Umhverfis- og mannvirkjaráð

71. fundur 17. janúar 2020 kl. 08:15 - 11:15 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.

1.Breyting á lögum um meðhöndlun úrgangs

Málsnúmer 2020010313Vakta málsnúmer

Tekið fyrir fyrirhugað frumvarp um breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur forstöðumanni umhverfis- og sorpmála að senda inn ábendingar vegna góðs árangurs Akureyrarbæjar í sorpmálum og mögulegum undanþágum vegna þeirra liða þar sem Akureyrarbær uppfyllir lokamarkmið frumvarpsins.

2.Skógræktarfélag Eyfirðinga - samningur

Málsnúmer 2019090381Vakta málsnúmer

Samingur við Skógræktarfélag Eyfirðinga til eins árs kynntur.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

3.Mannréttindastefna 2019 - 2023

Málsnúmer 2019030417Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

4.Vegagerðin - niðurfelling vega af vegaskrá

Málsnúmer 2012080074Vakta málsnúmer

Frestun á yfirtöku Akureyrarbæjar á vegum í eigu Vegagerðarinnar innan bæjarmarka kynnt fyrir ráðinu.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

5.Compact of Mayors - verkefni umhverfis- og mannvirkjasviðs

Málsnúmer 2018020409Vakta málsnúmer

Stefán Gíslason hjá Umhverfisráðgjöf Íslands kom og kynnti verkefnið Compact of Mayors ásamt því að kynna skýrslu varðandi kolefnisfótspor Akureyrarbæjar 2018.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.

6.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings

Málsnúmer 2015030205Vakta málsnúmer

Staða verkefnisins kynnt fyrir ráðinu.

7.Glerárskóli - bygging leikskóla

Málsnúmer 2018050021Vakta málsnúmer

Staða verkefnisins kynnt fyrir ráðinu.

8.Spítalavegur 11 Tónatröð - breytingar á húsnæði

Málsnúmer 2019100402Vakta málsnúmer

Staðan á verkefninu kynnt fyrir ráðinu.

9.Sandgerðisbót - Byrgi - niðurrif

Málsnúmer 2019110467Vakta málsnúmer

Tekið fyrir tilboð dagsett 15. janúar 2020 í niðurrif á húsinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði BB bygginga ehf. í niðurrif á Byrgi.

10.Brú - Eyjafjarðará vesturkvísl

Málsnúmer 2019110327Vakta málsnúmer

Stöðuskýrsla verkefnisins dagsett 14. janúar 2020 lögð fram til kynningar fyrir ráðið.

11.Klettaborg 43 - íbúðakjarni

Málsnúmer 2017090011Vakta málsnúmer

Stöðuskýrsla verkefnisins dagsett 15. janúar 2020 lögð fram til kynningar fyrir ráðið.

12.Starfsáætlanir umhverfis- og mannvirkjasviðs 2020

Málsnúmer 2020010314Vakta málsnúmer

Starfsáætlanir umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2020 lagðar fyrir ráðið til umræðu.

13.Stöðuskýrsla rekstrar UMSA 2019

Málsnúmer 2019030350Vakta málsnúmer

Stöðuskýrsla rekstrar UMSA fyrir árið 2019 lögð fyrir ráðið til umræðu.

14.Umhverfis- og mannvirkjaráð - fundaáætlun 2020

Málsnúmer 2019010178Vakta málsnúmer

Lögð fram fundaáætlun umhverfis- og mannvirkjaráðs fyrir árið 2020.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fundaáætlunina.

Fundi slitið - kl. 11:15.