Bæjarráð

3279. fundur 14. júlí 2011 kl. 09:00 - 10:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Logi Már Einarsson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá

1.AkureyrarAkademían

Málsnúmer 2011060092Vakta málsnúmer

Fulltrúar AkureyrarAkademíunar - Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi þau Pétur Björgvin Þorsteinsson formaður, Sólveig Georgsdóttir gjaldkeri og Jóhann Ásmundsson ritari mættu á fund bæjarráðs og ræddu þá erfiðu fjárhagsstöðu sem félagið er í og framtíð þess.

Bæjarráð þakkar þeim Pétri, Sólveigu og Jóhanni fyrir komuna.

Oddur Helgi Halldórsson formaður mætti á fundinn kl. 09:08. Geir Kristinn Aðalsteinsson varaformaður stjórnaði fundi fram að þeim tíma.

2.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum

Málsnúmer 2010060027Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga L-listans (L) um breytingar á skipan varafulltrúa í stjórn Akureyrarstofu. Hlín Bolladóttir tekur sæti varamanns í stjórn Akureyrarstofu í stað Aðalbjargar Maríu Ólafsdóttur.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar 7. júní 2011.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

3.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir

Málsnúmer 2011020014Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar 787. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 27. maí og fundargerð 788. fundar dags. 24. júní 2011.

4.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 222. fundar stjórnar Eyþings dags. 31. maí 2011.

5.Verslunarmannahelgin 2011

Málsnúmer 2011070013Vakta málsnúmer

Erindi dags. 5. júlí 2011 frá Vinum Akureyrar þar sem óskað er eftir að opnunartími skemmtistaða verði lengdur um verslunarmannahelgina þannig að skemmtistaðirnir hafi leyfi til að hafa opið til kl. 03:00 aðfararnótt föstudags og til kl. 05:00 aðfararnótt laugardags, sunnudags og mánudags. Einnig er óskað eftir því að Vinir Akureyrar fái leyfi til að efna til unglingaskemmtunar í gamla Oddvitahúsnæðinu á laugardagskvöldinu frá kl. 23:00-03:00. Gert er ráð fyrir að boðið verði upp á strætisvagnaferðir heim strax að skemmtunum loknum líkt og áður hefur verið gert.

Með vísan 25. gr. í lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað samþykkir bæjarráð að heimila veitingastöðum skv. flokki III að hafa opið um verslunarmannahelgina sem hér segir: Aðfararnótt föstudags til kl. 03:00, aðfararnótt laugardags og sunnudags til kl. 05:00 og aðfararnótt mánudags til kl. 04:00. Bæjarráð telur ekki rök fyrir að auka opnunartíma aðfararnótt mánudags frekar en heimilt er í lögreglusamþykktinni á almennum frídögum.
Bæjarráð veitir leyfi til að efna til áfengislausra unglingaskemmtunar fyrir 16 ára og eldri á laugardagskvöldi frá kl. 23:00 til 03:00. Gert er ráð fyrir því að boðið verði upp á strætisvagnaferðir heim strax að unglingaskemmtuninni lokinni líkt og verið hefur. Bæjarráð vekur athygli á nýsamþykktum reglum um unglingadansleiki.

6.Gásakaupstaður ses - beiðni um endurnýjun á styrktarsamningi

Málsnúmer 2011070017Vakta málsnúmer

Erindi dags. 4. júlí 2011 frá Guðmundi Sigvaldasyni f.h. stjórnar Gásakaupstaðar ses þar sem óskað er eftir því að styrktarsamningur Akureyrarbæjar við Gásakaupstað ses verði endurnýjaður/framlengdur en hann rennur út um næstu áramót.

Bæjarráð vísar málinu til stjórnar Akureyrarstofu.

7.Brunabótafélag Íslands - styrktarsjóður EBÍ og fulltrúaráðsfundur EBÍ 2011

Málsnúmer 2011070036Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 4. júlí 2011 frá framkvæmdastjóra Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands þar sem tilkynnt er um að úthlutunarfé sjóðsins muni renna til Skaftárhrepps vegna þeirra hamfara sem þar hafa orðið í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum. Einnig er tilkynnt að aðalfundur Fulltrúaráðs EBÍ verði haldinn 12. október nk.

8.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2011 - aukafjárveitingar

Málsnúmer 2010070048Vakta málsnúmer

Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri lagði fram til kynningar yfirlit um aukafjárveitingar á árinu 2011.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 10:00.

9.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2011 - færsla fjárveitinga milli ára

Málsnúmer 2010070048Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dags. 7. júlí 2011 frá Jóni Braga Gunnarssyni hagsýslustjóra og Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra varðandi færslu fjárveitinga milli ára.

Bæjarráð heimilar færslu fjárveitinga milli ára hjá málaflokkunum Félagsþjónusta og Fræðsla- og uppeldismál og þakkar góðan rekstur á þessum málaflokkum.

10.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012 - fjárhagsáætlunarferli

Málsnúmer 2011070038Vakta málsnúmer

Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri lagði fram tillögu að fjárhagsáætlunarferli 2011 fyrir árið 2012.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.

11.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012 - yfirlit um fasteignamat

Málsnúmer 2011070038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um fasteignamat 2012.

12.Önnur mál

Málsnúmer 2011010003Vakta málsnúmer

Rætt um móttöku fyrir brotamálma og notaða hjólbarða í vesturhluta húsnæðis og á lóð við Óseyri 3.
Samkvæmt úttekt slökkviliðsstjóra er ekki talin mikil hætta á mengunarslysi frá starfseminni.

Fundi slitið - kl. 10:50.