Stjórn Akureyrarstofu

295. fundur 20. febrúar 2020 kl. 14:00 - 16:40 Rósenborg - kennslustofa 3. hæð
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Finnur Sigurðsson
  • Kristján Blær Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Kristján Blær Sigurðsson D-lista mætti í forföllum Evu Hrundar Einarsdóttur.

1.Listasafnið á Akureyri

Málsnúmer 2015060091Vakta málsnúmer

Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins mætti á fundinn og fór yfir drög að auglýsingu vegna útleigu á jarðhæð Ketilhússins. Einnig kynnti hann tillögu um lækkun á gjaldskrá vegna útleigu á aðalsal Ketilhússins.
Stjórn Akureyrarstofu fagnar því að brátt færist menningarlegt líf í jarðhæð Ketilhússins. Stjórnin samþykkir tillögu um að leigufjárhæð fyrir jarðhæð Ketilhússins verði kr. 145.000 á mánuði. Jafnframt samþykkir stjórnin að gjaldskrá fyrir aðalsal hússins verði breytt þannig að leiga fyrir 2 klst. verði kr. 60.000 í stað kr. 82.000 áður og að leiga til stofnana Akureyrarbæjar fyrir samskonar leigu fari úr kr. 52.000 í kr. 40.000.

2.Barnamenningarhátið á Akureyri

Málsnúmer 2019030063Vakta málsnúmer

Tillögur fagráðs um styrkveitingar til verkefna á barnamenningarhátíð 2020 lagðar fram til samþykktar.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála mætti á fundinn og kynnti tillögurnar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögur fagráðs barnamenningarhátíðar.

3.Samstarf safna - ábyrgðarsöfn

Málsnúmer 2020020490Vakta málsnúmer

Samstarf safna - ábyrgðarsöfn. Skýrsla um sameiningu og samvinnu safna á Eyþingssvæðinu lögð fram til kynningar. Skýrslan var unnin af RHA fyrir Eyþing og gefin út í janúar 2020.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar fyrir skýrsluna og hvetur til þess að Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) boði fulltrúa safna á svæðinu til fundar þar sem efni skýrslunnar verði kynnt og hafin umræða um sameiginleg verkefni og snertifleti í starfsemi þeirra.

4.Safnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014110087Vakta málsnúmer

Rætt um drög að safnastefnu, einstök verkefni og kostnað við þau.

5.Iceland Winter Games - samningur

Málsnúmer 2020020489Vakta málsnúmer

Drög að samningi við Viðburðastofu Norðurlands vegna Iceland Winter Games (IWG) 2020 - 2022 lögð fram til kynningar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir drögin með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.

6.Ferðamálafélag Hríseyjar - samstarfssamningur 2020 - 2022

Málsnúmer 2019060260Vakta málsnúmer

Lagður fram til samþykktar samningur við Ferðamálafélag Hríseyjar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn.

Fundi slitið - kl. 16:40.