Skipulagsnefnd

150. fundur 16. janúar 2013 kl. 08:00 - 12:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Helgi Snæbjarnarson formaður
  • Árni Páll Jóhannsson
  • Eva Reykjalín Elvarsdóttir
  • Edward Hákon Huijbens
  • Sigurður Guðmundsson
  • Stefán Friðrik Stefánsson áheyrnarfulltrúi
  • Tryggvi Már Ingvarsson áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Aðalskipulag Akureyrar 2005 - 2018, breyting þéttbýlismarka

Málsnúmer 2012060063Vakta málsnúmer

Tillaga að aðalskipulagsbreytingunni var auglýst í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga þann 17. október með athugasemdarfresti til 28. nóvember 2012. Auglýsingar birtust í Dagskránni, Fréttablaðinu og Lögbirtingablaðinu. Gögnin voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar, í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og hjá Skipulagsstofnun.
Tvær athugasemdir bárust:
1) Landslög f.h. SS-Byggis ehf. dagsett 28. nóvember 2012.
Skipulagsbreytingunni er mótmælt þar sem með henni er leitast við að klæða ólögmæta innheimtu gatnagerðargjalda í lögmætan búning hvað varðar byggingarsvæði Hálanda. Sjá nánar í bréfi.
2) Hörgársveit, dagsett 28. nóvember 2012.
Ekki er gerð athugasemd við breytingartillöguna að öðru leyti en því að sveitarfélagamörk Akureyrarkaupstaðar og Hörgársveitar séu ekki rétt dregin á uppdráttum.
Innkomnar umsagnir:
Bréf Umhverfisstofnunar dagsett 9. október 2012 vegna skipulagslýsingar og aðalskipulagsbreytingar. Ekki eru gerðar athugasemdir við skipulagslýsingu og auglýsingu aðalskipulagsbreytingar.
Í bréfi Skipulagsstofnunar dagsett 3. október 2012 er ekki gerð athugasemd við að breytingin verði auglýst en vakin athygli á að skoða þarf samræmi við lög nr. 75/2008 um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús.
Ekki barst umsögn frá Eyjafjarðarsveit.

Svör við athugasemdum:

1) Sjá svar við athugasemdinni í meðfylgjandi skjali merktu "Landslög, SS-Byggir - svör við athugasemdum dags. 16.1.2013".

2) Samkvæmt upplýsingum í minnisblaði dagsettu 15. mars 2010 frá Landmælingum Íslands eru sveitarfélagamörk Hörgársveitar og Akureyrarkaupstaðar leiðrétt í samræmi við ákvæði er koma fram í lögum nr. 107/1954 en þar er tilgreint að mörkin skulu vera við norðurmörk jarðanna Ytra-Krossaness, Grænhóls, Mýrarlóns og Hrappstaða (sjá viðhengi "Hörgársveit_11032010.pdf"). Á grundvelli þessara gagna samþykkir skipulagsnefnd breytingu á sveitarfélagamörkunum.

Eftir auglýsingartíma voru þéttbýlismörk norðan Hlíðarfjallsvegar færð að hluta til ofar í hlíðina þannig að þau fylgja nú fjallsgirðingu til norðurs.

Niðurstaða:

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

2.Aðalskipulag Akureyrar 2005 - 2018, breyting á íbúðar- og stofnanasvæði í Giljahverfi

Málsnúmer 2012100018Vakta málsnúmer

Skipulagslýsing var kynnt með auglýsingu í Dagskránni þann 17. október 2012. Lýsingin var aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar og í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar.
Þrjár umsagnir vegna skipulagslýsingarinnar bárust:
1) Skipulagsstofnun, dagsett 26. október 2012.
Ekki eru gerðar athugasemdir við skipulagslýsinguna. Bent er á að í breytingartillögunni þarf að gera grein fyrir þéttleika og yfirbragði byggðar og að komu að nýju lóðunum. Minnt er á að gera þarf grein fyrir áhrifum á umhverfið.
2) Umhverfisstofnun, dagsett 30. október 2012.
Í tillögunni ættu að koma fram upplýsingar um hljóðmengun og varnir. Einnig ætti að gera grein fyrir hvernig svæðið hefur nýst og hvert sú notkun færist.
3) Norðurorka, dagsett 6. nóvember 2012.
Athygli er vakin á mörgum lögnum samsíða Borgarbraut. Fyrirtækið áskilur sér rétt til að gera athugasemdir við deiliskipulagið þegar þar að kemur með tilliti til kostnaðar af verkinu o.fl.
Aðalskipulagsbreytingin var kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga með auglýsingu í Dagskránni 31. október 2012 og var tillagan aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar.
Aðalskipulagsbreytingin var auglýst í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga þann 28. nóvember 2012 með athugasemdarfresti til 9. janúar 2013. Auglýsingar birtust í Lögbirtingablaðinu, Dagskránni og Fréttablaðinu. Tillagan var aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar Akureyrar, í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og hjá Skipulagsstofnun.
Umsagnir bárust frá:
Skipulagsstofnun, bréf dagsett 17. janúar 2013 (barst eftir afgreiðslu skipulagsnefndar) þar sem ekki er gerð athugasemd við umhverfisskýrslu.
Umhverfisstofnun, bréf dagsett 14. janúar 2013 þar sem ekki er gerð athugasemd við breytingartillöguna.
Engin athugasemd barst á auglýsingartíma.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

3.Giljahverfi, þjónustuíbúðir við Borgarbraut, deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2012100043Vakta málsnúmer

Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Giljahverfsis var auglýst frá 28. nóvember 2012 til 9. janúar 2013. Samhliða var auglýst breytingarblað um deiliskipulag Borgarbrautar-Vestursíðu dagsett 27. október 2012.
Auglýsingar birtust í Dagskránni, Fréttablaðinu og Lögbirtingablaðinu auk þess sem þær voru aðgengilegar á heimasíðu skipulagsdeildar í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og hjá Skipulagsstofnun.
8 athugasemdir bárust og er útdráttur úr þeim í fylgiskjali merktu "Giljahverfi, þjónustuíbúðir við Borgarbraut, athugasemdir og svör dags. 16.1.2013". Þar er einnig að finna innkomnar umsagnir.

Afgreiðslu frestað.

4.Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018, athafna-, verslunar- og þjónustusvæði við Miðhúsabraut/Súluveg, skipulagslýsing

Málsnúmer 2012110148Vakta málsnúmer

Skipulagsstjóri lagði fram skipulagslýsingu fyrir athafna-, verslunar- og þjónustusvæði við Miðhúsabraut-Súluveg, dagsetta í janúar 2013 og unna af Árna Ólafssyni arkitekt hjá Teiknistofu Arkitekta, Gylfa Guðjónssyni og félögum ehf.
Skipulagslýsingin gildir bæði fyrir aðalskipulagsbreytingu svæðisins, sjá málsnr. 2012110148 og deiliskipulag svæðisins, sjá málsnr. 2012070028.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt almenningi og leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila um skipulagslýsinguna.

5.Brekkuskóli og nágrenni - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2012050138Vakta málsnúmer

Heildarendurskoðun á deiliskipulagi svæðis Brekkuskóla, Sundlaugar, Íþróttahallar og Vaxtarræktar var auglýst frá 12. september til 24. október 2012.
32 athugasemdir bárust og eru 29 af þeim samhljóða. Útdráttur úr innsendum athugasemdum er í meðfylgjandi skjali merktu "Brekkuskóli-athugasemdir og svör dags. 16.01 2013".
Tillögur dagsettar 7. desember 2012 frá Formi ehf. sem samþykktar voru 12. desember s.l. um leiðir til að tryggja enn frekar öryggi barna sem leið eiga um svæðið hafa verið innfærðar inn á uppdrátt. Að öðru leyti er vísað í tillögurnar vegna nánari útfærslu.

Skipulagsnefnd tekur tillit til hluta athugasemdanna. Sjá nánar svör við athugasemdum í meðfylgjandi skjali merktu "Brekkuskóli-athugasemdir og svör dags. 16.01 2013".

Edward H. Huijbens V-lista óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðsluna og ítrekar fyrri bókun.

Niðurstaða:

Meirihluti skipulagsnefndar leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan þannig breytt verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

6.Oddeyrartangi - umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2012121161Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. desember 2012 þar sem Jónas V. Karlesson f.h. Bústólpa ehf. sækir um stækkun byggingarreits við núverandi verslunar-, skrifstofu- og lagerhúsnæði Bústólpa á lóð með landnr. 149132 við Oddeyrartanga í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt nr. U24.002 frá Verkís hf.

Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

7.Hringteigur 2, VMA - umsókn um deiliskipulag

Málsnúmer 2012121230Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. desember 2012 frá Hjalta Jóni Sveinssyni þar sem hann f.h. Verkmenntaskólans á Akureyri, kt. 531083-0759, óskar eftir að gert verði deiliskipulag af lóð skólans við Hringteig 2 vegna mögulegrar stækkunar hans.

Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að gera tillögu að deiliskipulagi lóðar VMA og næsta nágrennis í samráði við forsvarsmenn VMA.

8.Lónsbakki - lýsing á deiliskipulagsverkefni

Málsnúmer 2013010065Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. janúar 2013 frá Guðmundi Sigvaldasyni sveitarstjóra Hörgársveitar þar sem lögð er fram lýsing á deiliskipulagsverkefni fyrir þéttbýlið á Lónsbakka.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við skipulagslýsinguna sem slíka en áskilur sér rétt til að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna á auglýsingartíma.

9.Íbúðarsvæði við Mýrarveg - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2012100157Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Mýrarveg var grenndarkynnt 7. desember 2012 með athugasemdafresti til 4. janúar 2013.
Engin athugasemd barst.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á grundvelli 4. gr.-e "Samþykktar um skipulagsnefnd" og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.

10.Fjaran og Innbærinn - deiliskipulagsbreyting Aðalstræti 4

Málsnúmer 2013010001Vakta málsnúmer

Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Fjörunnar og Innbæjarins vegna leiðréttingar á deiliskipulagsuppdrætti til samræmis við viðauka í greinargerð um fjölda íbúða. Einnig er gerð tillaga um fjögur bílastæði innan lóðar.
Tillagan er unnin af Loga Má Einarssyni frá Kollgátu ehf. og er dagsett 16. janúar 2013.

Einungis er um að ræða leiðréttingu á deiliskipulagsuppdrætti auk fjölgunar bílastæða innan lóðar, þannig að samræmi verði í upplýsingum um fjölda íbúða sbr. viðauka í greinargerð deiliskipulagsins og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa.

Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 2. málslið 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

11.Kjarnagata - umsókn um byggingarsvæði

Málsnúmer 2012121077Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. desember 2012 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Hyrnu ehf, óskar eftir að fyrirtækinu verði úthlutað svæði sem skilgreint er sem "opið svæði til sérstakra nota" í aðalskipulagi, í efri hluta Naustahverfis við Kjarnagötu. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Meirihluti skipulagsnefndar felur skipulagsstjóra að láta vinna breytingu á aðalskipulagi. Einnig er skipulagsstjóra falið að láta vinna tillögu að deiliskipulagi á svæði er afmarkast af Kjarnagötu í austri og golfvelli í vestri.

Sigurður Guðmundsson A-lista og Edward H. Hiujbens V-lista mótmæla þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru við fyrirhugaða úthlutun lóðar við Kjarnagötu. Mörkuð er ný stefna fyrir notkun þessarar lóðar án undangenginnar umræðu eða viðeigandi stefnumörkunar í skipulagsnefnd og greiða því atkvæði gegn afgreiðslunni. Áheyrnarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks taka undir þetta álit.

12.Miðhúsabraut/Súluvegur - beiðni um umsögn vegna olíuframleiðslu úr plasti

Málsnúmer 2013010059Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. desember 2012 þar sem Sigurður Ásbjörnsson f.h. Skipulagsstofnunar óskar eftir umsögn Akureyrarbæjar um hvort og á hvaða forsendum framleiðsla GPO ehf. á olíu úr plasti á lóð við Súluveg skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 3. viðauka í lögum um mat á umhverfisáhrifum. Einnig er óskað eftir að fram komi í umsögninni hvaða leyfum framkvæmdin er háð hvað varðar starfssvið umsagnaraðila.

Skipulagsnefnd telur meðfylgjandi skýrslu ekki veita fullnægjandi óháðar upplýsingar og niðurstöður og getur því á þessu stigi ekki tekið afstöðu til þess hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

13.Fjölnisgata 6a - umsókn um stækkun lóðar

Málsnúmer 2012121215Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. desember 2012, þar sem eigendur Fjölnisgötu 6A: Félag málmiðnaðarmanna, Girðingarvinna, Prís ehf., Múriðn ehf., Fjölnir ehf. og Dexta orkutæknilausnir ehf. sækja um stækkun lóðar í átt að Fjölnisgötu 4A.
Meðfylgjandi eru teikningar og umsókn.

Skipulagsnefnd vísar erindinu til vinnslu deiliskipulags svæðisins sem nú er verið að vinna.

14.Urðargil 22 - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2012020108Vakta málsnúmer

Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Giljahverfis vegna stækkunar lóðar Urðargils 22 um 5 m til suðvesturs til samræmis við lóðarstækkun Urðargils 20 og 24. Tillagan er unnin af Ágústi Hafsteinssyni frá Formi ehf. og er dagsett 9. janúar 2013.

Einungis er um að ræða lítilsháttar stækkun lóðar til suðvesturs í samræmi við lóðir við Urðargil 20 og 24 og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa.

Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 2. málslið, 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

15.Hlíðarlönd - umsókn um lóð fyrir vatnsgeyma

Málsnúmer 2013010055Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. janúar 2013 frá Jónasi V. Karlessyni þar sem hann fyrir hönd Norðurorku hf. óskar eftir, samhliða breytingu á deiliskipulagi akstursíþrótta- og skotsvæðis í Glerárdal sem nú stendur yfir, að gert verði ráð fyrir lóð vegna fyrirhugaðra vatnsgeyma Norðurorku hf. í samræmi við meðfylgjandi tillögu um stærð lóðar og afmörkun.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við 2.000 m³ vatnsgeymi ásamt lokahúsi á þessu svæði geti hafist nú í sumar.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í umsóknina og vísar erindinu til vinnslu deiliskipulags svæðisins sem nú er verið að vinna (sjá málsnr. SN080113).

Edward H. Huijbens V-lista vék af fundi við afgreiðslu á þessum lið.

16.Holtagata 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu

Málsnúmer 2012110092Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2012, þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Sigmundar Kristbergs Magnússonar sækir um leyfi fyrir byggingu bílgeymslu á lóð nr. 1 við Holtagötu, var grenndarkynnt frá 30. nóvember með athugasemdafresti til 27. desember 2012.
Engin athugasemd barst.

Skipulagsnefnd heimilar byggingu bílgeymslu á lóðinni og felur skipulagsstjóra að afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.

17.Innbærinn - umferðaröryggi og skilti

Málsnúmer 2012110002Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. nóvember 2012 frá Kristjáni Helgasyni f.h. Íbúasamtaka Innbæjarins þar sem óskað er eftir upplýsingum um framkvæmd umferðarmælinga og talningar svo og um niðurstöður umferðamælinga í Innbænum. Einnig er ítrekað að skilti á horni Aðalstrætis og Drottningarbrautar byrgi ökumönnum sýn og óskað er eftir úrbótum á því. Þá er óskað eftir þungatakmörkunum í Lækjargili á sambærilegan hátt og gert hefur verið við Spítalaveg.

Gerðar voru tvær hraðamælingar við Lækjargötu 9 í september 2012 sem sýna að meðalhraði bíla er 23 - 27 km/klst og 33 - 34 km/klst. Einnig voru gerðar hraðamælingar í desember 2012 við Hafnarstræti 31 sem sýna að meðalhraði bíla er 27 - 28 km/klst. Hraðamæling var gerð við Aðalstræti 42 sem sýnir að meðalhraði bíla er 30 - 31 km/klst. Hámarkshraði hverfisins er 30 km/klst. Mælingar sýna að umferðarhraði er ásættanlegur.

Óskað er eftir við framkvæmdadeild að skilti á horni Aðalstrætis og Drottningarbrautar verði staðsett þannig að það byrgi ekki ökumönnum sýn.

Skipulagsnefnd samþykkir að um Lækjargötu verði umferð vörubifreiða og annarra stærri bifreiða með leyfilegri heildarþyngd meiri en 12 t takmörkuð við flutninga að og frá aðliggjandi hverfum.

18.Glerá - gönguleiðir

Málsnúmer 2012121098Vakta málsnúmer

Bæjarráð vísaði til skipulagsnefndar 13. desember 2012 erindi úr viðtalstíma þar sem Hólmfríður S. Haraldsdóttir, Hamarstíg 32, óskar eftir að svæðið í kringum neðsta hluta Glerár verði klárað og að þar verði gerðar gönguleiðir, sem síðan yrðu tengdar við höfnina um Hjalteyrargötu.

Í gildi er deiliskipulag af neðsta hluta Glerár en þar er gert ráð fyrir gönguleiðatengingum við hafnarsvæðið sem tengjast öðrum meginstígum á svæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdadeild er stígagerðin á framkvæmdaáætlun 2015-2016.

19.Oddeyrargata - gatnamót Drottningarbrautar og Kaupvangsstrætis

Málsnúmer 2012121013Vakta málsnúmer

Bæjarráð vísaði til skipulagsnefndar 13. desember 2012 liðum b) og c) úr erindi Sigurðar Hlöðverssonar, Oddeyrargötu 5, úr viðtalstíma bæjarfulltrúa.
b) Oddeyrargata.
Hann vekur athygli á því að umferðin um götuna er gríðarlega mikil. Einnig bendir hann á að hugsa þurfi lausnir til að minnka umferð um götuna og að beina þurfi umferð um götur sem eru betur til þess fallnar að taka við umferðarþunga.
c) Gatnamót Drottningarbrautar og Kaupvangsstrætis
Sigurður telur að skynsamlegt gæti verið að setja hringtorg á gatnamót Drottningabrautar og Kaupangsstrætis til að létta á umferð þar.

Svör við fyrirspurn:

b) Í dag fer umferð ofan af Brekku um Kaupvangstræti, Oddeyrargötu, Þórunnarstræti og Dalsbraut. Með því er verið að dreifa umferðinni þannig að álagið verði sem jafnast og þannig til eins lítilla óþæginda og kostur er. Vegna landfræðilegra aðstæðna eru ekki aðrar leiðir í boði.

c) Skipulagsnefnd þakkar fyrir ábendinguna. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi svæðisins er ekki gert ráð fyrir hringtorgi á gatnamótunum.

20.Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - tilnefning fulltrúa

Málsnúmer SN100069Vakta málsnúmer

Tilnefning varamanns í samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra í stað Auðar Jónasdóttur.

Skipulagsnefnd tilnefnir Árna Pál Jóhannsson L-lista sem varamann í nefndina.

21.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2012

Málsnúmer 2012010231Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 12. desember 2012. Lögð var fram fundargerð 425. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 9 liðum.

Lagt fram til kynningar.

22.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2012

Málsnúmer 2012010231Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 20. desember 2012. Lögð var fram fundargerð 426. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 23 liðum.

Lagt fram til kynningar.

23.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2013

Málsnúmer 2013010008Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 9. janúar 2013. Lögð var fram fundargerð 427. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 13 liðum.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:00.