Sparisjóður Höfðhverfinga

Málsnúmer 2011050118

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3274. fundur - 26.05.2011

Lögð fram viljayfirlýsing dags. 20. maí 2011 milli Sparisjóðs Höfðhverfinga, KEA svf, Sæness ehf og Akureyrarkaupstaðar um aukningu stofnfjár í Sparisjóði Höfðhverfinga.

Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista sat hjá við afgreiðslu.

Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi S-lista óskar bókað:

Ég er andvígur því að Akureyrarbær taki þátt í að auka stofnfé í Sparisjóði Höfðhverfinga. Bæjaryfirvöld hafa hingað til einungis lagt fjármuni til uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu, starfsemi sem ekki er í samkeppni við þau fyrirtæki sem fyrir eru. Nú er vikið frá þeirri stefnu og fjármunir bæjarbúa notaðir til að efla nýtt fjármálafyrirtæki sem starfa mun í beinni samkeppni við þau sem fyrir eru. Það er grundvallarregla í opinberri stjórnsýslu að gæta jafnræðis þegar ákvarðanir eru teknar. Það tel ég að sé ekki gert með þessari ákvörðun.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskar bókað:

Stefna Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er skýr varðandi það að við teljum almennt ekki rétt að Akureyrarkaupstaður fjárfesti í samkeppnisrekstri. Hins vegar tel ég að í ljósi núverandi aðstæðna í samfélaginu geti stofnun sparisjóðs með aðkomu Akureyrarkaupstaðar styrkt samfélagið. Því vil ég leggja áherslu á að aðkoma Akureyrarkaupstaðar sé einungis hugsuð til skamms tíma og bæjarbúum boðið að fjárfesta í stofnfé nýs sparisjóðs hið allra fyrsta.

Petra Ósk Sigurðardóttir B-lista óskar bókað:

Ég tel stofnun sparisjóðs góða hugmynd en hef efasemdir um að bærinn bindi fjármuni í þetta verkefni á sama tíma og grunnþjónusta þarf að sæta niðurskurði. Því sit ég hjá við atkvæðagreiðslu þessa.

Bæjarstjórn - 3305. fundur - 07.06.2011

6. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 26. maí 2011:
Lögð fram viljayfirlýsing dags. 20. maí 2011 milli Sparisjóðs Höfðhverfinga, KEA svf, Sæness ehf og Akureyrarkaupstaðar um aukningu stofnfjár í Sparisjóði Höfðhverfinga.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista sat hjá við afgreiðslu.

Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi S-lista óskar bókað:
Ég er andvígur því að Akureyrarbær taki þátt í að auka stofnfé í Sparisjóði Höfðhverfinga. Bæjaryfirvöld hafa hingað til einungis lagt fjármuni til uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu, starfsemi sem ekki er í samkeppni við þau fyrirtæki sem fyrir eru. Nú er vikið frá þeirri stefnu og fjármunir bæjarbúa notaðir til að efla nýtt fjármálafyrirtæki sem starfa mun í beinni samkeppni við þau sem fyrir eru. Það er grundvallarregla í opinberri stjórnsýslu að gæta jafnræðis þegar ákvarðanir eru teknar. Það tel ég að sé ekki gert með þessari ákvörðun.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskar bókað:
Stefna Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er skýr varðandi það að við teljum almennt ekki rétt að Akureyrarkaupstaður fjárfesti í samkeppnisrekstri.
Hins vegar tel ég að í ljósi núverandi aðstæðna í samfélaginu geti stofnun sparisjóðs með aðkomu Akureyrarkaupstaðar styrkt samfélagið.
Því vil ég leggja áherslu á að aðkoma Akureyrarkaupstaðar sé einungis hugsuð til skamms tíma og bæjarbúum boðið að fjárfesta í stofnfé nýs sparisjóðs hið allra fyrsta.

Petra Ósk Sigurðardóttir B-lista óskar bókað:
Ég tel stofnun sparisjóðs góða hugmynd en hef efasemdir um að bærinn bindi fjármuni í þetta verkefni á sama tíma og grunnþjónusta þarf að sæta niðurskurði.
Því sit ég hjá við atkvæðagreiðslu þessa.

Bæjarstjórn samþykkir viljayfirlýsinguna með 10 atkvæðum gegn atkvæði Loga Más Einarssonar S-lista.

 

Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista óskar bókað:

Ég hef haft vissar efasemdir um viljayfirlýsingu þá sem hér er til umfjöllunar, sérstaklega ef horft er til þess aðhalds sem bærinn þarf að sýna í rekstri.  Hins vegar eftir að hafa skoðað málið frá öllum hliðum tel ég rétt að samþykkja hana.

 

Logi Már Einarsson S-lista óskar bókað:

Ég er andvígur því að Akureyrarbær taki þátt í því að auka stofnfé í Sparisjóði Höfðhverfinga.

Í seinni tíð hafa bæjaryfirvöld einungis lagt fjármuni til uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu, starfsemi sem ekki er í samkeppni við þau fyrirtæki sem fyrir eru.

Nú er vikið frá þeirri stefnu og fjármunir bæjarbúa notaðir til að efla fjármálafyrirtæki sem starfa mun í beinni samkeppni við þau sem fyrir eru.

Það er grundvallarregla í opinberri stjórnsýslu að gæta jafnræðis þegar ákvarðanir eru teknar og það tel ég að sé ekki gert með þessari ákvörðun.