Skautafélag Akureyrar - styrkbeiðni vegna framkvæmda í Skautahöllinni 2022.

Málsnúmer 2022101040

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og lýðheilsuráð - 19. fundur - 07.11.2022

Erindi frá Ólöfu Björk Sigurðardóttur formanni Hokkídeildar Skautafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk frá Akureyrarbæ vegna tekjutaps sem deildin varð fyrir vegna framkvæmda í Skautahöllinni í sumar.

Áheyrnarfulltrúar: Geir Kr. Aðalsteinsson formaður ÍBA og Thelma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir að styrkja Hokkídeild Skautafélags Akureyrar um kr. 1.000.000.