Kosning forseta og skrifara bæjarstjórnar til eins árs

Málsnúmer 2011050162

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3305. fundur - 07.06.2011

1. Kosning forseta bæjarstjórnar.
2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.
3. Kosning 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.

1. Kosning forseta bæjarstjórnar.

Við kosningu forseta hlaut bæjarfulltrúi Geir Kristinn Aðalsteinsson 7 atkvæði, 4 seðlar voru auðir.
Geir Kristinn Aðalsteinsson er því réttkjörinn forseti bæjarstjórnar til eins árs.

2. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar.
Við kosningu 1. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Halla Björk Reynisdóttir 6 atkvæði, 5 seðlar voru auðir.
Lýsti forseti Höllu Björk Reynisdóttur réttkjörna sem 1. varaforseta.

Við kosningu 2. varaforseta bæjarstjórnar hlaut bæjarfulltrúi Sigurður Guðmundsson  6 atkvæði, 5 seðlar voru auðir.
Lýsti forseti Sigurð Guðmundsson réttkjörinn sem 2. varaforseta.

3. Kosning 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.
Fram kom tillaga með nöfnum þessara aðalmanna:
     Hlín Bolladóttir
     Ólafur Jónsson

og varamanna:
     Inda Björk Gunnarsdóttir
     Andrea Sigrún Hjálmsdóttir

Þar sem ekki komu fram fleiri nöfn en kjósa átti lýsti forseti þetta fólk réttkjörið.