Bæjarráð

3747. fundur 11. nóvember 2021 kl. 08:15 - 11:40 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Gunnar Gíslason
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2022-2025

Málsnúmer 2021030524Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Kristín Baldvinsdóttir forstöðmaður hag- og áætlanadeildar og bæjarfulltrúarnir Andri Teitsson, Eva Hrund Einarsdóttir og Þórhallur Jónsson sátu fund bæjarráðs undir þessum lið. Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs og Þorlákur Axel Jónsson formaður fræðsluráðs sátu fundinn meðan áætlun fræðslumála var rædd.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2022-2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Þórhallur Jónsson kom til fundar kl. 09:42.
Eva Hrund Einarsdóttir vék af fundi kl. 09:49.

2.Forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs

Málsnúmer 2021110547Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum 15. júní 2021 breytingar á skipuriti Akureyrarbæjar. Frá 1. janúar 2022 verða verkefni færð frá samfélagssviði til fræðslusviðs og til verður fræðslu- og lýðheilsusvið. Samfélagssvið er lagt niður frá sama tíma.

Við breytingar á skipuriti sviðsins verður til nýtt starf forstöðumanns skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs.

Lagt er til að greitt verði stjórnendaálag fyrir nýtt starf forstöðumanns skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs samkvæmt gildandi reglum Akureyrarbæjar um stjórnendaálag forstöðumanna.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanadeildar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að greitt verði stjórnendaálag fyrir nýtt starf forstöðumanns skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs samkvæmt gildandi reglum Akureyrarbæjar um stjórnendaálag forstöðumanna.

3.Leiga á Skjaldarvík - leigusamningur og leigufjárhæðir 2020 og 2021

Málsnúmer 2020100133Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. október 2021 frá forsvarsmönnum Concepts ehf. þar sem lagðar eru fram nokkrar fyrirspurnir um leigu og samningsmál varðandi Gistiheimilið í Skjaldarvík.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

4.Bifreiðastæðasjóður Akureyrarbæjar - samþykkt

Málsnúmer 2021080919Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samþykkt fyrir bifreiðastæðasjóð Akureyrarbæjar.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar samþykktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

5.Bifreiðastæðasjóður - gjaldtaka

Málsnúmer 2019050628Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að gjaldskrá fyrir bifreiðastæðasjóð Akureyrarbæjar.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

6.Hafnarstræti 3 - fyrirspurn til skipulagssviðs um niðurfellingu fasteignagjalda

Málsnúmer 2021100741Vakta málsnúmer

Liður 5 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 27. október 2021:

Erindi dagsett 11. október 2021 þar sem Kristín Vala Breiðfjörð leggur inn fyrirspurn varðandi niðurfellingu fasteignagjalda fyrir hús nr. 3 við Hafnarstræti. Um er að ræða 120 ára gamalt hús sem verið er að gera upp.

Erindinu er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu en felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

7.Þjónustumiðstöð fyrir eldra fólk að Þursaholti 4 - aðkoma Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2021102306Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. október 2021 þar sem Hallgrímur Gíslason f.h. Félags eldri borgara á Akureyri reifar möguleika á aðkomu Akureyrarbæjar að rekstri þjónustumiðstöðvar fyrir eldra fólk að Þursaholti 4.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
Gunnar Gíslason og Sóley Björk Stefánsdóttir viku af fundi kl. 11:26.

8.Öldungaráð - fundargerðir lagðar fyrir bæjarráð

Málsnúmer 2019050503Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 15. fundar öldungaráðs dagsett 23. ágúst 2021.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fundinn undir þessum lið.

9.Ályktun bæjarráðs Árborgar um leikskólamál

Málsnúmer 2021110119Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar bókun Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29. október 2021 varðandi ályktun bæjarráðs Árborgar. Í ályktuninni var skorað á Sambandið að beita sér fyrir fullri viðurkenningu ríkisvaldsins á leikskólastiginu sem menntastofnum, m.a. með að skilgreina sveitarfélögum tekjustofn til að standa straum af kostnaði við rekstur leikskóla.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fundinn undir þessum lið.

10.Breyting á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfisins

Málsnúmer 2021020236Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar bókun Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29. október 2021 þar sem sveitarstjórnir um allt land eru hvattar til að hefja nú þegar undirbúning fyrir gildistöku lagabreytinga um hringrásarhagkerfi sem taka gildi 1. janúar 2023.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fundinn undir þessum lið.

11.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2021

Málsnúmer 2021020095Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 901. og 902. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsettar 24. september og 29. október 2021.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

12.Stjórnsýslubreytingar 2021

Málsnúmer 2021041274Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir stöðu mála.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 11:40.