Bæjarráð

3245. fundur 11. nóvember 2010 kl. 08:15 - 11:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Karl Guðmundsson bæjarritari
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Dagskrá

1.TV-einingar - úthlutanir árið 2011

Málsnúmer 2010100135Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dags. 25. október 2010:
Úthlutanir TV-eininga vegna verkefna og hæfni árið 2011.
Í ljósi aðstæðna leggur kjarasamninganefnd til að ekki verði úthlutað TV-einingum vegna verkefna og hæfni árið 2011.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

2.Innheimtumál

Málsnúmer 2010100129Vakta málsnúmer

Rætt um innheimtumál hjá Akureyrarbæ.

3.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2010

Málsnúmer 2010050056Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til september 2010.

4.Strætisvagnar Akureyrar - ósk um kaup á notuðum strætisvagni 2010

Málsnúmer 2010050063Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dags. 5. nóvember 2010:
Minnisblað dags. 28. apríl 2010 frá Stefáni Baldurssyni forstöðumanni Strætisvagna Akureyrar um kaup á notuðum strætisvagni, verðtilboð í biðskýli og hugsanleg kaup á nýjum bíl fyrir ferliþjónustu fatlaðra.
Stefán Baldursson sat fundinn undir þessum lið.
Framkvæmdaráð samþykkir að veita forstöðumanni Strætisvagna Akureyrar heimild til að kaupa notaðan strætisvagn fyrir allt að 15 milljónir á árinu 2011. Framkvæmdaráð vísar ákvörðuninni til bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir að veita forstöðumanni Strætisvagna Akureyrar heimild til kaupa á notuðum strætisvagni fyrir allt að 15 milljónir á árinu 2011 og vísar fjárveitingunni til gerðar fjárhagsáætlunar 2011.

5.Sjúkratryggingar Íslands framlenging á samningi

Málsnúmer 2010110016Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dags. 5. nóvember 2010:
Lögð fram drög, ódags., um framlengingu á samningi milli Sjúkratrygginga Íslands og Akureyrarkaupstaðar um þjónustu sjúkraflutningamanna við sjúkraflug með sjúkraflugvélum innanlands frá og með 1. janúar 2011 til og með 31. desember 2011.
Framkvæmdaráð samþykkir drögin og vísar þeim til bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir framlengingu á samningnum.

6.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - 2011

Málsnúmer 2010070048Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.

7.Önnur mál

Málsnúmer 2010010117Vakta málsnúmer

Ólafur Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins óskar bókað:
Í febrúar í ár gerði Fallorka ehf frumathugun á kostum þess að virkja í efri hluta Glerár, eða svo kallaða Glerárvirkjun 2. Þessi frumathugun var kynnt bæjaryfirvöldum og sýndi þá ekki nægjanlegar fjárhagslegar forsendur fyrir framkvæmdinni. Nú hafa komið fram upplýsingar, m.a. frá Landsvirkjun, um að reikna megi með stighækkandi raforkuverði á næstu árum og eins að bæði hefur krónan styrkst og vextir lækkað að undanförnu. Ég óska því eftir að fá nýja útreikninga hjá Fallorku ehf á verkefninu og eins að Fallorka ehf kynni bæjarráði við hentugleika aðra vænlega kosti sem fyrirtækið hefur verið að skoða til að virkja.

Ólafur óskar einnig eftir að bókað verði að hann óski eftir að fá úttekt á stöðu hönnunar- og skipulagsverkefna hjá bænum.

Fundi slitið - kl. 11:15.