Stjórn Akureyrarstofu

320. fundur 09. júní 2021 kl. 15:00 - 16:50 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá

1.Laxdalshús - útleiga

Málsnúmer 2015010247Vakta málsnúmer

Teknar fyrir umsóknir um leigu á Laxdalshúsi. Umsóknir bárust frá fjórum aðilum.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að ganga til samninga við Majó - Food and Culture um leigu á Laxdalshúsi.

Í húsinu verður vinnustofa Jónínu Bjargar Helgadóttur myndlistarkonu, auk þess sem gestalistamönnum verður boðin vinnuaðstaða á efri hæð. Jafnframt er hugmyndin að skipuleggja sögugöngur sem byrja og enda í húsinu og verða matartengdar. Ekki verður um eiginlegan veitingahúsarekstur að ræða heldur uppákomur sem tengjast mat og matarupplifun auk þess sem boðið verður upp á námskeið.

2.Samningur við MAk 2021 - 2023

Málsnúmer 2021051151Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að samningi við MAk.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að ganga til samninga við MAk miðað við fyrirliggjandi fjárhagsramma. Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir að í samningaviðræðum verði skipulagsskrár aðilarfélaga MAk endurskoðaðar.

3.Menningarfélag Akureyrar - rekstur 2020 - 2021

Málsnúmer 2021011495Vakta málsnúmer

Þuríður H. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk fór yfir 8 mánaða uppgjör.

4.Fundargerðir MAk

Málsnúmer 2019110308Vakta málsnúmer

Fundargerðir MAk nr. 128 til 130 lagðar fram til kynningar ásamt yfirliti yfir fjölda tónleika og leiksýninga.

Þuríður H. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk sat fundinn undir þessum lið.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir vék af fundi kl. 15:57.

5.Akureyri, menningarhöfuðborg Evrópu

Málsnúmer 2021060508Vakta málsnúmer

Til umræðu hugmyndin um að Akureyri verði menningarhöfuðborg Evrópu.

Þuríður H. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk sat fundinn undir þessum lið.

Stjórn Akureyrarstofu telur hugmynd um þátttöku í verkefni um menningarhöfuðborg Evrópu spennandi og felur starfsfólki að kanna fýsileika þess að hefja undirbúning að því.

6.Safnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014110087Vakta málsnúmer

Safnastefna Akureyrarbæjar lögð fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir safnastefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til umfjöllunar í bæjarráði.

7.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2022

Málsnúmer 2021060306Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um framkvæmdir og viðhaldsáætlun stofnana sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Stjórn Akureyrarsrofu leggur áherslu á við umhverfis- og mannvirkjasvið að tekið verði tillit til þeirra þátta, sem koma fram í framlögðu minnisblaði, við gerð fjárhagsáætlunar 2022.

8.Gásakaupstaður ses - framhaldsaðalfundur og slitafundur

9.Minjasafnið á Akureyri - ársreikningur 2019-2024

Málsnúmer 2020070057Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Minjasafnsins 2020.

Fundi slitið - kl. 16:50.