Bæjarráð

3243. fundur 28. október 2010 kl. 09:00 - 10:26 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Guðmundsson bæjarritari
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Anna Hildur Guðmundsdóttir varafulltrúi A-lista boðaði forföll.

1.Viðtalstímar bæjarfulltrúa

Málsnúmer 2010010038Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 21. október 2010, fundargerðin er í tveimur liðum.

Bæjarráð felur fjármálastjóra að svara erindi í 1. lið og vísar 2. lið til skipulagsnefndar.

2.Eyþing - aðalfundur 2010

Málsnúmer 2010090142Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar ályktanir aðalfundar Eyþings 2010 sem haldinn var 8. og 9. október sl. ásamt niðurstöðum kosninga og samþykktum breytingum á lögum og samþykktum Eyþings.

3.Stjórnlagaþing kosning 27. nóvember 2010

Málsnúmer 2010090080Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dags. 19. október 2010 frá Helgu G. Eymundsdóttur formanni kjörstjórnar Akureyrar vegna komandi kosninga til stjórnlagaþings þann 27. nóvember nk. Þar kemur fram tillaga kjörstjórnar um að Akureyrarkaupstað verði skipt í fjórtán kjördeildir, tólf á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Gerð er tillaga um að á Akureyri verði kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verði kjörstaður í Grunnskólanum í Hrísey og að í Grímsey verði kjörstaður í félagsheimilinu Múla. Lagt er til að tíu kjörklefar verði í hverri kjördeild á Akureyri en tveir í Hrísey og í Grímsey. Þá hefur kjörstjórn ennfremur ákveðið að leggja til við bæjarráð að kjörfundur standi frá klukkan 09:00 til 22:00 á Akureyri, en frá klukkan 10:00 til 18:00 í Hrísey og í Grímsey. Óskar kjörstjórn eftir því við bæjarráð að ofangreindar tillögur verði samþykktar.

Bæjarráð samþykkir tillögur kjörstjórnar.

4.Stjórnlagaþing kosning 27. nóvember 2010 - undirkjörstjórnir

Málsnúmer 2010090080Vakta málsnúmer

Lagður fram listi með nöfnum fjörutíu og tveggja aðalmanna og fjörutíu og tveggja varamanna í undirkjörstjórnir við kosningu til Stjórnlagaþings þann 27. nóvember nk.

Bæjarráð vísar listanum til staðfestingar bæjarstjórnar.

5.Frímerkjasöfn í eigu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2010030089Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða úr uppboði á frímerkjasafni í eigu Akureyrarbæjar.

Bæjarráð felur félagsmálaráði að ráðstafa þeim fjárhæðum sem fengust úr uppboðinu í þágu eldri borgara á Akureyri samkvæmt samningi við ekkju gefanda frímerkjasafnsins.

Jafnframt felur bæjarráð bæjarritara að láta meta safn Axels Schiöth sem hann gaf Akureyrarbæ en andvirði þess safns skal renna til Lystigarðsins.

6.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - 2011

Málsnúmer 2010070048Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011.

Fundi slitið - kl. 10:26.