Stjórn Akureyrarstofu

291. fundur 19. desember 2019 kl. 16:00 - 18:40 Strikið
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Anna María Hjálmarsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Anna María Hjálmarsdóttir V-lista mætti í forföllum Finns Sigurðssonar.

1.Safnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014110087Vakta málsnúmer

Drög að safnastefnu lögð fram til kynningar.



2.Fundur Stjórnar Akureyrarstofu og Listasafnsráðs Listasafnins á Akureyri

Málsnúmer 2019120229Vakta málsnúmer

Stjórn Listasafnsráðs Listasafnsins á Akureyri ásamt safnstjóra komu til fundar með stjórn Akureyrarstofu. Til umræðu var safnastefna, safn fyrir alla, aðsókn að Listasafninu og samstarf við söfn innan sem utan Akureyrar.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Listasafnsráði fyrir komuna á fundinn og fyrir góðar og gagnlegar umræður.

3.Sigurhæðir

Málsnúmer 2019090404Vakta málsnúmer

Farið yfir umsóknir sem bárust vegna leigu á Sigurhæðum.
Stjórn Akureyrarstofu felur deildarstjóra Akureyrarstofu að afla frekari gagna.

4.Barnamenningarhátíð á Akureyri

Málsnúmer 2019030063Vakta málsnúmer

Óskað er eftir skipan frá stjórn Akureyrarstofu í fagráð Barnamenningarhátíðar 2020.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að tilnefna Önnu Fanneyju Stefánsdóttur í fagráð Barnamenningarhátíðar 2020.

5.Skylduskil Amtsbókasafnsins

Málsnúmer 2018090051Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar svarbréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu vegna viðbótarframlags, á árinu 2020, við núgildandi rekstrarsamning milli Akureyrarbæjar og ráðuneytisins.

7.Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2019

Málsnúmer 2019020025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit janúar til nóvember 2019.

Fundi slitið - kl. 18:40.