Opin svæði fyrir geymslupláss

Málsnúmer 2013010288

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 152. fundur - 13.02.2013

Gunnar Jónsson mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa 24. janúar 2013.
Hann telur vanta opið svæði fyrir verktakafyrirtæki og einstaklinga í bæjarlandinu fyrir geymslu á byggingarverkfærum o.fl. því tengt. Hann telur að slíkt svæði myndi bæta samkeppnishæfni fyrirtækja á Akureyri.

Skipulagsnefnd þakkar fyrir ábendinguna og skipulagsstjóra í samvinnu við framkvæmdadeild er falið að koma með tillögu að mögulegum svæðum og útfærslu slíks svæðis.

Skipulagsnefnd - 170. fundur - 15.01.2014

Gunnar Jónsson mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa 28. nóvember 2013.
Hann kom til að fylgja eftir erindi sem hann var með í viðtalstíma fyrr á árinu vegna óska um geymslusvæði fyrir verktaka.

Skipulagsnefnd óskar eftir afstöðu framkvæmdaráðs til erindisins.

Framkvæmdaráð - 281. fundur - 14.02.2014

Erindi frá skipulagsnefnd dags. 17. janúar 2014 þar sem óskað er eftir afstöðu framkvæmdaráðs um geymslusvæði fyrir verktaka.

Framkvæmdaráð hefur ekki í hyggju að reka geymslusvæði fyrir einstaklinga og verktaka.