Velferðarráð

1249. fundur 15. mars 2017 kl. 14:00 - 16:45 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Róbert Freyr Jónsson varaformaður
  • Valdís Anna Jónsdóttir
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs
  • María Sigurbjörg Stefánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María S. Stefánsdóttir
Dagskrá
Valdís Anna Jónsdóttir S-lista mætti í forföllum Erlu Bjargar Guðmundsdóttur.
Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi Æ-lista boðaði forföll svo og varamaður hennar.

1.ÖA - stefna og starfsemi

Málsnúmer 2013010214Vakta málsnúmer

Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA lagði fram og kynnti uppfært skorkort ÖA fyrir tímabilið 2013-2016.
Velferðarráð þakkar kynninguna.

2.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2017

Málsnúmer 2017010088Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar rekstraryfirlit búsetusviðs, fjölskyldusviðs og Öldrunarheimila Akureyrarbæjar fyrir janúar 2017.

Lúðvík Freyr Sæmundsson fjármálastjóri ÖA, Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs og Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs sátu fundinn undir þessum lið.

3.Samþykktir fastanefnda 2017

Málsnúmer 2017020082Vakta málsnúmer

Samþykkt fyrir velferðarráð aftur á dagskrá. Málinu var frestað á fundi ráðsins 15. febrúar sl.
Velferðarráð samþykkir breytingar fyrir sitt leyti og mun Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs fylgja málinu eftir.

4.Velferðarráð - vinabæjasamskipti 2017

Málsnúmer 2017030126Vakta málsnúmer

Fyrirhugað er að halda árlegan vinabæjafund á sviði heilbrigðis- og félagsmála á Akureyri árið 2017.

Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs kynnti stöðu mála við undirbúning hans.

Einnig lagt fram til kynningar boð á vinabæjafund um málefni fatlaðs fólks sem haldinn verður í Västerås í Svíþjóð 31. maí - 2. júní nk.
Velferðarráð er almennt hlynnt þátttöku í vinabæjasamstarfi.

5.Búsetudeild - ársskýrsla 2016

Málsnúmer 2017020137Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að ársskýrslu búsetudeildar fyrir árið 2016.

Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.

6.Búsetusvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2017030128Vakta málsnúmer

Kynntar tillögur kjarasamninganefndar um breytingar á skipuriti búsetusviðs.
Velferðarráð samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti og vísar kostnaðarauka vegna hennar til bæjarráðs.

7.Fjölskyldusvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2017030129Vakta málsnúmer

Kynntar tillögur kjarasamninganefndar um breytingar á skipuriti fjölskyldusviðs.
Velferðarráð samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti og vísar kostnaðarauka vegna hennar til bæjarráðs.

8.Fjárhagserindi 2017 - áfrýjanir

Málsnúmer 2017010078Vakta málsnúmer

Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti áfrýjun varðandi fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Jón Hrói Finnsson vék af fundi kl. 16:15.

9.Fjárhagsaðstoð 2017

Málsnúmer 2017010094Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu tvo mánuði ársins.

10.Fjárhagsáætlun 2017- velferðarráð

Málsnúmer 2016080074Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit um breytingu á fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs vegna flutnings skólaþjónustu til fræðslusviðs.
Velferðarráð samþykkir breytingu á fjárhagsáætlun ársins 2017.

Fundi slitið - kl. 16:45.