Fræðslu- og lýðheilsuráð

44. fundur 18. desember 2023 kl. 13:00 - 15:00 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Halla Birgisdóttir Ottesen
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Rannveig Elíasdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristín Jóhannesdóttir sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála
  • Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla
  • Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir verkefnastjóri grunnskóla
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu
Dagskrá
Halla Birgisdóttir Ottesen F-lista sat fundinn í forföllum Tinnu Guðmundsdóttur.

1.Quality in Nordic Teaching QUINT - öndvegissetur um gæði kennslu á Norðurlöndum

Málsnúmer 2023120731Vakta málsnúmer

Birna María B. Svanbjörnsdóttir dósent við Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri kynnti helstu niðurstöður QUINT rannsóknarinnar um gæði kennslu á Norðurlöndum.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Birnu fyrir kynninguna.

2.Fundaáætlun fræðslu- og lýðheilsuráðs

Málsnúmer 2019110153Vakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar fundaáætlun fræðslu- og lýðheilsusráðs vorönn 2024.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fundaáætlun fræðslu- og lýðheilsusráðs vorönn 2024.

3.Bílastæði við Glerárskóla, Klappir og Árholt

Málsnúmer 2023120628Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 5. desember 2023 frá stjórn foreldrafélags Glerárskóla sem og ódagsett bréf foreldraráðs Klappa vegna bílastæðamála við Glerárskóla, Klappir og Árholt.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur undir áhyggjur stjórnar foreldrafélags Glerárskóla sem og foreldraráðs Klappa og vísar erindinu til umhverfis- og mannvirkjaráðs.

4.Erindi vegna sérdeildar við Giljaskóla

Málsnúmer 2023120922Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 13. desember 2023 frá skólastjóra Giljaskóla vegna kaupa á lyftu fyrir sérdeild Giljaskóla.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og greiðslu á lausafjárleigu vegna framkvæmdanna og vísar afgreiðslunni til umhverfis- og mannvirkjaráðs.

5.Stefna um íbúasamráð 2022

Málsnúmer 2022041947Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar og umsagnar stefna Akureyrarbæjar um íbúasamráð til 2026 ásamt aðgerðaáætlun. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 23. nóvember sl. að vísa stefnunni til kynningar og umsagnar í fastanefndum, ungmennaráði, öldungaráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur undir mikilvægi þess að efla íbúasamráð og minnir á að efla þurfi samráð við börn og ungmenni.

6.Íþróttastefna Akureyrarbæjar og ÍBA 2018-2022

Málsnúmer 2017020033Vakta málsnúmer

Minnisblað frá forstöðumanni íþróttamála þar sem lagt er til að Íþróttastefna Akureyrarbæjar og ÍBA 2018-2022 framlengist og gildi þar til ný stefna varðandi íþróttamál verði samþykkt.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir tillögu forstöðumanns íþróttamála að framlengja núverandi Íþróttastefnu Akureyrarbæjar og ÍBA þangað til ný stefna í íþróttamálum verður samþykkt.

7.Rekstrar- og þjónustusamningar við aðildarfélög ÍBA 2024-2028

Málsnúmer 2023110398Vakta málsnúmer

Lagðir fram til kynningar rekstrar- og þjónustusamningar við aðildarfélög ÍBA sem sjá um rekstur íþróttamannvirkja Akureyrarbæjar.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

8.Skíðafélag Akureyrar - Andrésar Andarleikarnir - styrktarsamningur

Málsnúmer 2018010433Vakta málsnúmer

Til umræðu fyrirhuguð endurnýjun á styrktarsamningi við Skíðafélag Akureyrar vegna Andrésar Andarleikanna í Hlíðarfjalli.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð felur formanni ráðsins og forstöðumanni íþróttamála að vinna málið áfram.

9.Akstursstyrkir vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna í Hrísey

Málsnúmer 2022110842Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum um akstursstyrki vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna og unglinga búsettra í Hrísey.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fyrir sitt leyti reglur um akstursstyrki vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna og unglinga búsettra í Hrísey og vísar þeim til bæjarráðs.

10.Íþróttahús Naustaskóla

Málsnúmer 2023120925Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað forstöðumanns íþróttamála vegna rekstrarfyrirkomulags íþróttahúss Naustaskóla.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð felur forstöðumanni að vinna málið áfram.

11.Barnvænt sveitarfélag - gátlistar

Málsnúmer 2023091180Vakta málsnúmer

Lagt fram barnvænt hagsmunamat fundarins.


Áheyrnarfulltrúi: Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar dagskrárlið 1, 3, 6, 9 og 10 til kynningar hjá ungmennaráði Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 15:00.