Stjórn Akureyrarstofu

309. fundur 19. nóvember 2020 kl. 14:00 - 16:00 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Sigríður Ólafsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Sigríður Ólafsdóttir L-lista mættir í forföllum Önnu Fanneyjar Stefánsdóttur.

1.Barnamenningarhátíð á Akureyri

Málsnúmer 2019030063Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingum á verklagsreglum barnamenningarhátíðar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir breytingar á verklagsreglum. Jafnframt hvetur stjórn aðstandendur barnamenningarhátíðar til að auka frekar samstarf við skóla bæjarins og gera skapandi starf barna enn sýnilegra á hátíðinni.

2.Menningarsjóður Akureyrar - breyting á verklagsreglum

Málsnúmer 2015110169Vakta málsnúmer

Umræða um breytingar á verklags- og úthlutunarreglum menningarsjóðs.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að koma með tillögur að breytingum á verklags- og úthlutunarreglum menningarsjóðs.

3.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2021

Málsnúmer 2020060900Vakta málsnúmer

Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2021.
Karl Liljendal Hólmgeirsson mætti á fundinn kl. 14:27.

4.Skáldahúsin - þjónustusamningur

Málsnúmer 2019100365Vakta málsnúmer

Samningur við Minjasafnið vegna Skáldahúsanna rennur út um áramótin. Endurnýjaður samningur fyrir árin 2021 - 2023 lagður fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn með þeim breytingum sem voru gerðar á fundinum. Þóknun vegna faglegs safnastarfs og annarra umsjónar verður kr. 9.000.000 á árinu 2021. Kr. 9.250.000 á árinu 2022 og kr. 9.500.000 á árinu 2023. Upphæðir eru með fyrirvara um framlög úr bæjarsjóði og samþykki bæjarstjórnar á fjárhagsáætlun hvers árs.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir mætti á fundinn kl. 14:43.

5.Minjasafnið á Akureyri - endurnýjun þjónustusamnings

Málsnúmer 2016040100Vakta málsnúmer

Þjónustusamningur við Minjasafnið rennur út um áramótin. Endurnýjaður samningur fyrir árin 2021 - 2023 lagður fram til samþykktar.
Afgreiðslu frestað.

6.Markaðssetning á íbúamarkaði - samkeppnisgreining

Málsnúmer 2019010151Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu gerði grein fyrir vinnu við samkeppnisgreiningu.

Sigríður Ólafsdóttir bar upp vanhæfi sitt í málinu og var það samþykkt. Vék hún af fundi undir umræðum málsins.

7.Listasafnið á Akureyri

Málsnúmer 2015060091Vakta málsnúmer

Aðsóknartölur að Listasafninu lagðar fram til kynningar.
Stjórn Akureyrarstofu fagnar góðri aðsókn Íslendinga að Listasafninu og öðrum söfnum á liðnu sumri.

8.Sinfóníuhljómsveit Norðurlands - skipun fulltrúa í stjórn 2018 - 2022

Málsnúmer 2018100440Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi stjórnar var samþykkt að tilnefna Friðrik Ómar Hjörleifsson sem fulltrúa stjórnar Akureyrarstofu í Listráð Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands en þegar upp var staðið hafði hann ekki tækifæri til að þiggja þá tilefningu.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að tilnefna Arnbjörgu Sigurðardóttur

í Listráð Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

9.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2019-2020

Málsnúmer 2020020650Vakta málsnúmer

Fundargerðir stjórnar SSNE nr. 14 og 15 lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:00.