Velferðarráð

1267. fundur 06. desember 2017 kl. 14:00 - 17:35 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Erla Björg Guðmundsdóttir formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA
  • Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs
  • Steinunn Benna Hreiðarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Benna Hreiðarsdóttir Fundarritari
Dagskrá
Guðlaug Kristinsdóttir B-lista mætti í forföllum Halldóru Kristínar Hauksdóttur.

1.Fundaáætlun velferðarráðs

Málsnúmer 2015060008Vakta málsnúmer

Lögð var fram áætlun um fundi velferðarráðs janúar til júní 2018.

2.Samráðsfundur um þjónustu við aldraða á Akureyri

Málsnúmer 2017120018Vakta málsnúmer

Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs og Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar sögðu frá samráðsfundi aðila í öldrunarþjónustu á Akureyri sem haldinn var mánudaginn 27. nóvember síðastliðinn.

3.Undanþága frá reglum um leiguhúsnæði 2017 - áfrýjanir

Málsnúmer 2017040090Vakta málsnúmer

Lögð var fram áfýjun vegna synjunar um undanþágu frá reglum um leiguíbúðir Akureyrarbæjar.

Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldusviði sat fundinn undir þessum lið.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru bókaðar í trúnaðarbók.

4.Styrkbeiðnir til velferðarráðs og frístundaráðs 2017

Málsnúmer 2016110088Vakta málsnúmer

Lögð var fram styrkbeiðni vegna jólaaðstoðar mæðrastyrksnefndar, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Rauða krossins á Akureyri.

Velferðarráð samþykkir 500 þúsund kr. styrk.

5.Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017-2021

Málsnúmer 2017110413Vakta málsnúmer

Lagt var fram erindi frá velferðarráðuneytinu vegna framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks sem samþykkt var sl. vor.

Ennfremur var lögð fram samantekt Karólínu Gunnarsdóttur forstöðumanns stoðþjónustu fjölskyldusviðs um verkefni sveitarfélaga í framkvæmdaáætuninni

dagsett 4. desember 2017.

Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð vekur athygli umhverfis- og mannvirkjaráðs og skipulagsráðs á Þingsályktun um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021 og bendir sérstaklega á verkefni A2 og A3 um algilda hönnun og áætlanir um úrbætur á aðgengi og aðgengisfulltrúa. Velferðarráð mælir með því að Akureyrarbær skipi aðgengisfulltrúa.

6.Skipulagsbreytingar á búsetusviði

Málsnúmer 2017100443Vakta málsnúmer

Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusvið og Laufey Þórðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu búsetusviðs kynntu tillögur að breytingum á skipulagi starfsemi Gránufélagsteymis og Heimaþjónustu Stoðar. Tillögurnar fela í sér að starfseiningarnar verði sameinaðar í þeim tilgangi að auka samlegð og bæta samræmingu stuðnings við skjólstæðinga Gránufélagsteymisins.

Velferðarráð frestar afgreiðslu málsins.

7.Lautin - ósk um hækkun framlags ársins 2017

Málsnúmer 2017120013Vakta málsnúmer

Lagt var fram erindi frá Hafsteini Jakobssyni, fyrir hönd verkefnisstjórnar Lautarinnar, athvarfs fyrir fólk með geðfötlun, um hækkun rekstrarstyrks ársins 2017.

Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.
Þar sem ekki er heimild í fjárhagsáætlun fyrir hækkun vísar velferðarráð erindi Lautarinnar til bæjarráðs. Ráðið lýsir sig meðmælt því að framlagið verði hækkað.

8.Aðgerðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum

Málsnúmer 2017110400Vakta málsnúmer

Lögð var fram tilmæli bæjarráðs um endurskoðun aðgerðaráætlunar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum.

Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð felur Guðrúnu Sigurðardóttur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að hefja undirbúning endurskoðunar gegn kynbundnu ofbeldi.

9.Frístundaráð - stefnumótun - íþróttastefna 2017

Málsnúmer 2017020033Vakta málsnúmer

Lögð voru fram drög að íþróttastefnu sem send voru velferðarráði til umsagnar.

Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir umsögn dagsetta 6. desember 2017.

10.Smáhýsaúrræði vegna einstaklinga með fjölþættan vanda

Málsnúmer 2016120134Vakta málsnúmer

Umræða var um staðsetningu húsnæðisúrræða einstaklinga með fjölþættan vanda.

Sviðsstjórum fjölskyldusviðs og búsetusviðs falið að uppfæra minnisblað til skipulagsráðs.

Fundi slitið - kl. 17:35.