Strætisvagnar Akureyrar - kaup á strætisvagni

Málsnúmer 2020110821

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 90. fundur - 27.11.2020

Minnisblað varðandi útboð á metan strætisvagni lagt fyrir ráðið.

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í útboð á einum metan strætisvagni með fyrirvara um að það rúmist innan fjárhagsáætlunnar.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 96. fundur - 12.03.2021

Minnisblað dagsett 11. mars 2021 varðandi opnun tilboða í útboði um kaup á metan strætisvagni en eitt tilboð barst.

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundin undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Kletts og ganga til samninga um kaup á metan strætisvagni að upphæð kr. 42.201.890.