Bæjarráð

3437. fundur 13. nóvember 2014 kl. 09:00 - 12:35 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Bæjarsjóður - yfirlit um rekstur 2014

Málsnúmer 2014050012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til september 2014.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri, Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur og Dagur Fannar Dagsson formaður framkvæmdaráðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Stjórnunar- og rekstrarúttekt á starfsemi Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar og mótun úrbótaáætlunar

Málsnúmer 2014110035Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dagsett 7. nóvember 2014:
Verkefnistillaga frá Capacent dagsett í október 2014 um úttekt á starfsemi Framkvæmdamiðstöðvar kynnt.
Framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða verkefnatillögu með þeim breytingum er komu fram á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri, Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur og Dagur Fannar Dagsson formaður framkvæmdaráðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og formanni framkvæmdaráðs að vinna áfram að málinu.

3.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014 - viðaukar

Málsnúmer 2013050198Vakta málsnúmer

Umræða um gerð viðauka við fjárhagsáætlun.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2015-2018

Málsnúmer 2014060172Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sátu fund bæjaráðs undir þessum lið.

5.Vinnuhópur um sértækt hópastarf

Málsnúmer 2014090198Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. nóvember 2014 frá framkvæmdastjóra samfélags- og mannréttindadeildar, fræðslustjóra og framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar. Í erindinu er sótt um fjárveitingu að upphæð kr. 7 milljónir á árinu 2015 til verkefnisins "Sérstækt hópastarf" sem er samstarfsverkefni vegna ýmiskonar vanda grunnskólabarna.
Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mennréttindadeildar og Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála sátu fund bæjarráðs undir þessum lið ásamt Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra og Jóni Braga Gunnarssyni hagsýslustjóra.

Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2015.

6.Mótorhjólasafn Íslands - styrkbeiðni vegna frágangs lóðar

Málsnúmer 2014090306Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dagsett 31. október 2014:
Lagt fram erindi frá Haraldi Vilhjálmssyni f.h. Mótorhjólasafns Íslands, dagsett 28. september sl. þar sem óskað er eftir styrk til frágangs lóðar. Framkvæmdaráð vísar erindinu til bæjarráðs.
Sótt er um styrk í formi malbikunar á bílastæði við safnið sem er u.þ.b. 1.200m². Planið er tilbúið til malbikunar.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

Margrét Kristín Helgadóttir Æ-lista vék af fundi kl. 11:55.

7.Hlíðarfjall - uppbygging og rekstur allt árið

Málsnúmer 2014110046Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. nóvember 2014 frá Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni framkvæmdastjóra AFE þar sem fram kemur að á stjórnarfundi AFE þann 4. nóvember sl. hafi verið bókað að fela framkvæmdastjóra félagsins að kanna hug Akureyrarbæjar til hugmynda AFE um uppbyggingu og útvistun á hluta skíðasvæðis bæjarins.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og formanni íþróttaráðs að ræða við bréfritara.

8.Hverfisnefnd Lunda- og Gerðahverfis - fundargerð

Málsnúmer 2014020106Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 51. fundar hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis dagsett 5. nóvember 2014.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/lunda-og-gerdahverfi/fundargerdir

Bæjarráð vísar 4. lið til framkvæmdadeildar, 1., 2, og 3. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

9.Hverfisnefnd Naustahverfis - fundargerðir

Málsnúmer 2014010033Vakta málsnúmer

Lagðar fram fundargerðir 62., 63. og 64. fundar hverfisnefndar Naustahverfis dagsettar 15. og 22. október og 5. nóvember 2014. Fundargerðirnar má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/naustahverfi/fundargerdir

Fundargerðir 62. og 63. fundar lagðar fram til kynningar í bæjarráði.

Bæjarráð vísar 4. lið fundargerðar 64. fundar til framkvæmdadeildar, aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

10.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2014

Málsnúmer 2014010020Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 821. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 31. október 2014. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

11.Önnur mál

Málsnúmer 2014010044Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu samningaviðræðna við tónlistarskólakennara.

Fundi slitið - kl. 12:35.