Velferðarráð

1254. fundur 07. júní 2017 kl. 14:00 - 16:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Róbert Freyr Jónsson varaformaður
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Valdís Anna Jónsdóttir
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs
  • María Sigurbjörg Stefánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María S. Stefánsdóttir
Dagskrá
Valdís Anna Jónsdóttir S-lista mætti í forföllum Erlu Bjargar Guðmundsdóttur.
Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi Æ-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.

1.Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - dagþjálfun

Málsnúmer 2015070050Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla dagsett í maí 2017 frá Sjúkratryggingum Íslands um umfang og greiðslur fyrir þjónustu í dagdvöl fyrir aldraða árið 2016.

2.Gjafasjóður ÖA - samþykktir og gögn vegna umsóknar um endurgreiðslu vsk

Málsnúmer 2015120211Vakta málsnúmer

Halldór S Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA lagði fram tillögu að breytingum á samþykktum Gjafasjóðs ÖA í samræmi við afgreiðslu á 12. lið velferðarráðs á fundi þann 24. maí sl.

Markmið breytinga á reglum sjóðsins er að rjúfa fjárhagsleg tengsl gefanda og þiggjanda eins og bent hefur verið á.
Velferðarráð samþykkir tillögu að breytingum og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.

3.Stefnumótun og starfsáætlun velferðarráðs 2014-2018

Málsnúmer 2014090101Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar og umræðu drög að starfsáætlunum vegna ársins 2018 fyrir búsetusvið, fjölskyldusvið og Öldrunarheimili Akureyrar.

Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.

4.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2017

Málsnúmer 2017010088Vakta málsnúmer

Lögð fram rekstraryfirlit mála á sviði velferðarráðs fyrir tímabilið janúar til apríl 2017.

5.Fjárhagsáætlun 2018-2021

Málsnúmer 2017060040Vakta málsnúmer

Lagðar fram forsendur og fjárhagsrammi sem bæjarráð hefur samþykkt vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2018-2021.

6.Samstarfssamningur milli SÁÁ og Akureyrarbæjar 2017

Málsnúmer 2017040007Vakta málsnúmer

Beiðni frá SÁÁ áður á dagskrá 5. apríl og 24. maí sl. um endurnýjun á samstarfssamningi tekin fyrir að nýju.
Velferðarráð samþykkir að endurnýja samstarfssamning til tveggja ára 2017-2018 með fjárframlagi kr. 5.400.000 á ári.

Innan þess tíma verði framtíðaraðkoma bæjarins að rekstri SÁÁ á Akureyri ákveðin.

7.Fjölskyldusvið - ársskýrslur 2016-2018

Málsnúmer 2017060012Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ársskýrsla fjölskyldusviðs fyrir árið 2016.

8.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - leiguverð

Málsnúmer 2012110070Vakta málsnúmer

Tekin fyrir að nýju málefni leiguíbúða bæjarins m.t.t. hækkunar leiguverðs.

Lögð fram tillaga Jóns Heiðars Daðasonar húsnæðisfulltrúa fjölskyldusviðs dagsett 1. júní 2017.

Jón Heiðar Daðason sat fundinn undir þessum lið.
Málinu frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 16:00.