Bæjarráð

3241. fundur 07. október 2010 kl. 09:00 - 12:35 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Karl Guðmundsson bæjarritari
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Reglur um ráðningar starfsmanna sveitarfélaga

Málsnúmer 2010090157Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 24. september 2010 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem fram koma tilmæli til sveitarstjórna vegna reglna um ráðningar starfsmanna sveitarfélaga.

2.LSA - mótframlag launagreiðanda

Málsnúmer 2010090117Vakta málsnúmer

Erindi dags. 20. september 2010 frá Kára Arnóri Kárasyni fyrir hönd Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar varðandi mótframlag launagreiðanda vegna iðgjaldagreiðslna til LSA. Í erindinu kemur fram að á fundi stjórnar LSA þann 13. september sl. lagði fulltrúi Kjalar fram tillögu þess efnis að mótframlag til sjóðsins yrði hækkað úr 6% í 8%.

Bæjarráð samþykkir að hafa mótframlagið óbreytt að svo stöddu.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson fulltrúi B-lista tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu.

3.Garðyrkjufélag Íslands - gjöf til Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010090130Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 22. september 2010 frá Garðyrkjufélagi Íslands, félagið vill í tilefni af 125 ára afmæli þess færa Akureyrarbæ að gjöf vefjaræktað eintak af elsta innflutta garðatrénu á Íslandi. Tré þetta var gróðursett árið 1884.

4.Stytting hringvegarins - athugasemd við aðalskipulag Húnavatnshrepps og Blönduóssbæjar

Málsnúmer 2010060123Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar afgreiðsla bæjarstjórnar Blönduóssbæjar á athugasemdum við aðalskipulag Blönduóssbæjar 2010-2030 dags. 22. september 2010.

5.Eyþing - aðalfundur 2010

Málsnúmer 2010090142Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dags. 23. september 2010 frá Eyþingi þar sem boðað er til aðalfundar Eyþings dagana 8.- 9. október 2010 í Bátahúsinu á Siglufirði.

6.Fjármálaráðstefna sveitarfélaga - 2010

Málsnúmer 2010100006Vakta málsnúmer

Kynnt að fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin fimmtudaginn 14. og föstudaginn 15. október 2010 á Hilton Reykjavík Nordica hóteli.

7.Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - ársfundur 2010

Málsnúmer 2010090175Vakta málsnúmer

Erindi dags. 28. september 2010 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður föstudaginn 15. október 2010 kl. 12:00 á Hilton Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Þátttaka tilkynnist fyrir 12. október nk.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

8.Viðtalstímar bæjarfulltrúa október 2010 - maí 2011

Málsnúmer 2010100005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar áætlun um viðtalstíma bæjarfulltrúa frá október 2010 til maí 2011.
Áætlunin er birt á heimasíðu Akureyrarbæjar, slóðin er http://www.akureyri.is/stjornkerfid/baejarstjorn/

9.Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra 2011

Málsnúmer 2010090127Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra dags. 20. september 2010 ásamt samþykktri fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2011 og áætlaðri kostnaðarskiptingu milli sveitarfélaga.
Einnig lögð fram fundargerð 128. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra dags. 15. september 2010.

Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlunina fyrir sitt leyti.

10.Gleráreyrar 1 - frágangur lóðar - dagsektir

Málsnúmer 2010070074Vakta málsnúmer

12. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 29. september 2010:
Lagt fram bréf frá skipulagsstjóra, dags. 24. september 2010 til skipulagsnefndar, ásamt afriti af bréfi skipulagsstjóra til eiganda hússins nr. 1 við Gleráreyrar. Í bréfinu er gerð tillaga um tímafrest og beitingu dagsekta vegna frágangs á bakka vestast á lóðinni, sem er ófrágengin meðfram götunni Gleráreyrum og að hann verði til samræmis við samþykkta uppdrætti.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra og m.v.t. 1. mgr. 57 gr. skipulags- og byggingarlaga leggur nefndin til við bæjarráð að tillagan verði samþykkt og frestur til lagfæringa verði til 18. október 2010.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar og að frestur til lagfæringa verði til 18. október 2010.

11.Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa

Málsnúmer 2009090017Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð stjórnsýslunefndar dags. 29. september 2010:
Aftur tekin til umræðu drög að siðareglum fyrir kjörna fulltrúa en afgreiðslu þeirra var frestað á síðasta fundi.
Stjórnsýslunefnd óskar eftir að fastanefndir taki drögin til umræðu og skili athugasemdum til nefndarinnar fyrir 15. nóvember nk.

Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti.

12.Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2010-2011

Málsnúmer 2010090155Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu dags. 27. september 2010 þar sem fram kemur auglýsing til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Umsóknarfrestur er til 15. október 2010.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um byggðakvóta vegna Hríseyjar og Grímseyjar og kynna sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu sjónarmið Akureyrarbæjar þar að lútandi.

13.Menningarsamningur 2010 - breyting á greiðslu sveitarfélaga

Málsnúmer 2010090140Vakta málsnúmer

Erindi dags. 20. september 2010 frá Menningarráði Eyþings þar sem kynntur er nýr menningarsamningur fyrir árið 2010.

Bæjarráð samþykkir breytingar á fjárframlögum vegna samningsins og vísar fjármögnun til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

14.Árholt - lengd viðvera fyrir fötluð börn

Málsnúmer 2010080068Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 22. september 2010:
Undanfarið ár hefur verið í skoðun hvort skynsamlegt væri að sameina rekstur Árholts, sem er lengd viðvera fyrir fötluð börn á aldrinum 10-16 ára og verið hefur á forræði skóladeildar og Skammtímavistunar fatlaðra sem er þjónusta fyrir fötluð börn og ungmenni eftir kl. 17.00 á virkum dögum og allan daginn um helgar. Rætt hefur verið við forstöðumenn beggja stofnananna og hafa þeir lýst sig jákvæða gagnvart sameiningu. Ef af þessu verður flyst fjárhagsrammi Árholts yfir til búsetudeildar á nýju fjárhagsári en yfirumsjón rekstursins frá og með 1. september 2010. Skólanefnd fjallaði um málið á fundi sínum þann 23. ágúst sl. og samþykkti breytinguna fyrir sitt leyti.
Félagsmálaráð samþykkir þessa breytingu fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálaráðs og skólanefndar.

15.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2010

Málsnúmer 2010050056Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til ágúst 2010.

16.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2010 - endurskoðun

Málsnúmer 2009090066Vakta málsnúmer

Unnið að endurskoðun fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar vegna ársins 2010.

Bæjarráð vísar endurskoðun fjárhagsáætlunar 2010 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

17.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - 2011

Málsnúmer 2010070048Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

18.Önnur mál

Málsnúmer 2010010117Vakta málsnúmer

a) Sigurður Guðmundsson fulltrúi A-lista óskaði bókað að hann spurðist fyrir um lögmæti skipunar í stjórn Norðurorku hf.

b) Bæjarráð Akureyrar mótmælir harðlega þeim fyrirhugaða niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni sem boðaður er í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2011. Furðu vekur að um 85% af niðurskurðinum á sér stað utan höfuðborgarsvæðisins.
Niðurskurður sem boðaður er gagnvart heilbrigðisstofnunum á Norðurlandi er gróf aðför að búsetuskilyrðum á svæðinu og mun hafa víðtæk áhrif á lífsskilyrði þar.

Fundi slitið - kl. 12:35.