Velferðarráð

1272. fundur 21. febrúar 2018 kl. 14:00 - 17:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Erla Björg Guðmundsdóttir formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA
  • Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs
  • Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Dagskrá
Fundurinn hófst við Fjölsmiðjuna að Furuvöllum 13 kl. 14:00.

1.ÖA - gæðamatskvarðar - RAI

Málsnúmer 2016020245Vakta málsnúmer

Lögð fram ný samantekt um þróun gæðavísa hjá ÖA. Slík samantekt hefur reglulega verið unnin og nýtt innan heimilisins en er nú í annað sinn líka birt á heimasíðu ÖA eins og áformað var að gera árlega.

Á fundinn mætti Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA og kynnti samantekt frá desember 2017 á gæðavísum skv. RAI mati ÖA fyrir árið 2017 og fyrri ár.

Einnig mætti Ingi Þór Ágústsson forstöðumaður Birki-, Lerki-, Reyni- og Skógarhlíðar og kynnti innanhúss samantekt um viðbrögð og aðgerðir í kjölfar nóró-sýkingar sl. haust.

2.Búsetusvið - skammtímavistun reglur 2018

Málsnúmer 2017060127Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá fundar velferðarráðs þann 7. febrúar sl. Framhald umræðu um breytingar á reglum um skammtímavistun. Breytingarnar miða að því að tryggja forgang yngri þjónustuþega að þjónustunni og að skerpa á reglum um heimsóknir m.t.t. hagsmuna annarra notenda þjónustunnar.
Velferðarráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar áfram til notendaráðs.

3.Lautin - endurnýjun þjónustusamnings 2018

Málsnúmer 2017120491Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að rekstrarsamningi við Geðverndarfélag Akureyrar vegna reksturs Lautarinnar - athvarfs fyrir geðfatlaða.
Velferðarráð felur Jóni Hróa Finnssyni sviðsstjóra búsetusviðs að ganga frá samningi við Geðverndarfélag Akureyrar um rekstur Lautarinnar.

4.Umsókn um félagslega heimaþjónustu

Málsnúmer 2017090035Vakta málsnúmer

Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs fór yfir stöðu málsins.
Afgreiðsla málsins er færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

5.Fjölsmiðjan á Akureyri - rekstrarsamningar 2012-2020

Málsnúmer 2014110246Vakta málsnúmer

Velferðarráð heimsótti Fjölsmiðjuna á Akureyri og fékk kynningu á starfseminni.
Velferðarráð þakkar fyrir góða kynningu á starfseminni.

6.Reglur um úthlutun leiguíbúða Akureyrarbæjar 2013 - 2016 - 2018

Málsnúmer 2013040041Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingum á reglum um leiguíbúðir Akureyrarbæjar.

Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Málinu er frestað.

7.Sérstakur húsnæðisstuðningur - reglur

Málsnúmer 2016120021Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingu á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.

Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Málinu er frestað.

8.Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi

Málsnúmer 2017120160Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu vegna miðstöðvar þolenda á Norðurlandi.
Velferðarráð lýsir sig meðmælt undirritun viljayfirlýsingarinnar miðað við þær forsendur sem þar koma fram.

9.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2017

Málsnúmer 2017010088Vakta málsnúmer

Lögð fram og kynnt rekstraryfirlit allra málaflokka, fjölskyldusviðs, búsetusviðs, Öldrunarheimila Akureyrar og velferðarráðs. Yfirlitin miða við stöðu bókhalds ársins 2017 pr. 20 febrúar sl.

Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.

10.CONNECT - verkefnið

Málsnúmer 2014060231Vakta málsnúmer

Skýrsla verkefnahópa um velferðartækni lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:30.