Hagsýslustjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem farið hefur fram á milli umræðna svo og þeim breytingum sem gerðar hafa verið á frumvarpinu.

Áætlunin tekur til eftirfarandi þátta:

Samstæðureikningur Akureyrarbæjar A og B-hluti

Rekstraryfirlit samstæðureiknings

Framkvæmdayfirlit Akureyrarbæjar

A-hluta stofnanir:

Aðalsjóður

Fasteignir Akureyrarbæjar

Framkvæmdamiðstöð

Eignasjóður gatna o.fl.

B-hluta stofnanir:

Fráveita Akureyrar

Félagslegar íbúðir

Strætisvagnar Akureyrar

Bifreiðastæðasjóður Akureyrar

Hafnasamlag Norðurlands

Framkvæmdasjóður Akureyrar

Gjafasjóður Hlíðar og Skjaldarvíkur

Byggingarsjóður Náttúrufræðistofnunar

Heilsugæslustöðin á Akureyri

Öldrunarheimili Akureyrar

Norðurorka hf

Bæjarráð vísar frumvarpinu til bæjarstjórnar til síðari umræðu og afgreiðslu og lítur svo á að með afgreiðslu frumvarpsins hafi verið afgreidd erindi og tillögur um fjárveitingar sem borist hafa bæjarráði og vísað hefur verið til gerðar fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn - 3295. fundur - 21.12.2010

7. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 16. desember 2010:
Lögð fram tillaga að gjaldskrám Akureyrarbæjar 2011.
Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrám 2011 og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að gjaldskrám Akureyrarbæjar 2011 með 9 samhljóða atkvæðum.

Hermann Jón Tómasson S-lista og Ólafur Jónsson D-lista sátu hjá við afgreiðslu.

Bæjarráð - 3279. fundur - 14.07.2011

Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri lagði fram til kynningar yfirlit um aukafjárveitingar á árinu 2011.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 10:00.

Bæjarráð - 3279. fundur - 14.07.2011

Lagt fram minnisblað dags. 7. júlí 2011 frá Jóni Braga Gunnarssyni hagsýslustjóra og Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra varðandi færslu fjárveitinga milli ára.

Bæjarráð heimilar færslu fjárveitinga milli ára hjá málaflokkunum Félagsþjónusta og Fræðsla- og uppeldismál og þakkar góðan rekstur á þessum málaflokkum.

Bæjarráð - 3293. fundur - 27.10.2011

Unnið að endurskoðun fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar vegna ársins 2011.

Bæjarráð vísar endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn - 3311. fundur - 01.11.2011

6. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 27. október 2011:
Bæjarráð vísar endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaða fjárhagsáætlun ársins 2011 með 6 samhljóða atkvæðum.

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista, Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista, Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista, Hermann Jón Tómasson S-lista og Ólafur Jónsson D-lista sátu hjá við afgreiðslu.