Umhverfis- og mannvirkjaráð

90. fundur 27. nóvember 2020 kl. 08:15 - 11:00 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Tryggvi Már Ingvarsson
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Tryggvi Már Ingvarsson B-lista mætti í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.

1.Bílastæðasjóður - gjaldtaka

Málsnúmer 2019050628Vakta málsnúmer

Daði Baldur Ottósson samgönguverkfræðingur á samfélagssviði EFLU kynnti fyrir ráðinu hugmyndir að útfærslu gjaldtöku á bílastæðum í miðbæ Akureyrar.

Pétur Ingi Haraldsson sviðstjóri skipulagssviðs, Eggert Þór Óskarsson forstöðumaður fjárreiðna, Eiríkur Jónasson verkefnastjóri viðhalds gatna og Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar fyrir kynninguna og felur embættismönnum að vinna málið áfram.

2.Strætisvagnar Akureyrar - kaup á strætisvagni

Málsnúmer 2020110821Vakta málsnúmer

Minnisblað varðandi útboð á metan strætisvagni lagt fyrir ráðið.

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í útboð á einum metan strætisvagni með fyrirvara um að það rúmist innan fjárhagsáætlunnar.

3.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021

Málsnúmer 2020080605Vakta málsnúmer

Gjaldskrá yfir tæki umhverfismiðstöðvar lögð fyrir ráðið.

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða gjaldskrá.

4.Naustahverfi 6. og 7. áfangi

Málsnúmer 2017080054Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla varðandi uppbyggingu 6. og 7. áfanga Naustahverfis.

5.Leikskólinn Klappir við Glerárskóla

Málsnúmer 2018050021Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi breytta vísitölu vegna breyttra skattreglna um endurgreiðslu VSK af vinnu á byggingastað.

6.Strandgata 17 - framtíð hússins

Málsnúmer 2020110144Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi mögulegar breytingar á Strandgötu 17.
Umhverfis- og mannvirkjaráð er samþykkt því að skoðaður verði möguleikinn á því að selja húsið með þeirri kvöð að vesturhluti byggingarinnar verði rifinn.

7.Rekstur leiguíbúða

Málsnúmer 2020100386Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi aukinn kostnað við rekstur og viðhald leiguíbúða Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir viðauka að upphæð kr. 30 milljónir vegna aukins kostnaðar vegna slæms ástands á þeim íbúðum sem komið hafa inn til leiguskipta á árinu.

8.Þórunnarstræti/Búðartröð

Málsnúmer 2020050106Vakta málsnúmer

Skilamat á framkvæmdum við gatnamót Þórunnarstrætis og Búðartraðar.

9.Hrísey - brimvarnargarður

Málsnúmer 2020110367Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi brimvarnargarð í Hrísey.

10.Skógræktarfélag Eyfirðinga - samningur

Málsnúmer 2019090381Vakta málsnúmer

Lögð fyrir ráðið drög að framlengingu á samningi við Skógræktarfélag Eyfirðinga.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samningsdrögin og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga til samninga.

11.Loftgæðamál og aðgerðaáætlun í Akureyrarbæ

Málsnúmer 2018110215Vakta málsnúmer

Viðbragðsáætlun gegn loftmengun á Akureyri kynnt fyrir ráðinu.

12.Íþróttadeild - endurnýjun gólfþvottavéla í Íþróttahúsi Síðuskóla og Íþróttahöllinni

Málsnúmer 2020110083Vakta málsnúmer

Tekin fyrir ósk frístundaráðs um endurnýjun á gólfþvottavélum í Íþróttahöllina og Íþróttahús Síðuskóla að upphæð 4,4 m.kr. úr áhalda- og búnaðarsjóði UMSA.
Umhvefis- og mannvirkjaráð samþykkir beiðnina og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram.

13.Stöðuskýrslur rekstrar UMSA

Málsnúmer 2020050097Vakta málsnúmer

Lögð fyrir ráðið drög að nýrri tegund stöðuskýrslu rekstrar UMSA.

14.Verkfundargerðir 2020

Málsnúmer 2020010277Vakta málsnúmer

Lagðar fyrir ráðið verkfundagerðir vegna framkvæmda á sviðinu.

Fundi slitið - kl. 11:00.