Tilnefning fulltrúa í fagráð barnamenningarhátíðar sbr. 3. grein verklagsreglna um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri.
Stjórnin samþykkir að tilnefna Láru Ágústu Ólafsdóttur forstöðumann Héraðsskjalasafnsins og Evu Hrund Einarsdóttur frá stjórn Akureyrarstofu.
Vegna COVID-19 faraldursins þurfti að fresta Barnamenningarhátíð sem halda átti í apríl. Akureyrarstofa og samstarfsaðilar leggja til að hátíðin verði haldin í október, þannig að viðburðir verði allar helgar þann mánuð.
Stjórn Akureyrarstofu fagnar því að Barnamenningarhátíð fari fram og samþykkir tillöguna.
Tillaga um að sýning á verkum grunnskólabarna „Ég vil“ verði sett upp í Sundlaug Akureyrar og að sýningin standi yfir allan október. Tillaga frá starfshópi vegna Barnamenningarhátíðar, að hátíðin standi yfir í heilan mánuð framvegis eins og skipulagið er þetta árið.
Lögð fram tillaga að breytingum á verklagsreglum barnamenningarhátíðar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir breytingar á verklagsreglum. Jafnframt hvetur stjórn aðstandendur barnamenningarhátíðar til að auka frekar samstarf við skóla bæjarins og gera skapandi starf barna enn sýnilegra á hátíðinni.
Óskað er eftir tilnefningu tveggja fulltrúa í faghóp barnamenningarhátíðar sbr. 3. grein verklagsreglna um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á barnamenningarhátíð á Akureyri.
Stjórn Akureyrastofu samþykkir að tilnefna Heimi Ingimarsson og Sigfús Arnar Karlsson sem fulltrúa í faghóp barnamenningarhátíðar.
Bæjarráð tilnefnir tvo fulltrúa í fagráð Barnamenningarhátíðar á Akureyri, samkvæmt verklagsreglum um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð.
Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið í gegnum fjarfundarbúnað.
Bæjarráð tilnefnir Kristján Edelstein og Jönu Salóme I. Jósepsdóttur í fagráð Barnamenningarhátíðar á Akureyri.
Bæjarráð tilnefnir tvo fulltrúa í fagráð Barnamenningarhátíðar á Akureyri, samkvæmt verklagsreglum um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð. Vegna forfalla þarf að skipa einn fulltrúa nú.
Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð tilnefnir Snorra Björnsson í fagráð Barnamenningarhátíðar á Akureyri.