Velferðarráð

1218. fundur 04. nóvember 2015 kl. 14:00 - 17:40 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir formaður
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Valbjörn Helgi Viðarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Kolbeinn Aðalsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Kolbeinn Aðalsteinsson
Dagskrá
Valbjörn Helgi Viðarsson áheyrnarfulltrúi Æ-lista mætti í forföllum Guðrúnar Karitasar Garðarsdóttur.

1.Búsetudeild - kynning á starfsemi 2015

Málsnúmer 2015040057Vakta málsnúmer

Heimsókn í búsetukjarnann í Hafnarstræti og Þrastalundi.
Velferðarráð þakkar fyrir kynningu og móttöku á báðum stöðum.

2.Húsaleigubætur - yfirlit 2015

Málsnúmer 2015110003Vakta málsnúmer

Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi húsnæðisdeildar kynnti yfirlit vegna húsaleigubóta.
Velferðarráð þakkar kynninguna.

3.Fjölsmiðjan á Akureyri - skipan fulltrúa í stjórn

Málsnúmer 2015100168Vakta málsnúmer

Tekið var fyrir skipun nýrra fulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn Fjölsmiðjunnar á Akureyri.
Fulltrúar Akureyrarbæjar í stjórn Fjölsmiðjunnar á Akureyri verða Friðbjörg Sigurjónsdóttir og til vara Róbert Freyr Jónsson.

4.Samband íslenskra sveitarfélaga - félagsþjónustunefnd

Málsnúmer 2012020043Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 26. fundar félagsþjónustunefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 27. ágúst 2015.

5.Yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga

Málsnúmer 2009110111Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lagði fram til kynningar fundargerð 17. fundar bakhóps vegna yfirfærslu málefna fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga sem haldinn var 28. ágúst 2015.

6.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2016

Málsnúmer 2015080062Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA lögðu fram til kynningar skjal sem unnið var að beiðni bæjarráðs vegna vinnslu fjárhagsáætlunar 2016. Í skjalinu koma fram upplýsingar um helstu breytingar í rekstri milli ára, þróun tekna, launa, stöðugild, vörukaupa og þjónustukaupa frá árinu 2013 til og með áætluninni 2016.

7.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2015

Málsnúmer 2015010045Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA lögðu fram og kynntu rekstraryfirlit fyrir fyrstu níu mánuði ársins.

8.Endurbætur á ÖA - Víði- og Furuhlíð

Málsnúmer 2013110216Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 13. október 2015 frá Fasteignum Akureyrarbæjar og minnisblað frá Halldóri Guðmundssyni framkvæmdastjóra ÖA dagsett 1. nóvember 2015, þar sem greint er frá niðurstöðum og kostnaðaráætlun fyrir endurbætur í Víði- og Furuhlíð. Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísaði málinu til umræðu í velferðarráði, sbr. bókun stjórnar FA þann 12. október 2015.

Á fundinn mættu Bryndís Björg Þórhallsdóttir forstöðumaður Víði- og Furuhlíðar og Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri sem fulltrúar ÖA og velferðarráðs í undirbúningshópi vegna endurbótanna.
Velferðarráð þakkar kynninguna og alla þá vinnu sem lögð hefur verið í undirbúning endurbótanna fram til þessa.

Velferðarráð samþykkir þær áherslur sem endurbæturnar taka mið af en frestar ákvörðun um framkvæmdir til næsta fundar.

9.Endurbætur - aðgangsstýringar og lyklakerfi

Málsnúmer 2015020005Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 1. nóvember 2015 frá Halldóri Guðmundssyni framkvæmdastjóra ÖA þar sem leitað er staðfestingar/samþykkis fyrir uppsetningu á rafrænum aðgangsstýringum á um 120 hurðum í Hlíð.
Mál þetta var áður til afgreiðslu í velferðarráði (félagsmálaráði) þann 6. febrúar 2015, þar sem heimilað var að leita til Fasteigna Akureyrarbæjar með fyrrgreindar breytingar.

Velferðarráð frestar ákvörðun til næsta fundar.

10.Umhyggja - heimaþjónusta

Málsnúmer 2015110015Vakta málsnúmer

Árni Steinsson og Þórunn Halldórsdóttir mættu á fundinn og kynntu nýstofnað fyrirtæki sitt Umhyggju ehf.
Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.

Fundi slitið - kl. 17:40.