Bæjarstjórn

3305. fundur 07. júní 2011 kl. 16:00 - 18:27 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar
  • Hlín Bolladóttir
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Sigmar Arnarsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Logi Már Einarsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Í upphafi fundar bauð forseti Helga Snæbjarnarson L-lista og Petreu Ósk Sigurðardóttur B-lista velkomin á þeirra fyrsta fund í bæjarstjórn.

Því næst leitaði forseti afbrigða til að taka málið - Bæjarstjórn Akureyrar / breytingar í nefndum - á dagskrá og var það samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

1.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum

Málsnúmer 2010060027Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga Bæjarlistans (A) um breytingar á skipan fulltrúa framboðsins í barnaverndarnefnd og skólanefnd:

Barnaverndarnefnd:
Jóhann Gunnar Sigmarsson tekur sæti aðalmanns í stað Önnu Guðnýjar Júlíusdóttur.
Skólanefnd:
Jóhann Gunnar Sigmarsson tekur sæti varamanns í skólanefnd í stað Gísla Aðalsteinssonar.

Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Undirhlíð 1-3 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2011030057Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 18. maí 2011:
Staðgengill skipulagsstjóra lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíð - Miðholt. Breytingin felst í breytingu á kvöð um aldur eigenda í húsgerð F1 úr 55 ára í 50 ára. Tillagan er unnin af Kollgátu og dags. 1. maí 2011.
Um er að ræða breytingu á kvöð sem Akureyrarbær setti á húsin og liggur fyrir samþykki eigenda eigna Undirhlíðar 1 og 3 fyrir breytingu á kvöðinni um lækkun á aldri eigenda í húsinu.
Í ljósi þessa leggur meirihluti skipulagsnefndar til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Pálmi Gunnarsson A-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.

Logi Már Einarssonar S-lista vék af fundi bæjarstjórnar við umræðu og afgreiðslu þessa liðar vegna vanhæfis.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu meirihluta skipulagsnefndar með 10 samhljóða atkvæðum.

3.Undirhlíð - Miðholt, deiliskipulagsbreyting vegna spennistöðvar

Málsnúmer 2011050007Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 18. maí 2011:
Staðgengill skipulagsstjóra lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíð - Miðholt. Breytingin felst í að gerð er ný lóð fyrir spennistöð við Langholt á opnu svæði norðan Undirhlíðar 1. Tillagan er unnin af Kollgátu og dags. 1. maí 2011.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Logi Már Einarssonar S-lista vék af fundi bæjarstjórnar við umræðu og afgreiðslu þessa liðar vegna vanhæfis.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 10 samhljóða atkvæðum.

4.Sómatún 4. - Umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer BN100139Vakta málsnúmer

9. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 18. maí 2011:
Í framhaldi af umsóknum lóðarhafa Sómatúns 2 og 4 um stækkun lóðanna og bókun nefndarinnar 7. júlí 2010 lagði staðgengill skipulagsstjóra fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga Naustahverfis unna af Teiknum - ráðgjöf og hönnun dags. 5. maí 2011. Breytingin felst í stækkun lóðanna nr. 2 og 4 við Sómatún að göngustíg.
Þar sem einungis er um að ræða minniháttar breytingu á lóðum og er breyting sem varðar Akureyrarbæ og lóðarhafa leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Grímseyjargata 1 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2011040085Vakta málsnúmer

10. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 18. maí 2011:
Í framhaldi af bókun nefndarinnar þann 4. maí sl. lagði staðgengill skipulagsstjóra fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæða sunnan Glerár.
Breytingin felst í breytingu á nýtingarhlutfalli lóðarinnar. Tillagan er unnin af S.S.Á. teiknistofu dags. 9. maí 2011.
Þar sem einungis er um að ræða minniháttar breytingu á nýtingarhlutfalli til að gera milliloft innanhúss og er því breyting sem varðar Akureyrarbæ og lóðarhafa leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Miðbær norðurhluti - breyting á deiliskipulagi, Hólabraut - Laxagata

Málsnúmer SN110012Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 1. júní 2011:
Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir norðurhluta miðbæjar Akureyrar ásamt húsakönnun, sem var auglýst 9. mars með athugasemdarfresti til 20. apríl 2011. Auglýsingar birtust í Lögbirtingarblaðinu og Dagskránni. Skipulagsgögn voru aðgengileg í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.
Þann 17. febrúar 2011 var haldinn íbúafundur og fyrirhuguð deiliskipulagsbreyting kynnt.
Í viðtalstíma bæjarfulltrúa þann 3. mars 2011 komu fram tvær athugasemdir (sjá mál 2011020151).
1) Frímann Jónsson, er óánægður með að ÁTVR skuli halda rekstri áfram á þessum stað.
2) Jón Ólafsson, hefur efasemdir um að rétt leið sé farin.
Umsögn barst frá Fornleifavernd dags. 8. apríl 2011.
Engin athugasemd er gerð.

Fjórar athugasemdir bárust á auglýstum athugasemdatíma.
Sjá athugasemdir og svör í fundargerð skipulagsnefndar dags. 1. júní 2011.

Meirihluti skipulagsnefndar leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.
Auður Jónasdóttir, V-lista, greiðir atkvæði gegn tillögunni og óskar bókað að nauðsyn þess að L-listinn taki af skarið með framtíðarskipulag miðbæjarins í heild sé orðin ótvíræð. Ég tel það ófarsælt að taka einn bút fyrir í einu og ítreka þá skoðun mína að horfa þurfi á miðbæinn í heild við deiliskipulagningu.

Fram kom tillaga frá Sigurði Guðmundssyni A-lista um að fresta afgreiðslu og var hún samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.

Logi Már Einarsson S-lista og Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista sátu hjá við afgreiðslu.

7.Oddeyri suðurhluti. Reitur 6592 - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2010090006Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 1. júní 2011:
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar - reit 6592 var auglýst í Lögbirtingarblaði og Dagskránni þann 13. apríl og var athugasemdarfestur til 25. maí 2011. Skipulagsgögn voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar og þjónustuanddyri Ráðhúss.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

8.Naustahverfi 1. áf. - breyting á deiliskipulagi - Stekkjartún 26-28-30

Málsnúmer 2011050082Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 1. júní 2011:
Lögð fram tillaga dags. 21. maí 2011 að breytingu á deiliskipulagi lóðanna. Tillagan er frá Önnu Margréti Hauksdóttur f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf, kt. 710594-2019, sbr. bókun nefndarinnar 18. maí sl.
Skipulagsnefnd óskar eftir að stærð fyrirhugaðs húss verði sett inn á skilmálateikningu og leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. greinar skipulagslaga.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

9.Bæjarstjórnarfundir í júlí og ágúst 2011

Málsnúmer 2011050160Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga um bæjarstjórnarfundi í júlí og ágúst 2011:
Í samræmi við 7. og 47. grein samþykktar um stjórn Akureyrar og fundarsköp bæjarstjórnar samþykkir bæjarstjórn að í júlí og ágúst 2011 verði sumarleyfi bæjarstjórnar. Ekki verða haldnir fundir í bæjarstjórn í júlí og ágúst nema þörf krefji eða þriðjungur bæjarfulltrúa krefjist þess. Jafnframt er bæjarráði á þessum tíma heimiluð fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu og lög mæla ekki gegn.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

10.Kosning bæjarráðs til eins árs 2011-2012

Málsnúmer 2011050161Vakta málsnúmer

Kosning bæjarráðs til eins árs - 5 aðalmenn og 5 til vara.

Fram kom listi með nöfnum þessara aðalmanna:

     Oddur Helgi Halldórsson formaður
     Geir Kristinn Aðalsteinsson varaformaður
     Halla Björk Reynisdóttir 
     Hermann Jón Tómasson  

     Ólafur Jónsson

     Andrea Sigrún Hjálmsdóttir (áheyrnarfulltrúi) 
     Guðmundur Baldvin Guðmundsson (áheyrnarfulltrúi) 
     Sigurður Guðmundsson (áheyrnarfulltrúi) 

og varamanna:
     Tryggvi Gunnarsson
     Hlín Bolladóttir
     Inda Björk Gunnarsdóttir 
     Logi Már Einarsson
     Njáll Trausti Friðbertsson 

     Edward H. Huijbens (áheyrnarfulltrúi) 
     Petrea Ósk Sigurðardóttir (áheyrnarfulltrúi) 
     Anna Hildur Guðmundsdóttir (áheyrnarfulltrúi)

 

Þar sem ekki komu fram fleiri nöfn en kjósa átti lýsti forseti þetta fólk réttkjörið.

11.Kosning forseta og skrifara bæjarstjórnar til eins árs

Málsnúmer 2011050162Vakta málsnúmer

1. Kosning forseta bæjarstjórnar.
2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.
3. Kosning 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.

1. Kosning forseta bæjarstjórnar.

Við kosningu forseta hlaut bæjarfulltrúi Geir Kristinn Aðalsteinsson 7 atkvæði, 4 seðlar voru auðir.
Geir Kristinn Aðalsteinsson er því réttkjörinn forseti bæjarstjórnar til eins árs.

2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.
Við kosningu 1. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Halla Björk Reynisdóttir 6 atkvæði, 5 seðlar voru auðir.
Lýsti forseti Höllu Björk Reynisdóttur réttkjörna sem 1. varaforseta.

Við kosningu 2. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Sigurður Guðmundsson  6 atkvæði, 5 seðlar voru auðir.
Lýsti forseti Sigurð Guðmundsson réttkjörinn sem 2. varaforseta.

3. Kosning 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.
Fram kom tillaga með nöfnum þessara aðalmanna:
     Hlín Bolladóttir
     Ólafur Jónsson

og varamanna:
     Inda Björk Gunnarsdóttir
     Andrea Sigrún Hjálmsdóttir

Þar sem ekki komu fram fleiri nöfn en kjósa átti lýsti forseti þetta fólk réttkjörið. 

12.Sparisjóður Höfðhverfinga

Málsnúmer 2011050118Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 26. maí 2011:
Lögð fram viljayfirlýsing dags. 20. maí 2011 milli Sparisjóðs Höfðhverfinga, KEA svf, Sæness ehf og Akureyrarkaupstaðar um aukningu stofnfjár í Sparisjóði Höfðhverfinga.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista sat hjá við afgreiðslu.

Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi S-lista óskar bókað:
Ég er andvígur því að Akureyrarbær taki þátt í að auka stofnfé í Sparisjóði Höfðhverfinga. Bæjaryfirvöld hafa hingað til einungis lagt fjármuni til uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu, starfsemi sem ekki er í samkeppni við þau fyrirtæki sem fyrir eru. Nú er vikið frá þeirri stefnu og fjármunir bæjarbúa notaðir til að efla nýtt fjármálafyrirtæki sem starfa mun í beinni samkeppni við þau sem fyrir eru. Það er grundvallarregla í opinberri stjórnsýslu að gæta jafnræðis þegar ákvarðanir eru teknar. Það tel ég að sé ekki gert með þessari ákvörðun.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskar bókað:
Stefna Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er skýr varðandi það að við teljum almennt ekki rétt að Akureyrarkaupstaður fjárfesti í samkeppnisrekstri.
Hins vegar tel ég að í ljósi núverandi aðstæðna í samfélaginu geti stofnun sparisjóðs með aðkomu Akureyrarkaupstaðar styrkt samfélagið.
Því vil ég leggja áherslu á að aðkoma Akureyrarkaupstaðar sé einungis hugsuð til skamms tíma og bæjarbúum boðið að fjárfesta í stofnfé nýs sparisjóðs hið allra fyrsta.

Petra Ósk Sigurðardóttir B-lista óskar bókað:
Ég tel stofnun sparisjóðs góða hugmynd en hef efasemdir um að bærinn bindi fjármuni í þetta verkefni á sama tíma og grunnþjónusta þarf að sæta niðurskurði.
Því sit ég hjá við atkvæðagreiðslu þessa.

Bæjarstjórn samþykkir viljayfirlýsinguna með 10 atkvæðum gegn atkvæði Loga Más Einarssonar S-lista.

 

Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista óskar bókað:

Ég hef haft vissar efasemdir um viljayfirlýsingu þá sem hér er til umfjöllunar, sérstaklega ef horft er til þess aðhalds sem bærinn þarf að sýna í rekstri.  Hins vegar eftir að hafa skoðað málið frá öllum hliðum tel ég rétt að samþykkja hana.

 

Logi Már Einarsson S-lista óskar bókað:

Ég er andvígur því að Akureyrarbær taki þátt í því að auka stofnfé í Sparisjóði Höfðhverfinga.

Í seinni tíð hafa bæjaryfirvöld einungis lagt fjármuni til uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu, starfsemi sem ekki er í samkeppni við þau fyrirtæki sem fyrir eru.

Nú er vikið frá þeirri stefnu og fjármunir bæjarbúa notaðir til að efla fjármálafyrirtæki sem starfa mun í beinni samkeppni við þau sem fyrir eru.

Það er grundvallarregla í opinberri stjórnsýslu að gæta jafnræðis þegar ákvarðanir eru teknar og það tel ég að sé ekki gert með þessari ákvörðun.

13.Styrkir til breytinga á húsnæði vegna fötlunar

Málsnúmer 2011030148Vakta málsnúmer

7. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 19. maí 2011:
4. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 11. maí 2011:
Kristín Sóley Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar lögðu fram umsögn bæjarlögmanns um drög að reglum um styrki til að breyta húsnæði vegna fötlunar barna. Einnig voru lögð fram ný drög að reglum.
Félagsmálaráð samþykkir drögin með breytingum sem fram komu á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur með 11 samhljóða atkvæðum.

14.100 ár liðin frá kosningu fyrstu konu í bæjarstjórn Akureyrar

Málsnúmer 2011010047Vakta málsnúmer

Á árinu 2011 eru liðin 100 ár frá því Kristín Eggertsdóttir var fyrst kvenna kjörin í bæjarstjórn Akureyrar. Kristín var forstöðukona sjúkrahússins á Akureyri og var kjörin af kvennalista.
Hlín Bolladóttir bæjarfulltrúi og formaður samfélags- og mannréttindaráðs minntist tímamótanna.

15.Stefnuumræða í bæjarstjórn 2011 - samfélags- og mannréttindaráð

Málsnúmer 2011030070Vakta málsnúmer

Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs.
Hlín Bolladóttir bæjarfulltrúi og formaður samfélags- og mannréttindaráðs gerði grein fyrir starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs.
Almennar umræður urðu í kjölfarið.

 

Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Bæjarráð 19. og 26. maí 2011
Skipulagsnefnd 18. maí og 1. júní 2011
Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 18. og 25. maí og 1. júní 2011
Framkvæmdaráð 20. og 27. maí 2011
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 20. og 27. maí 2011
Stjórn Akureyrarstofu

Fundi slitið - kl. 18:27.