Bæjarráð

3776. fundur 04. ágúst 2022 kl. 08:15 - 10:01 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Heimir Örn Árnason
  • Hlynur Jóhannsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Jón Þór Kristjánsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri sat fundinn í gegnum fjarfund.

1.Barnamenningarhátíð á Akureyri

Málsnúmer 2019030063Vakta málsnúmer

Kynnt tillaga að endurskoðuðum verklagsreglum um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir endurskoðaðar verklagsreglur.

2.Reglur Akureyrarbæjar um tímabundin viðbótarlaun (TV einingar)

Málsnúmer 2022020591Vakta málsnúmer

Umfjöllun um framkvæmd reglna Akureyrarbæjar um tímabundin viðbótarlaun.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - ársreikningur og ársskýrsla 2021

Málsnúmer 2022070112Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar ásamt ársskýrslu fyrir árið 2021.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Félagsstofnun stúdenta - ársreikningur 2021

Málsnúmer 2022042170Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri fyrir árið 2021.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

5.Kjarasamningur við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna v. stjórnenda

Málsnúmer 2022061679Vakta málsnúmer

Kynntur nýgerður kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna vegna stjórnenda.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Grænbækur fyrir stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga, landsskipulagsstefnu og húsnæðisstefnu

Málsnúmer 2022061123Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að svörum Akureyrarbæjar við spurningum innviðaráðuneytisins í tengslum við stefnumótun í sveitarstjórna-, húsnæðis-, og skipulagsmálum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda svörin til innviðaráðuneytisins í samræmi við umræður á fundinum.

7.Drög að frumvarpi til laga um sýslumann - mál nr. 122-2022 í samráðsgátt

Málsnúmer 2022080043Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að frumvarpi til laga um sýslumann sem birt hafa verið í samráðsgátt. Umsagnarfrestur er til og með 15. ágúst 2022.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

8.Hverfisráð Grímseyjar - fundargerðir 2022

Málsnúmer 2022020919Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 38. fundar hverfisráðs Grímseyjar dagsett 24. júní 2022. Fundurinn var jafnframt íbúafundur.

Bæjarráð vísar 1. lið fundargerðarinnar til þjónustu- og skipulagssviðs, 2., 3. og 10. lið til Hafnasamlags Norðurlands, 4. og 5. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs, 7. og 8. lið til bæjarstjóra og 9. lið til SSNE.

9.Heilbrigðisnefnd Norðurlandssvæðis eystra - fundargerðir 2022

Málsnúmer 2022030389Vakta málsnúmer

Lagðar fram fundargerðir 224. og 225. fundar heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra dagsettar 11. maí og 30. júní 2022
Bæjarráð vísar 2. lið í fundargerð 225. fundar til umhverfis- og mannvirkjasviðs og liðnum önnur mál til þjónustu- og skipulagssviðs. Bæjarráð þakkar fráfarandi framkvæmdastjóra Alfreð Schiöth fyrir vel unnin störf.


Fundi slitið - kl. 10:01.