Skipulagsnefnd

152. fundur 13. febrúar 2013 kl. 08:00 - 12:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Helgi Snæbjarnarson formaður
  • Árni Páll Jóhannsson
  • Eva Reykjalín Elvarsdóttir
  • Edward Hákon Huijbens
  • Sigurður Guðmundsson
  • Ragnar Sverrisson áheyrnarfulltrúi
  • Svava Þórhildur Hjaltalín áheyrnarfulltrúi
  • Tryggvi Már Ingvarsson áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2012-2024

Málsnúmer 2011100003Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. janúar 2013 þar sem Bjarni Kristjánsson f.h. Samvinnunefndar um Svæðisskipulag Eyjafjarðar tilkynnir að nefndin hafi lokið almennri kynningu á tillögunni eins og fyrir er mælt í 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynningin fór fram dagana 9. og 10. jan. s.l.
Að lokinni fyrrnefndri kynningu skal svæðisskipulagsnefnd taka tillöguna til formlegrar afgreiðslu og leggja hana síðan fyrir hlutaðeigandi sveitarstjórnir til samþykktar samanber 3. mgr. 23. gr. áður tilvitnaðra laga.
Með vísan til framanskráðs er formleg tillaga svæðisskipulagsnefndar að Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012 - 2024 ásamt forsenduhefti og umhverfisskýrslu send hlutaðeigandi sveitarstjórnum til samþykktar.
Þess er vænst að afstaða sveitarfélagsins til tillögunnar berist nefndinni eigi síðar en 22. febrúar 2013.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að svæðisskipulagstillagan verði samþykkt til auglýsingar.

2.Hörgársveit, aðalskipulagstillaga 2012-2024 - ósk um umsögn

Málsnúmer 2013020088Vakta málsnúmer

Innkominn tölvupóstur dagsettur 25. febrúar 2013 frá Guðmundi Sigvaldasyni f.h. Hörgársveitar, þar sem óskað er eftir umsögn um drög að tillögu að aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024, sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Óskað er eftir að umsögn berist fyrir 20. febrúar 2013, ef kostur er á.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við drögin en áskilur sér rétt til að gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna á auglýsingartíma.

Sigurður Guðmundsson A-lista mætti á fundinn kl.8:53.

3.Miðhúsabraut/Súluvegur - deiliskipulag

Málsnúmer 2012070028Vakta málsnúmer

Skipulagsstjóri lagði fram tillögur að útfærslu á hringtorgi vegna vinnslu á deiliskipulagi svæðis á mótum Miðhúsabrautar og Súluvegar að Þingvallastræti og Glerá.
Tillögurnar eru unnar af framkvæmdadeild, VN og Árna Ólafssyni arkitekt, dagsettar 12. febrúar 2013.

Skipulagsnefnd leggur til að leið B verði valin til nánari útfærslu.

Sigurður Guðmundsson A-lista vék af fundi vegna afgreiðslu á 4. og 5. lið fundargerðarinnar kl. 9:05.

4.Hafnasamlag Norðurlands - umferðarstýring á Strandgötu austan Hjalteyrargötu

Málsnúmer 2012060070Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. janúar 2013 frá Herði Blöndal f.h. Hafnasamlags Norðurlands varðandi umferðarstýringu á Strandgötu austan Hjalteyrargötu. Þess er óskað að ekki verði leyfður akstur austur Strandgötu frá Hjalteyrargötu og að Laufásgötu og að sú takmörkun muni gilda þá daga sem skemmtiferðaskip eru við Oddeyrarbryggju sumarið 2013 og verði tímabundin í tvær klst. frá áætlaðri komu skips sbr. meðfylgjandi lista.

Skipulagsnefnd  samþykkir erindið. Skipulagsstjóra falið að auglýsa ákvörðunina.

5.Hafnasamlag Norðurlands - ósk um bann við lagningu bíla við Kaldbaksgötu

Málsnúmer 2012060072Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. janúar 2013 frá Herði Blöndal f.h. Hafnasamlags Norðurlands þar sem óskað er eftir að bannað verði að leggja bílum við vesturkant Kaldbaksgötu milli Gránufélagsgötu og Strandgötu. Bannið verði tímabundið alla daga frá 1. júní til 15. september 2013, milli kl. 06:00 til kl. 16:00.

Skipulagsnefnd samþykkir bann við lagningu ökutækja við vesturkant götunnar samkvæmt ofangreindu. Skipulagsstjóra er falið að senda beiðni til Sýslumannsins á Akureyri um gildistöku með auglýsingu í Lögbirtingarblaði.

Sigurður Guðmundsson kom aftur á fundinn kl. 9:14.

6.Hafnarsvæði vð Torfunef - fyrirspurn um aðstöðu fyrir afgreiðsluhús

Málsnúmer 2013010296Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. janúar 2013 frá Herði Blöndal, hafnarstjóra f.h. Hafnasamlags Norðurlands varðandi tímabundna uppsetningu afgreiðslu- og miðasöluhúsa á Torfunefsbryggju.

Frestað. Skipulagsnefnd óskar eftir nánari útfærslu á söluskúr, útliti og staðsetningu á svæðinu.

7.Þórsstígur 4 - umsókn um viðbyggingu

Málsnúmer 2012070009Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. febrúar 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Hölds ehf., kt. 651174-0239, óskar eftir heimild til viðbyggingar og breytinga innanhúss við Þórsstíg 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ingólf Guðmundsson dagsettar 4. febrúar 2013.

Þar sem einungis er um að ræða minniháttar viðbyggingu við aðalbyggingu og er því breyting er varðar einungis Akureyrarbæ og lóðarhafa sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkir skipulagsnefnd umbeðna viðbyggingu.

Skipulagsstjóri afgreiði umsókn um byggingarleyfi.

 

8.Hörgársveit - svæði fyrir skólabyggingu á landi Blómsturvalla

Málsnúmer 2012110182Vakta málsnúmer

Erindi dags. 22. nóvember 2012 frá Guðmundi Sigvaldasyni, sveitarstjóra Hörgársveitar, varðandi ósk um viðræður við Akureyrarbæ sem landeiganda að Blómsturvöllum um hvort komi til greina að þar geti risið skólabygging fyrir grunnskóla, leikskóla og fleiri stofnanir.

Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að tímasetja fund með fulltrúum skipulagsnefndar og forsvarsmönnum Hörgársveitar til þess að fara yfir málið.

9.Opin svæði fyrir geymslupláss

Málsnúmer 2013010288Vakta málsnúmer

Gunnar Jónsson mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa 24. janúar 2013.
Hann telur vanta opið svæði fyrir verktakafyrirtæki og einstaklinga í bæjarlandinu fyrir geymslu á byggingarverkfærum o.fl. því tengt. Hann telur að slíkt svæði myndi bæta samkeppnishæfni fyrirtækja á Akureyri.

Skipulagsnefnd þakkar fyrir ábendinguna og skipulagsstjóra í samvinnu við framkvæmdadeild er falið að koma með tillögu að mögulegum svæðum og útfærslu slíks svæðis.

10.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2013

Málsnúmer 2013010008Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 30. janúar 2013. Lögð var fram fundargerð 430. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 10 liðum.

Lagt fram til kynningar.

11.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2013

Málsnúmer 2013010008Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 6. febrúar 2013. Lögð var fram fundargerð 431. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 10 liðum.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:00.