Búsetusvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2017030128

Vakta málsnúmer

Velferðarráð - 1249. fundur - 15.03.2017

Kynntar tillögur kjarasamninganefndar um breytingar á skipuriti búsetusviðs.
Velferðarráð samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti og vísar kostnaðarauka vegna hennar til bæjarráðs.

Kjarasamninganefnd - 5. fundur - 07.04.2017

Umfjöllun um tillögu að breytingu á skipuriti búsetusviðs sem samþykkt var á fundi velferðarráðs 15. mars 2017.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns stoðþjónustu á búsetusviði.

Bæjarráð - 3554. fundur - 04.05.2017

2. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 7. apríl 2017:

Umfjöllun um tillögu að breytingu á skipuriti búsetusviðs sem samþykkt var á fundi velferðarráðs 15. mars 2017.

Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns stoðþjónustu á búsetusviði.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar um að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns stoðþjónustu á búsetusviði.

Preben Jón Pétursson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu.