Fræðslu- og lýðheilsuráð

19. fundur 07. nóvember 2022 kl. 13:00 - 15:15 Hof
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Tinna Guðmundsdóttir
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ísak Már Jóhannesson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
  • Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir verkefnastjóri grunnskóla
  • Kristín Jóhannesdóttir sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála
  • Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs
Dagskrá
Bjarney Sigurðardóttir M-lista mætti ekki til fundar né varamaður hennar og boðuðu þau bæði forföll.

1.Heimsókn í Tónlistarskólann á Akureyri

Málsnúmer 2022091293Vakta málsnúmer

Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri og Una Björg Hjartardóttir aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans tóku á móti fræðslu- og lýðheilsuráði og sögðu frá starfsemi skólans.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.

Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Hjörleifi og Unu kærlega fyrir kynninguna.

2.Ósk um breytingu á skóladagatali

Málsnúmer 2022101054Vakta málsnúmer

Starfsfólki Síðuskóla stendur til boða að fara í námsferð í vor. Farið verður frá Akureyri þann 6. júní en þann dag eru skólaslit á skóladagatali skólans. Síðuskóli óskar eftir breytingu á skóladagatalinu og að setja inn einn nemendadag í viðbót. Óskað er eftir því að 20. desember verði kennsludagur og litlu jól verði þann 21. desember. Skólaslit yrðu þá þann 5. júní.

Áheyrnafulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir erindið.

3.Rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs 2022

Málsnúmer 2022030187Vakta málsnúmer

Rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs janúar-september 2022.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.

4.Reglur um greiðslur ferðakostnaðar vegna nemenda með lögheimili í Grímsey

Málsnúmer 2022090946Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum um greiðslur ferðakostnaðar vegna nemenda með lögheimili í Grímsey.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fyrirliggjandi reglur um ferðakostnað vegna nemenda með lögheimili í Grímsey.

5.Leikskólar á Akureyri - bréf frá stjórnendum leikskóla

Málsnúmer 2022100921Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. október 2022 þar sem skólastjórnendur vilja vekja athygli á og fylgja eftir nokkrum mikilvægum málum er varða leikskóla á Akureyri er snúa að fjölda barna og barngilda, betri vinnutíma og sumarfríum starfsfólks.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar skólastjórnendum leikskóla fyrir að vekja athygli á þessum mikilvægu málefnum. Ráðið felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

6.Ósk um viðauka vegna Tónlistarskólans á Akureyri, skólaaksturs og flutnings efstu deildar Glerárskóla í Rósenborg

Málsnúmer 2022110045Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ósk um viðauka vegna Tónlistarskólans á Akureyri, skólaaksturs og flutnings efstu deildar Glerárskóla í Rósenborg.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar erindinu til síðari umræðu í ráðinu.

7.Ósk um viðauka vegna móttöku flóttabarna í leik- og grunnskólum haustið 2022

Málsnúmer 2022110049Vakta málsnúmer

Ósk um viðauka til að mæta leik- og grunnskólum vegna móttöku flóttabarna haustið 2022.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar erindinu til síðari umræðu í ráðinu.

8.Bréf frá stjórnendum Oddeyrarskóla

Málsnúmer 2022110157Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. október 2022 með ósk um niðurfellingu á kennsluskyldu stjórnenda Oddeyrarskóla vegna annarra verkefna.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar skólastjórnendum Oddeyrarskóla fyrir bréfið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við skólastjórnendur Oddeyrarskóla.

9.Unicef - ungmennaráð og þátttaka barna í starfi sveitarfélaga

Málsnúmer 2022091337Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. september 2022 frá Birnu Þórarinsdóttur framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi þar sem Akureyrarbær er hvattur til að fjölga tækifærum barna til áhfrifa innan sveitarfélagsins. Meðfylgjandi eru 12 ráð ungmenna til ráðamanna til þess að efla ungmennaráð sveitarfélaga.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.

10.Ósk um áframhaldandi samstarfssamning

Málsnúmer 2022100596Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. október 2022 þar sem Tónlistarskólinn Tónræktin (Tónræktendur Tónlistarskóli ehf) óskar eftir áframhaldi á samstarfssamningi sem gerður var milli Akureyrarbæjar og Tónræktarinnar og er að renna út.

Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Dagný Björg Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara og Ólöf Inga Andrésdóttir fulltrúi grunnskólastjóra.

Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

11.Skautafélag Akureyrar - styrkbeiðni vegna framkvæmda í Skautahöllinni 2022.

Málsnúmer 2022101040Vakta málsnúmer

Erindi frá Ólöfu Björk Sigurðardóttur formanni Hokkídeildar Skautafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk frá Akureyrarbæ vegna tekjutaps sem deildin varð fyrir vegna framkvæmda í Skautahöllinni í sumar.

Áheyrnarfulltrúar: Geir Kr. Aðalsteinsson formaður ÍBA og Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir að styrkja Hokkídeild Skautafélags Akureyrar um kr. 1.000.000.

12.Íþróttafélagið Þór - umsókn um kvennajafnréttisstyrk

Málsnúmer 2022101042Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. október 2022 frá Geir Kr. Aðalsteinssyni formanni ÍBA þar sem bandalagið óskar eftir 500.000 kr. viðbótarframlagi til að styrkja meistaraflokk Þórs í kvennakörfubolta samanber viðmið og vinnureglur vegna styrkja til hópíþrótta kvenna.

Áheyrnarfulltrúar: Geir Kr. Aðalsteinsson formaður ÍBA og Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir að styrkja Körfuknattleiksdeild Þórs um 500.000 kr. Fræðslu- og lýðheilsuráð óskar eftir því að ÍBA endurskoði og geri tillögur að breytingum ef við á á viðmiðum og vinnureglum vegna styrkja til hópíþrótta kvenna og kynni fyrir fræðslu- og lýðheilsuráði áður en styrkir verða afgreiddir árið 2023.

13.Lýðheilsuátak - tilraunaverkefni 2022-2023

Málsnúmer 2022101039Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 1. nóvember tímabundið tilraunaverkefni til að bæta lýðheilsu barnafjölskyldna, öryrkja og eldri borgara með lögheimili í sveitarfélaginu. Sérstök áhersla er á aukna samveru foreldra, barna og ungmenna undir 18 ára aldri. Markmiðið er einnig að skapa umhverfi sem hvetur til aukinnar hreyfingar og útiveru. Til að ná markmiðinu er barnafjölskyldum, eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í sveitarfélaginu boðið að kaupa Lýðheilsukort sem veitir ótakmarkaðan aðgang að Sundlaug Akureyrar, Hlíðarfjalli og Skautahöllinni á Akureyri gegn lægra gjaldi með möguleika að dreifa kostnaði á 12 mánuði.

Áheyrnarfulltrúar: Geir Kr. Aðalsteinsson formaður ÍBA og Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð fagnar verkefninu og hefur mikla trú á að Lýðheilsukortið muni efla heilsu og fjölga gæðastundum íbúa Akureyrarbæjar.

Stjórn ÍBA lýsir yfir ánægju sinni með Lýðheilsukort Akureyrarbæjar. Þetta mikilvæga framtak mun efla lýðheilsu á Akureyri og hvetja bæjarbúa til enn frekari hreyfingar.

Fundi slitið - kl. 15:15.