Umhverfis- og mannvirkjaráð

116. fundur 11. mars 2022 kl. 08:15 - 11:15 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi mætti í forföllum Jönu Salóme I. Jósepsdóttur.

1.Strætisvagnar Akureyrar - Hagahverfi

Málsnúmer 2022021080Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 17. febrúar 2022 varðandi akstur strætó inn í Hagahverfi og uppbyggingu biðstöðva þar.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að hafinn verði akstur inn í Hagahverfi á vordögum.

2.Strætisvagnar Akureyrar - biðstöð í miðbæ Akureyrar

Málsnúmer 2021091029Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. mars 2022 varðandi tímabundna færslu á miðbæjarstöð strætó.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir að farið verði í framkvæmdir við aðstöðu strætisvagna í miðbæ til að rýma lóðina Hofsbót 2 og gera aðstöðu fyrir bílstjóra. Áætlaður kostnaður er um kr. 15 milljónir. Ráðið telur óheppilegt að ekki skuli liggja fyrir hver eru framtíðaráform varðandi akstur og aðstöðu strætó í miðbæ, sem leiðir til þess að núna þarf að verja fjármunum í bráðabirgðalausn.

Ráðið hvetur til þess að unnið verði áfram við að útfæra hugmyndir um aðstöðu fyrir strætó, landsbyggðarstrætó, leigubíla og fleira, í tengslum við skipulagningu á Akureyrarvelli, þegar knattspyrnuiðkun verður hætt þar.

Þórhallur Harðarson D-lista situr hjá.

3.Strætisvagnar Akureyrar - kaup á rafmagnsstrætisvagni 2022

Málsnúmer 2022021078Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. mars 2022 varðandi kaup á rafmagnsstrætisvagni.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð mælir með kaupum á rafmagnsstrætisvagni og vísar ákvörðun um útboð til bæjarráðs. Áætlaður kostnaður við kaup á vagninum er kr. 75-80 milljónir.

4.Strætisvagnar Akureyrar - kaup á ferlibíl 2022

Málsnúmer 2022021079Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. mars 2022 varðandi kaup á ferliþjónustubílum.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að leitað verði eftir verði í tvær bifreiðar sem ganga fyrir umhverfisvænum orkugjafa. Ein bifreið komi inn í rekstur á árinu 2022 og ein á árinu 2023. Kostnaður við kaup á ferlibifreið er áætlaður kr. 18-20 milljónir og samtals er því um að ræða að áætluð fjármagnsþörf næstu tvö árin sé um kr. 40 milljónir.

Vegna mistaka í framlögðum gögnum við afgreiðslu áætlunargerðar Akureyrarbæjar skilaði beiðni um fjármagn til kaupa á ferlibifreiðum sér ekki alla leið. Ráðið óskar eftir viðauka vegna þessa til bæjarráðs þar sem fjármagnið verði sett á framkvæmdaráætlun.

5.Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2022

Málsnúmer 2021040823Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. mars 2022 varðandi kaup og sölu á tækjum á umhverfismiðstöð.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur starfsfólki að vinna málið áfram.

6.Hlíðarfjall - snjótroðarar 2022-2023

Málsnúmer 2022030340Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. mars 2022 varðandi útboð á snjótroðurum.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri á rekstrardeild sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að boðin verði út kaup á tveimur troðurum til notkunar í Hlíðarfjalli sem áætlað er að afhentir verði á árunum 2022 og 2023. Ráðið leggur áherslu á að tækin sem keypt verði uppfylli ströngustu kröfur um vinnu í nálægð við vatnsverndarsvæði.

7.Steinefni fyrir malbik og jöfnunarlag 2022-2024

Málsnúmer 2022030318Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 10. mars 2022 varðandi opnun tilboða í steinefnaútboði fyrir malbik og jöfnunarlag.

Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri á rekstrardeild og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við Skútaberg ehf. varðandi kaup á steinefnum fyrir malbik og jöfnunarlag. Kröfur eru um sérstaklega slitsterkt efni í útboðsgögnum.

8.Holtahverfi - leikvellir og útivistarsvæði

Málsnúmer 2021023068Vakta málsnúmer

Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda kynnti hönnunartillögur að leikvöllum og útivistarsvæðum í Holtahverfi.

9.Efniskaup vegna framkvæmda í samstarfi við Norðurorku

Málsnúmer 2022030339Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 8. mars 2022 varðandi efniskaup vegna framkvæmda í samstarfi við Norðurorku.

Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fara í samstarf við Norðurorku í efniskaupum í sameiginlegum verkefnum.

10.Stofnstígur milli sveitarfélaga

Málsnúmer 2022020885Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 17. febrúar 2022 varðandi stíg frá Hörgársveit að Glerártorgi.

11.Skautahöllin á Akureyri - viðbygging við félagsaðstöðu

Málsnúmer 2021120730Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 9. mars 2022 varðandi framkvæmdir við félagsaðstöðu í Skautahöllinni.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við B. Hreiðarsson ehf.

12.Glerárholt - endurbætur

Málsnúmer 2021031721Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat dagsett í mars 2022 varðandi framkvæmdir við Glerárholt.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

13.Sandgerðisbót - bygging íbúða

Málsnúmer 2020040029Vakta málsnúmer

Lagt fram skilamat dagsett í mars 2022 varðandi framkvæmdir við Sandgerðisbót.

Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

14.Starfsáætlanir umhverfis- og mannvirkjasviðs 2022

Málsnúmer 2022021082Vakta málsnúmer

Lagðar fram starfsáætlanir í götum og stígum, Fasteignum Akureyrarbæjar, bílastæðasjóði, umhverfismiðstöð og rekstri skrifstofu umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Fundi slitið - kl. 11:15.