Stjórn Akureyrarstofu

275. fundur 04. apríl 2019 kl. 14:00 - 15:55 Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sverre Andreas Jakobsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Anna Fanney Stefánsdóttir L-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.
Sverre Andreas Jakobsson B-lista mætti í forföllum Sigfúsar Karlssonar.

1.Frumkvöðlasetur á Akureyri

Málsnúmer 2015110232Vakta málsnúmer

Til umræðu framtíð Frumkvöðlasetursins, Glerárgötu 34.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela starfsmönnum að ræða við HA, AFE, NMI og AkureyrarAkademíu um framtíð frumkvöðlaseturs.

2.Fundargerðir AFE

Málsnúmer 2019040049Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir AFE nr. 227, 228, 229 og 230.

3.Barnamenningarhátið á Akureyri

Málsnúmer 2019030063Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga fagráðs um stuðning við verkefni á Barnamenningarhátíð.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögur fagráðs um stuðning við verkefni á Barnamenningarhátíð.

4.Starfslaun listamanna 2019

Málsnúmer 2019040048Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga fagráðs að starfslaunum listamanna 2019.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögu faghóps um hver skuli hljóta starfslaunin að þessu sinni. Tilkynnt verður um hver varð fyrir valinu á Vorkomu Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta.

5.Samfellt þjónustukort fyrir allt landið

Málsnúmer 2019030402Vakta málsnúmer

Byggðastofnun vinnur nú að gerð gagnvirks yfirlitskorts um aðgengi landsmanna að almennri þjónustu á vegum bæði stjórnvalda og einkaaðila. Óskað er eftir aðkomu sveitarfélaga um að taka saman yfirlit um þá þjónustu sem er í boði í hverju sveitarfélagi. Fyrir liggur samningsform sem skilgreinir í hverju samstarfið við Byggðastofnun felst.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela starfsmönnum Akureyrarstofu að vinna málið áfram í samvinnu við önnur svið eftir því sem við á.

6.Húsnæðismál AkureyrarAkademíunnar

Málsnúmer 2019040047Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. mars 2019 frá Kristínu Hebu Gísladóttur f.h. AkureyrarAkademíunnar þar sem óskað er eftir því að Akademían fá heimild til að flytja starfsemi sína í húsnæði Verksmiðjunnar að Glerárgötu 34 þar sem Akureyrarbær hefur óskað eftir því að Akademían flytji úr Árholti, Háhlíð 1.
Stjórn Akureyrarstofu heimilar að AkureyrarAkademían fái inni í Verksmiðjunni með starfsemi sína þar til í lok febrúar 2020 þegar gildandi leigusamningur um húsnæðið rennur út.

7.Listasafnið á Akureyri

Málsnúmer 2015060091Vakta málsnúmer

Lagðar fram rekstrar- og aðsóknartölur að Listasafninu fyrstu þrjá mánuði ársins. Hlynur Hallsson safnstjóri mætti á fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Hlyni fyrir komuna á fundinn.

8.Skáldahúsin

Málsnúmer 2019040050Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir nýtingu á skáldahúsunum á árinu 2018.

Fundi slitið - kl. 15:55.