Hörgársveit - svæði fyrir skólabyggingu á landi Blómsturvalla

Málsnúmer 2012110182

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 152. fundur - 13.02.2013

Erindi dags. 22. nóvember 2012 frá Guðmundi Sigvaldasyni, sveitarstjóra Hörgársveitar, varðandi ósk um viðræður við Akureyrarbæ sem landeiganda að Blómsturvöllum um hvort komi til greina að þar geti risið skólabygging fyrir grunnskóla, leikskóla og fleiri stofnanir.

Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að tímasetja fund með fulltrúum skipulagsnefndar og forsvarsmönnum Hörgársveitar til þess að fara yfir málið.